Skessuhorn


Skessuhorn - 04.04.2022, Síða 2

Skessuhorn - 04.04.2022, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 20222 Skil á greinum í næstu viku SKESSUHORN: Nú styttist óðum í kosningar til sveitar­ stjórna. Þeim fylgja talsverð skrif frambjóðenda og annarra sem koma vilja skilaboðum til þeirra. Ritstjórn Skessu­ horns beinir þeirri frómu ósk til frambjóðenda að skila tím­ anlega inn aðsendum grein­ um fyrir næsta blað. Þær þurfa að vera komnar á póstfang rit­ stjóra (skessuhorn@skessu­ horn.is) eigi síðar en á hádegi mánudaginn 9. maí næstkom­ andi. Hámarkslengd þeirra er ein síða í A4, 12 punkta letri. Svo þarf mynd að fylgja af höfundi. -mm Staðfest að fuglaflensu­ veiran er skæð LANDIÐ: Nú hefur ver­ ið staðfest að fuglaflensuveir­ ur sem greinst hafa að undan­ förnu hér á landi eru af hinu skæða afbrigði H5N1 sem geisar í nágrannalöndum okk­ ar um þessar mundir. „Í gildi er efsta stig viðbúnaðar vegna fuglaflensu. Smithætta fyr­ ir alifugla er mikil og brýnt að fuglaeigendur gæti ýtrustu sóttvarna. Fólk er enn hvatt til að tilkynna Matvælastofnun um dauða villta fugla sem það finnur. Um veika villta fugla skal tilkynna til viðkomandi sveitarfélags,“ segir í tilkynn­ ingu frá Mast. -mm Verðbólga ekki meiri í 12 ár LANDIÐ: Hagstofa Íslands birti fyrir helgi vísitölu neyslu­ verðs fyrir aprílmánuð. Vísi­ talan var 535,4 stig og hækk­ aði um 1,25% milli mánaða. Er það mesta hækkun vísi­ tölunnar milli mánaða frá febrúar 2013. Verðbólga á árs­ grundvelli mældist 7,2% og jókst um 0,5 prósentur milli mánaða. Sé litið framhjá áhrif­ um húsnæðis mælist verð­ bólga 5,3% og jókst um 0,7 prósentur milli mánaða. -mm Samningur framlengdur um innanbæjar­ akstur AKRANES: Á fundi Skipulags­ og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar mánu­ daginn 25. apríl kom fram að í gangi er útboð vegna innan­ bæjaraksturs á Akranesi. Í útboði er skilyrt að annar vagninn sem aki innanbæj­ ar verði knúinn jarðefnaelds­ neyti. Afhendingatími á slík­ um vagni getur hins vegar ver­ ið langur. Því lagði skipulags­ ráð til að núverandi samning­ ur um innanbæjarstrætó verði framlengdur til næstu ára­ móta. Í framhaldinu taki við nýtt kerfi með tveimur vögn­ um sem nýttir verða í hefð­ bundnum strætisvagnaakstri auk frístundastarfs á veg­ um skólanna og Þorpsins. Til áramóta mun því Reynir Jóhannsson annast aksturinn eins og verið hefur. -vaks Máltækið Enginn verður hvít- ari þó annan sverti, kom í páska- eggi þess sem hér ritar fyrir nokkru. Sveitarstjórnarkosningar fara fram um allt land 14. maí næstkomandi og það er vonandi að í kosningabaráttunni sem fer að vísu mest fram á netinu að þessu sinni hafi menn þetta í huga. Það hjálpar aldrei að tala menn niður til að upphefja sjálf- an sig og ekki til eftirbreytni. Auðvitað munu frambjóðend- ur takast á næstu daga um hin ýmsu málefni en öllu máli skipt- ir að koma fram við aðra af virðingu og virða þeirra skoðanir þó ólíkar séu. Nú kólnar tímabundið. Á morgun, fimmtudag, er gert ráð fyrir fremur hægri breytilegri átt, en gengur í norðvestan og vestan 8-13 m/sek eftir hádegi. Slydda eða snjókoma með köfl- um, en sumsstaðar rigning við ströndina, einkum sunnan- og austan til. Hiti 0 til 6 stig yfir daginn. Á föstudag snýst hann í suðvestan 5-13 með dálitlum skúrum eða éljum, en léttir til austanlands. Hiti 0 til 7 stig, mild- ast syðst. Á laugardag má búast við fremur hægri suðvestanátt og skúrum, en bjart að mestu á Austurlandi. Hiti 3 til 9 stig. Á sunnudag og mánudag má vænta suðaustanáttar með súld eða dálítilli rigningu, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hlýnar í veðri. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Hversu mikinn áhuga hefur þú á sveitarstjórn- armálum?