Bændablaðið - 07.04.2022, Síða 63

Bændablaðið - 07.04.2022, Síða 63
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 63 Strúktúr ehf | www.struktur. is | struktur@struktur. is | Bæjaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími: 588 6640 Strúktúr ehf | www.struktur. is | struktur@struktur. is | Bæjaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími: 588 6640 Fjölbreyttar lausnir fyrir hús & nýbyggingar Strúktúr er með lausnina fyrir húsið Allt sem við hugsum, allt sem við gerum, snýst um þig okkar viðskiptavin Einingahús CLT krosslímt tré Z Strúktúrhús Gluggar & hurðir Utanhússklæðningar Límtré Stálgrindarhús Yleiningar Dúkar & þéttiborðar Við erum alltaf klár í spjallið Hafðu samband við okkur Strúktúr_ISC000762_220x305.indd 1 10-03-2022 10:58:11 Alhliða fasteignasala Kynslóða- / eigendaskipti bújarða Stofnun og skráning landspildna og lóða Loftur Erlingsson Löggiltur fasteignasali GSM 896-9565 loftur@fasteignasalan.is Fasteignasalan Bær · Austurvegi 26 · 800 Selfoss Sími: 512 3400 · www.fasteignasalan.is Styrkleikarnir eru fjölskyldu- viðburður sem snýst um að styðja við, heiðra eða minnast þeirra sem hafa fengið krabbamein. Leikarnir standa yfir í heilan sólarhring, sem er táknrænt fyrir að það fæst engin hvíld frá krabba­ meini. Viðburðurinn er opinn öllum sem vilja sýna stuðning í verki. Sjáumst á Styrkleikunum á Selfossi 30. apríl ­ 1. maí styrkleikarnir.is MIKLIR MÖGULEIKAR FYRIRTÆKI TIL SÖLU Rútu- og ferðaþjónustu fyriræki til sölu. Samstarf við ferðaþjónustuaðila - margar bókanir sumarið 2022 Nánari upplýsingar hjá BYR FASTEIGNASÖLU s. 483-5800 // byr@byrfasteign.is Elín Kára Löggiltur fasteigna- og fyrirtækjasali Verður haldinn þann 20. apríl kl. 14 að Löngumýri í Skagafirði. Venjuleg aðalfundarstörf. Dagskrá fundar verður birt á Facebook-síðu félagsins: facebook.com/skogarbaendur Aðalfundur Félags skógarbænda á Norðurlandi LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS Hvers vegna rækta bændur ekki meira korn á Íslandi? Kornrækt á Íslandi hefur dregist saman síðustu ár eftir allhraðan vöxt á fyrsta áratug aldarinnar. Megnið af kornvöru er flutt inn til landsins, bæði til fóðurframleiðslu og manneldis, og eru birgðageymslur Íslendinga agnarsmáar. Þær geyma um 4-6 vikna lager og eru einkum í eigu fóðurframleiðenda. Langvarandi brestur í aðfanga­ keðju gæti því leitt til skorts á þessari vöru og stríðið í Úkraínu minnir rækilega á að til þessa gæti komið næstu misserin. Til að auka kornrækt er nauðsynlegt að stórefla kynbætur á korni til að aðlaga það íslenskum aðstæðum og hækka ræktunarstyrki til samræmis við það sem tíðkast í nágrannalöndum, en fleira kemur til. Markaðslegir þættir eru að okkar mati ein helsta ástæða þess að ekki er meira korn ræktað hérlendis. Innlend viðskipti með korn eru afar takmörkuð. Stærstur hluti af íslenskri kornframleiðslu er notaður sem fóður innan bús og hér á landi er ekki til félag sem getur keypt og geymt korn í miklum mæli. Bændur hafa því ekki tryggingu fyrir að geta selt korn sitt, og þar af leiðandi er framleiðsla kornbænda aðeins lítill hluti af innlendri eftirspurn. Meðal flestra þjóða eru starfandi kornsamlög sem hafa tök á að geyma miklar birgðir af korni. Slík samlög auka fæðuöryggi til muna. Félög þessi kaupa korn frá bændum samkvæmt verðskrá, þurrka það og selja til kaupenda, t.d. til möltunar, fóður­ eða matargerðar. Félögin eru ýmist í einkaeigu eða eru rekin sem samvinnufélög. Lager félaganna getur orðið stór og myndað tækifæri fyrir fjárfesta til að festa fé tímabundið í kornvöru á svokölluðum hrávörumörkuðum. Ekkert kornsamlag er starfrækt á Íslandi og því er um markaðsbrest að ræða, enda er eftirspurn eftir vörunni mikil en framboðið lítið sem ekkert. Þetta mætti bera saman við aðstæður þar sem íslensk mjólkur­ og kjötframleiðsla hefði ekki sláturfélög og mjólkursamlög til að kaupa og vinna vörur bænda. Nauðsynlegt er að ríkið framkvæmi fýsileikagreiningu á eflingu kornmarkaðar með stofnun íslensks kornsamlags. Í slíkri greiningu þyrfti að kanna áhuga bænda til verkefnisins, mögulega staðsetningu, kostnað við uppbyggingu, möguleg rekstrar­ og viðskiptaform, eignarhald, sölumöguleika og fleira, ásamt hefðbundnum áhættumatsgreiningum. Mikilvægt væri að leita ráðgjafar frá erlendum aðilum sem þekkja til slíkrar starfsemi. Fordæmi eru fyrir þessari leið en ríkið hefur áður komið að skipulagningu og lagasetningu um afurðasölu bænda til hagsbóta fyrir almenning og bændur. Að okkar mati er þetta mál mikilvægt fyrir þjóðaröryggi og skref til aðlögunar íslensks landbúnaðar að loftslagsbreytingum. Undirritaðir hafa sent minnisblað til matvælaráðherra um mál þetta. Helgi Eyleifur Þorvaldsson, aðjúnkt / brautarstjóri í búfræði LbhÍ Hrannar Smári Hilmarsson, tilraunastjóri í jarðrækt LbhÍ Egill Gautason, doktorsnemi í kynbótafræðum við Háskólann í Árósum Helgi Eyleifur Þorvaldsson. Egill Gautason. Hrannar Smári Hilmarsson.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.