Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.03.2021, Qupperneq 28

Læknablaðið - 01.03.2021, Qupperneq 28
140 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 R A N N S Ó K N um tímapunktum. Í þessum hópi vantaði niðurstöður mælinga á PTH fyrir 56 einstaklinga og eru því niðurstöður fyrir 229 manns birtar í töflunni. Hlutfall einstaklinga með hækkað PTH lækkar frá því fyrir aðgerð úr 21% niður í tæp 14% 18 mánuðum eftir að- gerð, í takt við fækkun þeirra sem skilgreindir eru með ófullnægj- andi D-vítamínstöðu. Af þeim sem töldust vera með fullnægjandi D-vítamínstöðu (25(OH)D >50 nmól/L) 18 mánuðum eftir aðgerð reyndust 28 (15%) vera með hækkað PTH. Litlu lægra hlutfall á hækkun í PTH sást meðal einstaklinga sem mældust með styrk 25(OH)D >75 nmól/L 18 mánuðum eftir aðgerð, eða um 13%. Umræða Rúmlega helmingur þeirra sem fóru í efnaskiptaaðgerð á Landspítala á árunum 2001-2018 mældist með ófullnægjandi D-vítamínstöðu um það bil tveimur vikum fyrir aðgerðardag og um þriðjungur 18 mánuðum eftir aðgerð (18% í þeim hópi þar sem mælingar voru skráðar á öllum tímapunktum). Hlutfallið er nokk- uð lægra en sést hefur í erlendum rannsóknum, þar sem allt að 90% hafa mælst með ófullnægjandi D-vítamínstöðu stuttu fyrir aðgerð15-19,24-28 og milli 50 og 60% á fyrstu árum eftir efnaskiptaað- gerð.11,12,17,29 D-vítamín hefur áhrif á frásog kalks í meltingarveginum og í samvinnu við kalkkirtilshormón (PTH) getur það aukið losun á kalki frá beinum og þar með aukið styrk kalks í blóði.30 Þegar styrkur D-vítamíns er lágur minnkar frásog kalks frá smáþörm- um sem örvar seytingu af PTH frá kalkkirtli. Kalkkirtilshormón- ið eykur þá losun af kalki frá beinum til að hækka styrk þess í blóði, sem getur aukið líkur á beinþynningu.21,31 Í þessari rann- sókn sáust hækkanir á PTH hjá um fjórðungi þeirra sem höfðu ófullnægjandi D-vítamínstöðu fyrir aðgerð og var hlutfallið enn hærra hjá einstaklingum með D-vítamínskort (25(OH)D <30 Tafla II. Meðalstyrkur kalkkirtilshormóns (PTH), staðalfrávik (SF) og fjöldi einstaklinga (hlutfall) með hækkun á PTH >65 pg/ml. (n) Meðaltal PTH pg/ml SF PTH >65 pg/ ml, (%)* Allir þátttakendur með mælingar á 25(OH)D á öllum tímapunktum Fyrir aðgerð 229 52,7 21,9 60 (21,1) Þremur mánuðum eftir aðgerð 229 49,9 18,6 48 (16,8) 9 mánuðum eftir aðgerð 229 51,2 20,4 52 (18,2) 18 mánuðum eftir aðgerð 229 52,5 25,8 39 (13,7) Þátttakendur með 25(OH)D <45/<50** nmól/L fyrir og eftir aðgerð Fyrir aðgerð 148 54,7 22,8 36 (24,3) Þremur mánuðum eftir aðgerð 57 57,6 21,1 14 (24,6) 9 mánuðum eftir aðgerð 51 55,1 22,7 14 (27,5) 18 mánuðum eftir aðgerð 51 57,1 24,6 10 (19,6) Þátttakendur með 25(OH)D <30 nmól/L fyrir og eftir aðgerð Fyrir aðgerð 68 58,2 24,2 20 (29,4) Þremur mánuðum eftir aðgerð 12 71,6 28,6 6 (50,0) 9 mánuðum eftir aðgerð 11 73,4 15,8 4 (36,4) 18 mánuðum eftir aðgerð 11 91,9 42,8 3 (27,3) *Birtar skráðar niðurstöður fyrir PTH fyrir þann hóp þar sem mælingar á 25(OH)D lágu fyrir á öllum tímapunktum og eftir D-vítamínstöðu fyrir og eftir aðgerð. Upplýsingar um styrk PTH vantaði fyrir 56 einstaklinga. **Viðmið fyrir ófullnægjandi D-vítamínstöðu miðast við <45 nmól/L fyrir þá einstaklinga sem fóru í aðgerð frá 2001 til 2012 og <50 nmól/L fyrir þá sem fóru í aðgerð 2013-2018 og D-vítamínskortur við <30 nmól/L fyrir bæði tímabilin.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.