Bændablaðið - 07.04.2022, Page 62
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 202262
Kartöflumygla er vel þekktur
sjúkdómur sem hefur lengi valdið
usla í kartöfluræktun í heiminum.
Hungrið mikla á Írlandi um
miðja 19. öldina má rekja til
kartöflumyglu sem herjaði í
Evrópu og leiddi til uppskerubrests
á þessari mikilvægu fæðu Íra.
Sveppurinn (Phytophthora
infestans) leggst á kartöflur og
veldur myglu og rotnun bæði á
grösum sem og hnýðunum sjálfum.
Fyrstu einkenni myglu eru svartir
blettir á blaðendum og stönglum
og kartöflugrösin falla svo alveg að
lokum. Veðurfar verður þó alltaf líka
að vera hagstætt til þess að myglan
komi fram og breiðist út. Þegar hiti
er yfir 10°C og rakastig er yfir 75%
eru kjöraðstæður fyrir mygluna að
breiða úr sér og getur það gerst
mjög hratt. Myglan getur borist
nokkuð langar leiðir með vindi en
talið er að virk smitgró geti borist
með vindi einhverja tugi kílómetra.
Yrki/stofnar kartaflna eru með
mismunandi mótstöðuafl gagnvart
sýkingu. Gullauga og Rauðar
íslenskar eru mest ræktuðu yrkin hér
á landi, og því miður eru þau mjög
móttækileg fyrir myglu, sérstaklega
Gullauga. Þess má geta að myglan
getur líka lagst á aðrar tegundir af
náttskugga- eða kartöfluættinni, svo
sem tómata.
Kartöflumygla kemur því miður
enn þá reglulega upp þó svo að
mislangt sé á milli smita. Hér var
myglan landlæg frá um 1890 og
fram yfir 1960 þó svo að tjón hafi
verið mismunandi milli ára. Tjón
af völdum kartöflumyglunnar var
líklegast mest árið 1953 en það var
metár í uppskeru, sem rotnaði þó
í geymslum (Sigurgeir Ólafsson,
2015). Talsvert myglutjón varð
á árunum 1990 og 1991. Aldrei
varð tjón á Norðurlandi en þó
sást mygla þar. Erlendis má segja
að kartöflumygla sé landlæg, en
veðurfar ræður þar mestu um
útbreiðslu hverju sinni.
Myglusmit á Suðurlandi 2021
Kartöflumygla kom upp í Þykkva-
bænum síðastliðið sumar og varð
hennar fyrst vart um mánaðamótin
júlí-ágúst. Þrátt fyrir varnaraðgerðir
náði myglan að breiðast nokkuð
hratt út, og um miðjan ágúst
sáust mygluhreiður nokkuð víða í
kartöflugörðum í Þykkvabæ.
Nokkru síðar sást svo mygla í
kartöflugörðum í Flóa og upp sveitum
Árnessýslu. Suðaustanvindur var
ríkjandi á þessu tímabili og mátti
rekja smitið eftir þeirri átt inn í
landið. Síðar barst svo myglan
austur og sást í Landeyjum og víðar
í Rangárþingi. Ekki fréttist af myglu
á höfuðborgarsvæðinu eða í öðrum
landshlutum, enda lifa myglugróin
ekki svo langa flugferð.
Allt smit í fyrra af sömu arfgerð
Kartöflumygla hefur margar
mismunandi arfgerðir. Tekin voru
sýni úr sýktum görðum í Þykkvabæ,
Flóa og uppsveitum og þau send til
greiningar hjá James Hutton Institute
í Skotlandi. Öll sýnin reyndust vera
af sama stofninum, EU41 A2. Sá
stofn er mjög ágengur, myndar
mikið af smitgróum og getur því
breiðst hratt út. Hann hefur aftur
á móti lítið þol gegn varnarefnum.
EU41 A2 sást fyrst í Danmörku 2013
og hefur dreifst þaðan, aðallega til
Norðurlanda og svæða kringum
Eystrasalt. Líklegt má því telja að
smit hafi borist hingað með innfluttu
útsæði eða matarkartöflum frá
Danmörku.
