Skessuhorn


Skessuhorn - 04.04.2022, Page 28

Skessuhorn - 04.04.2022, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 202228 Vísnahorn Á fyrri hluta síðustu ald­ ar þegar Akra­ nes var að byggjast upp og taka á sig svipmót þéttbýlis vann Árni Böðv­ arsson eitthvað við skolplagnir og kom með reikning til Þorsteins á Grund sem þá var hreppstjóri og átti að kvitta fyrir að rétt væri skráð en þar sem búið var að moka yfir rörin skrifaði hann á blaðið: ,,Mun vera rétt þó eigi sjáist.“ Árni þótt­ ist taka þetta óstinnt upp og sagði: Skrifar þú til skammar mér skakkt svo greiðsla fáist eigi, en Guð mun hafa gefið þér gáfur – þó að sjáist eigi. Eins og margir var Þorsteinn heldur lítið hrifinn af Halldóri Kilj­ an á hans fyrri rithöfundarárum og söng gjarnan í elli sinni með afa­ strák á hné sér: Hafið þið heyrt hann Kiljan kvaka, krákuna með fölsku nefi. Hafið þið séð hann Halldór taka heimskuna í einu skrefi? Ekki líkaði heldur öllum við efn­ istök skáldsins í Gerplu og þar um kvað Benedikt Björnsson: Fóstbræður frægðum svipti fullur af snilli og bulli. Laxness um prinsípissur párar, hinn spaki dári. Að frægðarbrunn fyrri tíða flýgur og í hann mígur. Lýsir með léttu fasi lúsinni i hverju húsi. Þegar Kiljan gaf út ljóðakver sitt þótti ýmsum ódrýgilega farið með pappírinn því víða var aðeins ein vísa á hverri blaðsíðu. Þá orti Ingveldur Einarsdóttir vinnukona á Reykjum í Mosfellssveit: Þitt hef ég lesið Kiljan kver; um kvæðin lítt ég hirði en eyðurnar ég þakka þér -þær eru nokkurs virði. Valgeir heitinn Runólfsson kom einn morgun á vinnustað sinn hjá Þorgeir og Ellert á Akranesi og tautaði: Illt er að vera aldurhniginn, ósköp hvað stirðna fæturnar. Eymsli í baki, ístran sigin, andvökur heilu næturnar. Náttúran hreint á núlli er. Náttúrlega. – Guð hjálpi mér! Annað sinn var það að Valgeir kom til vinnu sinnar að morgni dags á bítlatímabilinu og voru þá nokkrir síðhærðir starfsmenn Þ&E að negla járn á þak hinum megin götunnar. Heyrðist þá í Valgeiri: Ekki er tíðarandinn blíður, eintómt stríð og þrælaníð. Hárasíður hippalýður húsum ríður alla tíð. Vorin eru vissulega tími endur­ bóta og viðhalds og sýnist reyndar æði margs þörf eftir þennan vetur ef út í slíkt er farið. Fyrir margt löngu voru tveir ungir menn að gera við vél í austantjaldsættuðum eðalvagni sem annar þeirra hafði fest fé sitt í. Þegar vélin hafði verið sett saman og startað var í gang heyrðust tor­ kennileg hljóð og ófögur og var þá ekki annað að gera en rífa á ný og kom þá meinsemdin í ljós. Af því til­ efni orti Guðmundur Kristjánsson: Minna eyðir Moskvits hró, margfalt verður þolið, ef þú smeygir einni ró inn í brunaholið. Þetta var nú á þeirri tíð þegar menn voru enn að basla við að reyna að gera við það sem bilaði enda ekki alltaf endalaus aðgang­ ur að lánsfjármagni. Reyndar held­ ur ekki búið að tölvuvæða alla hluti jafn gjörsamlega og nú er raunin. Ágúst L. Pétursson frá Klettakoti á Skógaströnd kvað um manngildis­ mat almennings: Skyldir feta skatnar hér skrauts í gróna sali. Virðing metin ennþá er eftir krónutali. Jón S