Bændablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 73
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 73
Þó að vetur konungur sé vonandi
á förum er alltaf gott að eiga hlýja
vettlinga, t.d. í fjallgönguna eða
útileguna. Uppskriftin heitir
HAUST en því er auðvelt að
breyta í VOR, litavalið eitt ræður
því. Uppskriftin er hugsuð þannig
að vettlingaparið sé hvort með
sínum munsturlitnum.
En þessi uppskrift er einnig kjörin
til að nýta umframgarn og leika sér
að litum.
Höfundur: Sigrún Helga Indriðadóttir
Stærð: Dömu
Efni: Sauðaband frá Rúnalist eða Hulduband frá
Uppspuna.
Aðallitur: 60-70 g
Munsturlitir alls: 25-30 g
Prjónfesta: 5 x 5 cm = 12 lykkjur og 12 umferðir
slétt á prjóna nr. 4 ½. Hægt er að minnka eða stækka
vettlingana með þvi að breyta um prjónastærð.
Leiðbeiningar
• Fitja upp 40 lykkjur með aðallit á prjóna nr. 4
• Tengið saman í hring og prjónið stroff: *2 slétt,
2 brugðið* þar til stroffið mælist 8-9 cm
• Skiptið yfir á prjóna nr. 4 1/2 og prjónið eina
umferð slétt en aukið jafnframt út um 3 lykkjur
jafnt yfir umferðina = 43 lykkjur.
• Þá er byrjað á munstrinu. Lesið munstrið frá
hægri til vinstri og byrjið hjá pílunni
• Aukið út fyrir þumli eins og sýnt er á myndinni.
• Þegar komið er að rauðu línunni er tekið auka
band í öðrum lit og prjónað yfir 11 lykkjur, setjið
þessar 11 lykkjur aftur yfir á prjóninn og haldið
áfram með munstrið þar til komið er að úrtöku.
• Fellið af samkvæmt útskýringu og þegar 11
lykkjur eru eftir, klippið þá bandið og dragið
í gegn.
• Þumall: takið upp 24 lykkjur; 11 lykkjur að
framan og aftan auk 2 lykkjur sitthvoru megin við
þessar 11 lykkjur sem prjónaðar voru á auka bandið
(1 lykkja, 11 lykkjur, 1 lykkja, 11 lykkjur). Byrjið þar
sem pílan er og prjónið frá hægri til vinstri.
VOR / HAUST
Litríkir vettlingar úr
Sauðabandi frá Rúnalist
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
9 4 8 3 6
7 1 8
5 2 6 3
6 3 4 2
2 6 7 5
9 8 6 1
7 1 9 5
9 1 4
3 5 4 2 9
Þyngst
2 1 8 3 5
5 6 7 4
8 7 4 3
4 2
1 2 8 6
2 8 9 5
1 7 3 6 8
7 9
5 6 8
1 6
6 4 1 3
9 5 8 7
5 9 4 2
2 4
3 5 2
1 9
5 2 4 3
5 7
8 9
6
7 9 8 4 2
8
3 1
6 7
5 2 3 4
Kökubakari eins
og Eva Laufey
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Sauðaband - Lambaband
Sérvalin 100% íslensk ull frá
Stórhól í Skagafirði. Rekjanleg
til kindar og merkt
framleiðandanum (kindinni).
Spunnin í Uppspuna fyrir
Sigrúnu í Stórhól sem er
höfundur uppskriftarinnar að
þessu sinni. Sigrún H. Indriðadóttir handlitar
garnið sitt og nefnir það eftir blómum í íslenskri náttúru sem hafa sama
lit og garnið fær eftir litun.
Hægt er að panta pakka hjá Sigrúnu til að prjóna þessa fallegu vettlinga
á www.runalist.is í s. 823-2441 á runalist@runalist.is eða koma við hjá
henni á Stórhól, þar sem hún rekur Rúnalist Gallerí og er með litla
verslun með vörur beint frá býli
og selur þar vörur úr eigin
framleiðslu og vörur frá öðrum í
nágrenni við sig.
Í þessa vettlinga má sömuleiðis
nota hulduband frá sauðfjár-
bændum sem hafa látið spinna
ull fyrir sig í Uppspuna og eru að
selja garnið sitt víða um landið.
Sunneva Líf Jónsdóttir er sex ára
og býr í Reykholti í Borgarfirði.
Nafn: Sunneva Líf Jónsdóttir.
Aldur: 6 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Hallveigartröð 1, sem er sko
í Reykholti.
Skóli: Grunnskólinn í Borgarfirði.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Að baka í heimilisfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Kanína.
Uppáhaldsmatur: Dominos pitsa.
Uppáhaldshljómsveit: Reykjavíkur
dætur.
Uppáhaldskvikmynd: Home.
Fyrsta minning þín? Einu sinni fór
ég í Jólahúsið á Akureyri og fékk mér
nammi.
Æfir þú
íþróttir eða
spilarðu á
hljóðfæri?
Bæði! Ég
spila á píanó
og fer oft í
íþróttir.
Hvað ætlar
þú að verða
þegar þú
verður stór?
Kökubakari
eins og Eva
Laufey og
ískona.
Hvað er það
klikkaðasta sem þú hefur gert?
Að valhoppa um allan skólann og
svo fór ég einu sinni bak við svona
stóran foss.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt
um páskana? Finna páskaeggið mitt
í ratleik.
Næst » Ég skora á systur mína,
Heklu, að svara næst.
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
Lely Center Ísland
Landbúnaðarleikföng