Næsta ræktunarár
Smitgróin sem dreifðust um landið
síðastliðið sumar lifa ekki af veturinn
úti í náttúrunni. Það eru því einungis
sýkt hnýði sem bera smit milli
ræktunarára. Mikil úrkoma síðastliðið
haust auðveldaði smit niður í hnýðin
og því urðu skemmdir meiri en ella
hefði orðið í þurrviðri.
Mest hætta á smiti nú næsta
sumar er því frá sýktu útsæði, eða
ef sýktar kartöflur frá í fyrra liggja
eftir í garðinum, frjósa ekki og ná
að spíra upp í vor. Útsæði sem tekið
er úr sýktum garði er mjög líklega
smitað af myglu. Þó að kartaflan
virðist heilbrigð, getur smit verið til
staðar og borist upp á yfirborðið þegar
kartöflurnar spíra upp og ný blöð
myndast. Ný myglugró ná að myndast
á blöðum, og ef veðurfar er hagstætt
fyrir myglu, getur nýr myglufaraldur
breiðst út. Líklegt er að eitthvað af
því útsæði sem sett verður niður hjá
kartöflubændum á Suðurlandi næsta
sumar sé sýkt af myglu.
Ekki er tiltækt nægt magn af
ósýktu útsæði af Gullauga og Rauðum
kartöflum. Til að reyna að lágmarka
skaðann og hindra útbreiðslu á myglu
hjá kartöflubændum verður sett fram
áætlun er snýr að markvissri notkun
varnarefna og reglulegu eftirliti.
Stefnt er að því að nettengja sjálfvirka
veðurstöð í Þykkvabænum og nýta
veðurgögn til að spá jafnóðum fyrir
um hættuna á myglu.
Kartöflum fargað – urðun
eða svart plast
Einnig er mikilvægt að gæta varúðar
ef kartöflum er fargað utan dyra.
Sýktar kartöflur geta spírað upp og
smit borist þaðan í garða. Því er brýnt
að urða kartöflubingi vandlega eða
þekja þá með svörtu plasti þannig
að kartöflurnar rotni, en spíri ekki
upp. Það er mjög mikilvægt að ganga
þannig frá kartöflum sem á að farga
að þar verði ekki hætta á útbreiðslu
smits.
Mikilvægt að áhugaræktendur
fylgist vel með í sumar
Kartöflubændur geta brugðist við
mygluhættu með fyrirbyggjandi
úðun með varnarefnum. Almennir
ræktendur hafa ekki aðgang að
slíkum efnum og því er hætta á að
dæmið snúist við næsta sumar, þ.e.
að mygla berist úr heimilisgörðum
til atvinnuræktenda. Því er mikilvægt
að ekki verði sett niður smitað
útsæði í heimilisgarða, og alls ekki
nálægt ræktunarsvæðum bænda.
Ef áhugaræktendur telja sig sjá
mygluð grös í sínum görðum er mjög
mikilvægt að taka þær plöntur strax
upp og farga, svo að smit dreifist ekki
frá þeim.
Heimild:
Sigurgeir Ólafsson. 2015.
Bændablaðið, 21. maí 2015.
https://www.bbl.is/skodun/
lesendabasinn/kartoflumyglan-
og-innflutt-utsaedi
Nýverið komu út skýrslur um
afkomu sauðfjár- og kúabúa fyrir
árin 2018-2020. Í þeim skýrslum
kemur skýrt fram að afkoma
bænda er slök og ýmsar blikur
á lofti í þeim efnum á komandi
vikum, mánuðum og árum.
Ef þessar tvær meginbúgreinar eru
bornar saman er hlutfall afurðatekna
af heildartekjum sauðfjárbænda
46% árið 2020 (563 kr/kg af 1.221
kr/kg). Hjá kúabændum var sama
hlutfall 72% árið 2020 (109,3 kr/L
af 151,3 kr/L). Um ólíkar búgreinar
er að ræða en samt sem áður má
velta fyrir sér hver staðan væri í
sauðfjárrækt ef sama hlutfall tekna
í búgreininni kæmi frá afurðatekjum.