Bergmann taldi hinsvegar manngildi metið á þennan veg: Auður, dramb og falleg föt fyrst af öllu þérist og menn sem hafa mör og kjöt meira en almennt gerist. Hannes Sigurðsson leit aftur á móti á málin frá þessu sjónarhorni: Eflaust væri ætíð hér ylur í mínu hreysi, ef skaparinn hefði skammtað mér skort á kvenmannsleysi. Þeir voru aldavinir Höskuldur Einarsson frá Vatnshorni og Sig­ urður frá Brún og flestar ljótu vís­ ur Höskuldar um Húnvetninga orti hann aðeins til að skemmta Sigurði vini sínum. Til að bregða aðeins öðru ljósi á vináttu þeirra er hér síðasta vísa Höskuldar til Sigurðar, ort að morgni þess dags er Sigurð­ ur lést: Illt þó finnist oft mitt grín eftirminnilega, þegin kynni þín og mín þakka ég innilega. Mér er sagt að við lík Sigurðar hafi fundist þessi svarvísa: Hniginn er nú hróðurinn, hart er að ljúka göngu. Örviti í annað sinn orðinn fyrir löngu. En að Sigurði gengnum urðu þessar til: Brúnar rætur, blóm og fræ bjartar nætur kvað hann, eg í sætið engan fæ er mér bætir skaðann. Þó að allt sé kvitt og klárt er kemur að hinsta brottflutn- ingi getur maður saknað sárt Svartdælings úr Húnaþingi. Þannig stefnir öll ævin frá upp­ hafi að „Dauðans óvissum tíma“ hvenær sem sú stund nú renn­ ur upp og hverjir viðburðir verða á leiðinni. Káinn gamli hefur eitt­ hvað verið farinn að finna til þegar hann orti: Skrokkinn sannan skortir yl, skáldið fer að eldast. Svo er annað – sjáðu til, - sálin er að geldast. Og á svipuðum nótum er Stefán Jónsson: Flestöll kveld við hug minn hér harmar eldi flíka. Kýrnar geldast og ég er að því held ég líka. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is En Guð mun hafa gefið þér, gáfur – þó að sjáist eigi Starfsmenn golfvalla á öllu landinu eru þessa dagana að gera vellina tilbúna fyrir opnun og á Garða­ velli á Akranesi var allt á fleygiferð í byrjun síðustu viku þegar blaða­ maður Skessuhorns kíkti út á völl. Þar ráða ríkjum Einar Gestur Jón­ asson vallarstjóri og Guðni Stein­ ar Helgason starfsmaður/vélamað­ ur og tóku þeir sér smá hlé í stutt spjall í amstri dagsins. Vellinum var lokað í viku fyrir opnun en var opnaður síðasta laugardag og þá var boðsmót fyrir alla sjálfboðalið­ ana sem tóku þátt í hreinsunardeg­ inum á sumardaginn fyrsta. Fyrsta mót sumarsins verður Opna Norð­ urálsmótið 7. maí, en hvernig lítur völlurinn út fyrir sumarið? Einar og Guðni segja að völlurinn komi vel undan vetri og miðað við umhleyp­ ingasaman vetur þá er hvergi kal að sjá í honum. Annars skipti mestu máli að að hafa teigana og flatirnar í góðu lagi. „Vorið hefur aldrei kom­ ið eins skyndilega eins og núna eft­ ir páskana og er alveg ólíkt frá því í fyrra. Þá byrjaði að grænka en síð­ an kom kuldatímabil og svo gerð­ ist ekki neitt fyrr en í júní. Flatirn­ ar eru mjög góðar núna miðað við árstíma svo þetta lítur allt mjög vel út. Svo er bara að vona að það verði gott veður í sumar en ekki endalaus bleyta eins og síðasta sumar.