Skessuhorn


Skessuhorn - 04.04.2022, Side 15

Skessuhorn - 04.04.2022, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022 15 Vinstri Græn í Borgarbyggð ætla að: Göngum lengra XV 14. maí • Gera átak í uppbyggingu hverfa í Borgarbyggð • Standa vörð um leik- og grunnskólana í sveitarfélaginu  • Auka stuðning við nýsköpun í sveitarfélaginu • Nýta tækifærin í Brákarey og ákvarða nýtt skipulag út frá samráði við íbúa • Halda áfram með uppbyggingu íþrótta- mannvirkja og skólahúsnæðis og efla fjölbreytt tómstundastarf Kynntu þér málin okkar: x22.vg.is facebook.com/vinstrigraenborgarbyggd • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Ársþing Íþróttabandalags Akraness var haldið mánudaginn 25. apr­ íl í Tónbergi. Að sögn Guðmundu Ólafsdóttur framkvæmdastjóra ÍA var dagskrá þingsins með hefð­ bundnu sniði og samkvæmt lögum. Marella Steinsdóttir formaður setti þingið og fór yfir ársskýrslu Íþrótta­ bandalagsins. Erla Ösp Lárus dóttir gjaldkeri fór yfir reikninga þess, en bandalagið skilaði rúmlega fimm milljóna króna hagnaði sem skýrist mest af skertri starfsemi síðasta árs og að ekki reyndist unnt að halda þá fyrirlestra og þá fræðslu sem áætluð hafði verið. ÞÞÞ hlaut fyrstu samfé­ lagsviðurkenninguna Gestir ávörpuðu þingið. Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ flutti kveðjur frá ÍSÍ, Bára Daða­ dóttir formaður skóla­ og frí­ stundaráðs Akraneskaupstaðar og Guðmunda Ólafsdóttir flutti kveðj­ ur frá UMFÍ. Ellefu manns fengu afhent bandalagsmerki. Í fyrsta skipti var afhent samfélagsviður­ kenning, er það viðurkenning og þakkir til fyrirtækis sem styður vel við bakið á íþróttafélögum og Íþróttabandalaginu. Fyrsta fyrir­ tækið sem tók við þessari þakkar­ viðurkenningu var ÞÞÞ sem hef­ ur í áraraðir stutt vel og dyggilega við bakið á íþróttalífi á Akranesi og eins við Íþróttabandalagið sjálft. Stjórn ÍA tók ákvörðun um að hafa þetta árlegt og að eitt fyrirtæki á ári væri verðlaunað. Nýr formaður Stjórn ÍA tók breytingum á árs­ þinginu þar sem Marella Steins­ dóttir gaf ekki kost á sér til áfram­ haldandi formannssetu. Marellu var þakkað allt samstarf sem for­ maður. Hún gaf kost á sér í setu varastjórnar ÍA og var kjörin í hana. Hrönn Ríkharðsdóttir, sitjandi varaformaður, bauð sig fram og var hún kjörin formaður með lófa­ klappi. Emelía Halldórsdóttir var kjörin varaformaður, einnig með lófaklappi, en aðrir í stjórn voru kjörin: Erla Ösp Lárusdóttir, Heið­ ar Mar Björnsson og Gyða Björk Bergþórsdóttir. Gísli Karlsson og Líf Lárusdóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi starfa og var þeim þakkað fyrir störf í þágu ÍA. Varastjórn skipa: Trausti Gylfa­ son og Marella Steinsdóttir. Undir liðnum önnur mál tók Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri til máls. Ellefu fengu bandalagsmerki Bandalagsmerki ÍA fengu: Drífa Harðardóttir, Garðar Jónsson, Hörður Harðarson, Guðmundur Egill Ragnarsson, Inga Ósk Jóns­ dóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Kristvin Bjarnason, Olga Magnús­ dóttir, Ólöf Húnfjörð Samúelsdótt­ ir, Samúel Guðmundsson og Viktor Elvar Viktorsson. mm Fréttir frá ársþingi Íþróttabandalags Akraness Ellefu hlutu bandalagsmerki ÍA. Hér tekur Garðar Jónsson við því og blóm- um frá Marellu. Þórður Þ Þórðarson tók við samfélagsviðurkenningu ÍA fyrir hönd ÞÞÞ. Marella Steinsdóttir og Hrönn Rík- harðsdóttir, sem nú er tekin við sem formaður stjórnar ÍA.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.