Ef hlutfall afurðatekna í sauðfjárrækt
væri einnig 72% og hlutur opinbers
stuðnings sá sami (658 kr/kg) ættu
afurðatekjur að vera 1.692 kr/kg.
Í riti LbhÍ nr. 142 sem kom út í
maí 2021 er gott yfirlit yfir söfnun
hagtalna í sauðfjárrækt frá árinu
1991 þar sem gögn úr verkefnum
Hagþjónustu landbúnaðarins eru
tekin saman ásamt gagnasöfnun úr
verkefnum RML undanfarin ár. Ef
kostnaðartölur eru framreiknaðar
miðað við vísitölu neyslu verðs
í október 2021 þá er breyti legur
kostnaður á hvert kíló
dilkakjöts árin 2016-2020,
527 kr/kg. Breytilegur
kostnaður á hvert kíló frá og
með 1998 til 2020 er 511 kr/
kg. Þannig hefur breytilegur
kostnaður á hvert kíló
hækkað um 3% á sama
tíma og raunlækkun verður
á afurðaverði til bænda.
Sauðfjárbændur hafa staðið
sig mjög vel í hagræðingu á
sínum búum undanfarin ár,
þ.e. þeir hafa aukið afurðir á hverja
vetrarfóðraða kind sem skýrir af
hverju breytilegur kostnaður við
framleiðsluna hefur því sem næst
staðið í stað frá aldamótum.
Rekstrarniðurstöður sauðfjárbúa
Á heimasíðu RML má finna skýrslu
um rekstrarniðurstöður sauðfjárbúa
fyrir árin 2018-2020 ásamt upptöku á
kynningu um erindið. Í meðfylgjandi
töflu (Afurðatekjur og kostnaður)
er búið að framreikna niðurstöðu
áranna 2018-2020 til ársins 2022
byggt á þekktum hækkunum aðfanga
ásamt almennri verðlagshækkun.
Í spá fyrir árið 2022 þurfa
afurðatekjur að vera 900 kr/kg til
að búin standi á sléttu fyrir afskriftir
og fjármagnsliði og reiknaður
framleiðslukostnaður við hvert
kíló dilkakjöts er metinn á tæpar
1.600 kr/kg.
Til afurðatekna teljast allar tekjur
af afurðum sauðfjár og metum við
að uppbót á afurðaverð vegna
ársins 2021, ull og aðrar tekjur
vegna sauðfjárræktar, séu 80 kr/kg
árið 2022. Það þýðir að afurðaverð
fyrir dilkakjöt, sem er uppistaða
afurðatekna á hverju búi, þarf að ná
820 kr/kg til að rekstrarniðurstaða
búsins sé á núlli.
Við vekjum hins vegar athygli á
liðnum laun og launatengd gjöld og
skulum setja hann í betra samhengi.
Í spánni fyrir árið 2022 er hann 365
kr/kg en að baki þeirri tölu liggur
reiknað endurgjald bænda sem
hafa sauðfjárrækt sem aðalbúgrein
og meiri hluta bútekna af henni.
Flokkurinn (G2) miðast við fleiri en
400 fjár á húsi (vetrarfóðrað á húsi).
Þetta viðmið jafngildir 266.000
króna mánaðarlaunum.
Við vonum að allir geti sammælst
um að sauðfjárbú sem leggur inn
11-12 tonn af dilkakjöti
árlega eigi að geta haft
launagreiðslugetu fyrir einn
starfsmann á ársgrundvelli.
Í næstu töflu eru áhrif af
mismunandi launatöxtum
fyrir mán aðar laun metin.
Hver áhrif þeirra á liðinn
laun og launatengd gjöld eru
og þá hvert lágmarksverð
dilkakjöts þarf að vera í
kr/kg svo sauðfjárbú hafi
þessa launagreiðslugetu.