“ 32% sögðu engan áhuga hafa, 23% sögðu að þau hefðu mjög mikinn áhuga, 19% höfðu ágætis áhuga, 14% sögðu frekar mikinn áhuga og 12% sögðu lítinn áhuga hafa á sveit- arstjórnarmálum. Í næstu viku er spurt: Hversu oft er heimilisbíllinn bónaður? Benedikt Kristjánsson tenór- söngvari býr á Akranesi og syng- ur út um allan heim. Benedikt er í viðtali í Skessuhorni dagsins og er Vestlendingur vikunnar að þessu sinni. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Veðurhorfur Frá og með 1. maí síðastliðnum byrjaði Íslandspóstur að dreifa bréfum tvisvar í viku um allt land. Undanfarin ár hefur bréfum verið dreift annan hvern dag þannig að póstdreifing hefur til skiptis verið þrisvar eða tvisvar í viku í dreifbýl­ inu. Í tilkynningu frá Íslandspósti er breytingin sögð viðbragð við verulegri fækkun bréfasendinga. „Bréfum hefur fækkað gríðar­ lega á síðustu árum og hafa bréfa­ sendingar dregist saman um tæp 80% frá árinu 2010. Þetta er mik­ il breyting sem gerir það að verk­ um að við þurfum að breyta þjón­ Íslandspóstur mun framvegis dreifa bréfum tvo daga í viku ustunni í samræmi við nýjan raun­ veruleika. Á blómaskeiði bréfanna fór Pósturinn með mörg bréf í hverja lúgu, nú er farið kannski í þriðju til fjórðu hverja lúgu með að meðaltali eitt bréf. Á sama tíma fjölgar íbúðum ört víðs vegar um landið sem eykur yfirferð sem þarf að fara yfir,“ segir Hörður Jóns­ son, framkvæmdastjóri rekstrar­ sviðs hjá Póstinum í samtali við Skessuhorn. Framvegis fastir dagar Hörður tekur fram að það þurfi enginn að örvænta; „enda munum við að sjálfsögðu sjá til þess að allir haldi áfram að fá bréfin sín reglu­ lega. Ef dreifing fellur á frídag, eða hætta þarf við hana vegna veð­ urs eða af öðrum ástæðum, mun­ um við gæta þess að farið sé af stað við fyrsta tækifæri,“ segir Hörður. Hann segir að nú verði heimili í sveitum með fasta póstdreifingar­ daga hér eftir, tvisvar í viku, alltaf sömu dagana. Það getur ýmist ver­ ið þriðjudagur og fimmtudagur, eða miðvikudagur og föstudagur. Ekki er föst dreifing á mánudög­ um, en þeir verða hins vegar nýtt­ ir til póstdreifingar hafi ferð fall­ ið niður á fimmtudegi eða föstu­ degi áður, svo sem vegna rauðra frídaga. Framundan eru einmitt slíkir dagar, en uppstigningardag­ ur er nú fimmtudaginn 26. maí og þá ber 17. júní upp á föstudag. „Stefna okkar er að koma alltaf sendingum tvisvar í viku í dreifbýl­ ið,“ segir Hörður. mm Um miðjan apríl auglýsti byggingarnefnd Dalabyggðar alút­ boð á byggingu nýrrar íþróttamið­ stöðvar í Búðardal. Lengi hefur verið beðið eftir bættri aðstöðu til íþrótta í þorpinu og nú hyllir und­ ir að það verði að veruleika. Stefnt er að byggingin verði risin og til­ búin til notkunar 1. júní árið 2024, eða eftir tvö ár. Íþróttamiðstöð­ in mun samanstanda af íþróttasal, þjónustukjarna með búningsklef­ um og lyftingasal ásamt útisund­ laug. Heildarstærð byggingarinn­ ar verður 1.335 fermetrar og þá er útisvæði sundlaugar með sund­ laugarkeri, vaðlaug og heitum pottum um 670 fermetrar. Samkvæmt útboðslýsingu verð­ ur gengið inn í íþróttamiðstöð­ ina á 1. hæð þar sem öll starf­ semi i húsinu fer fram. Þá verð­ ur gert ráð fyrir lagnarými sund­ laugar í kjallara og áhorfendarými og tæknirými á 2. hæð hússins. Þar verður hægt að iðka ýmsar íþrótt­ ir, bæði æfingar og keppni, en mið­ að er við að í því verði mætt kröf­ um til keppni í körfubolta. Að byggingu mannvirkja lokinni skal aðlaga hæð lóðar að hæðarsetningu aðliggjandi lóða og ganga frá lóð­ inni í samræmi við lóðarhönnun. Upphaf framkvæmda hefst þegar verkkaupi hefur með formlegum hætti tekið tilboði bjóðanda, en verklok eru eins og fyrr segir áætl­ uð 1. júní 2024. Bjóðendur í verkið skulu skila tilboði og gögnum fyr­ ir klukkan 14, föstudaginn 20. maí næstkomandi. mm Búðardalur. Ljósm. úr safni/ sm. Gert ráð fyrir löglegum körfuboltavelli í nýrri íþróttahöll Nýja íþróttahúsið verður staðsett sunnan við Dalabúð.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.