Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 38

Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 38
150 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 milli. Margrét hafi á þessum tíma gengið með barn og fætt, fyrst allra í prógramm- inu. „Það var algjört einsdæmi.“ Hún missti ekkert úr og varð algjör fyrirmynd. „Það voru forréttindi að starfa við hlið hennar.“ Tímamót Hún hafi verið á réttum stað á réttum tíma, mjög hæf. Hún hafi séð ljósið í speglunum (laparoscopic reper) í byrjun 10. áratugarins og birt um það mikilfenglega tímamóta vísindagrein. Málþingið var á persónulegu nótunum. Einfríður sagði frá því hvernig Margrét hafi komið sem ferskur gustur að vest- an. Hávaxnari og háværari en flestar. Geislandi fjörug. Hún sagði frá því hversu gott var að verja tíma með Möggu og manni hennar, Jóni Ásgeiri, sem lést 2007 úr krabbameini. Hvernig þær fóru saman til náms í Svíþjóð og svo í sérnám í sitt- hvorri heimsálfunni. Þær hafi gengið með börn á sama tíma, Magga mánuði á undan með tvíbura og stokkið stigana. „Síðasta ferð okkar saman var til New York á Sigurrósartónleika tveimur til þremur mánuðum áður en hún kvaddi. Þrátt fyrir hennar miklu veikindi hafði ég varla við henni á göngu. Hún skundaði áfram með bleika derhúfu, sem var reynd- ar umdeild hjá okkur vinkonunum, og naut þessarar ferðar. Við gerðum margt skemmtilegt en vissum því miður báðar að þetta yrði hennar síðasta utanlands- ferð,” sagði vinkona hennar úr pontu á Læknadögum. Þær vinkonurnar minnist margra skemmtilegra orða og tiltækja. Við seinni tíma rauðvínsdrykkju hafi Magga Odds haft á orði: „Stelpur, við drekkum ekki næstum því nóg.“ Þær skála alltaf fyrir henni þegar þær hittast. Hjördís sagði frá því hvernig Margrét setti niður fótinn í sérnáminu við rann- sóknir í Yale þar vestra. „Hún var í fyrstu launalaus en þegar henni leiddist þófið, og það var ekkert að bíta og brenna í kot- inu, hótaði hún að hætta nema hún fengi laun. Þetta var fáheyrt á rannsóknarstofu Yale en hún hafði sitt fram.“ Áhrifavaldur Þær vinkonurnar stikluðu á stóru í ævi Möggu Odds. Hvernig þau Jón Ás- geir misstu annan tvíbura sinn aðeins nokkurra vikna árið 1993, sem hafi verið þeim áfall. Aldrei hafi verið lognmolla á skurðstofunni þegar Magga var að skera eftir að heim var komið árið 1994. „Hennar er enn sárt saknað hér á skurðstofunum. Hún var áhrifavaldur í bestu merkingu þess orðs. Um það geta allar þær frábæru konur vitnað sem fet- uðu í fótspor hennar og lærðu listina að skera.“ Þær stöllur hafi einnig verið við- staddar fyrsta minningarfyrirlestur um Margréti í New Haven í september 2009 með foreldrum hennar og fjölskyldu. „Þar var henni veittur sá heiður að biblía skurðlækna, Schwartz´s Principles of Surgery, útgefin 2009, var tileinkuð henni.“ Lewis sagði að það að bókin hafi verið tileinkuð henni sýni hvað áhrif hennar hafi verið mikil. „Það var svo virkilega verðskuldað hjá henni.“ Margrét lét eftir sig synina Odd Björn og Sigurð Árna þegar hún lést og stjúp- börnin Sigríði og Þorgrím Darra. Fjölskylda Margrétar. Eiginmaðurinn Jón Ásgeir Sigurðsson, Margrét og synirnir Sigurður Árni og Oddur Björn. V I Ð T A L Jórunn Atladóttir, Þóra Steingrímsdóttir, Einfríður Árnadóttir, Elsa Björk Valsdóttir, Hjördís Smith og Vilhelmína Haraldsdóttir töluðu allar á málþinginu í minningu Margrétar. Mynd/Margrét Aðalsteinsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.