Til viðbótar við reiknað endurgjald
í flokki G2 eru mánaðarlaun skv.
kjarasamningi Bændasamtakanna
við Starfsgreinasambandið metin
ásamt mánaðarlaunum upp á 500.000
krónur.
Verkfæri í hagtölusöfnun
Verkefnið um rekstur sauðfjárbúa
er verkfæri í hagtölusöfnun sem
ýmsir hagaðilar hafa horft til
síðustu ár. Nú þurfa stjórnir og
stjórnendur afurðasölufyrirtækja
að kynna sér þetta efni og spyrja
sig þeirrar spurningar hvort
dilkakjötsframleiðsla og önnur
matvælaframleiðsla á Íslandi eigi
að vera sjálfboðavinna þeirra sem
hana stunda.
Sauðfjárbændur eiga að vera
stoltir af sínum rekstri og þeim árangri
sem þeir hafa náð á undanförnum
árum. Sem frumframleiðendur hafa
sauðfjárbændur ekki samningsstöðu
um verð fyrir sínar afurðir við sína
afurðastöð. Þessu þurfa stjórnir og
stjórnendur afurðasölufyrirtækja
ásamt viðskiptavinum þeirra
að gera sér grein fyrir. Það þarf
afkomu ef matvælaframleiðsla á
að vera atvinnugrein til framtíðar.
Það getur ekki talist eðlilegt að
bændur sem frumhlekkur í langri
keðju matvælaframleiðslu hafi ekki
afkomu og þurfi að sækja aðra vinnu
sér til framfærslu. Einhver borgar
alltaf fyrir ódýr matvæli og í tilfelli
sauðfjárafurða eru það bændur
sem ekki hafa afkomu – því þarf
að breyta.
Sauðfjárrækt hefur samfélagslega
mikilvægu hlutverki að gegna í
dreifbýli landsins, líkt og kom
fram í skýrslu RHA árið 2015.
Hverjar verða afleiðingar fyrir
byggðirnar í landinu ef þeirri
þróun sem verið hefur í gangi
undanfarin ár verður ekki snúið
við? Hverjar verða afleiðingar
fyrir afurðasölufyrirtækin sjálf
og ullariðnaðinn ef þessari þróun
verður ekki snúið við?
1. http://www.lbhi.is/sites/lbhi.is/
files/gogn/vidhengi/rit_lbhi_
nr_142.pdf
2. Skýrslan: https://www.
rml.is/static/files/RML_
Rekstur/2022/rekstur_
saudfjarbua_2018til2020.pdf
3. Upptaka: https://www.
youtube.com/watch?v=4-
057dXgiNw
4. https://www.rha.is/static/
files/Rannsoknir/2015/
saudfjarraekt_rha-loka-
br_300315.pdf
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf.
Nokkur orð um afkomu sauðfjárbænda
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
ráðunautur, Búfjárræktar-
og þjónustusvið
eyjólfur@rml.is
María Svanþrúður Jónsdóttir
ráðunautur, Rekstrar-
og umhverfissvið
msj@rml.is
2022
Meðaltal
Afurðatekjur kr/kg 900
Opinberar greiðslur kr/kg 690
Breytilegur kostnaður alls kr/kg 835
Fastur kostnaður utan launa kr/kg 390
Laun og launatengd gjöld kr/kg 365
Rekstrarniðurstaða f. fjármagnsl. og afsk. kr/kg 0
Afskriftir kr/kg 235
Fjármagnsliðir kr/kg 140
Afurðatekjur og kostnaður
Skilgreining Taxti Laun og launatengd gjöld kr/kg Lámarksverð dilkakjöts kr/kg
Reiknað endurgjald >400 kindur 266.000 365 820
Samningur BÍ og Starfsgreinasambandið 374.546 514 969
500 þús mánaðarlaun 500.000 686 1.141
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Kartöflumygla á Suðurlandi – varnaðarorð
vegna útsæðis fyrir sumarið 2022
Þórey Gylfadóttir
jarðræktarráðunautur RML
thorey@rml.is
Helgi Jóhannesson
Ráðunautur, Rekstrar-
og umhverfissvið
helgi@rml.is