“ Alltaf að betrumbæta Einar er menntaður golfvalla­ fræðingur eftir tveggja ára nám frá Elmwood College í Skotlandi sem er skóli staðsettur rétt hjá hinum fræga golfvelli St. Andrews. Hann hefur unnið meira og minna við þetta í um 20 ár. Einar hóf störf í febrúar á þessu ári á Garðavelli en Guðni hefur starfað þar síðustu fjögur ár. Þeir eru báðir í heils­ árs starfi og segja að yfirleitt byrji árið þannig að þá sé viðhald á vél­ um og þrif á þeim og síðan hefjist undirbúningur fyrir næsta sumar. Upp úr vorinu sé verið að undirbúa völlinn fyrir opnun og síðan komi sumarið og rútínan. „Þá er verið að slá völlinn alla daga og halda hon­ um í spilhæfu ástandi. Svo þegar fer að hausta í byrjun september þá er völlurinn gataður, sandað­ ur og borinn á hann áburður. Þá er öllum flötum lokað og ef það eru einhverjar framkvæmdir eins og að laga teiga eða gera glompur þá er það tíminn til þess. Svo erum við alltaf að betrumbæta ef við sjá­ um ástæðu til en þó eru það aldrei neinar stórvægilegar breytingar sem við gerum.“ Guðni segir varðandi vélakost golfklúbbsins að þeir séu með stór­ an og dýrmætan flota af vélum og hafi náð á síðustu árum að eignast enn fleiri tól og tæki til að verða sjálfbærir í rekstri og til að gera völlinn enn betri. Guðni sér um allar viðgerðir á vélum og segir það breytingu frá því sem áður var þegar verktaki sá um viðgerðirnar. Nú geti hann gengið strax í verkið ef vél stoppar og þá þarf hún ekki að standa í einhvern tíma eins og stundum var raunin áður. Sami kjarni og undanfarin ár Að sögn Einars og Guðna hefur þeirra stutta samstarf gengið mjög vel og þeir eru gott teymi. Ein­ ar hefur búið á Akranesi með fjöl­ skyldu sinni síðustu sex ár og hefur verið tíður gestur á kaffistofunni á vellinum á þessum árum. Varðandi aðra starfsmenn vallarins segja þeir að þetta sé sami kjarni og undan­ farin ár þó það hafi verið einhver endurnýjun en stærsti hlutinn séu námsmenn. „Sláttumennirnir yfir sumarið eru yfirleitt mættir um klukkan sjö á morgnana til klukk­ an þrjú á daginn en ef það er mót þá byrja þeir um fjögur fimm svo þeir nái að gera allt áður en mótið hefst. Við sláum flatirnar alla daga yfir sumarið og með sláttinn, þá er hirt upp af teigum og flötum en hitt fær að liggja. Þetta er slegið svo ört að grasið verður að engu.“ Annars segja þeir félagar að þeirra starf snúist aðallega um þjón­ ustu við kylfingana, ef völlurinn er góður og allar aðstæður eins og þær eigi að vera þá séu kylfingarnir sátt­ ir. En að lokum, hvernig er þessi völlur í samræmi við aðra velli á Íslandi? Einar segir að Garðavöll­ ur sé einn af bestu völlum landsins, á topp fimm að hans mati, og það séu margir sem eru einnig á þeirri skoðun. Hann þykir frekar flatur en margir eru hrifnir af því vegna þess að hann er þá svo léttur undir fót­ inn. Þá sé ekki slæmt að geta horft á Akrafjallið í sinni fegurstu mynd við spilamennskuna. Að lokum segja þeir Einar og Guðni að eins og alltaf hlakki þeir til sumarsins og vonast til að kylfingar og gest­ ir vallarins njóti sín til hins ítrasta í allt sumar. vaks Snýst um þjónustu við kylfingana Einar Gestur og Guðni Steinar glaðbeittir á golfvellinum.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.