Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 40

Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 40
152 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 V I Ð T A L Parkinson-sjúklingum á Íslandi er mismunað. Þeir komast ekki allir að á Landspítala, en geri þeir það fá þeir lyf og þjónustu greidda. Hinir geta lent í að greiða að fullu fyrir þjónustuna. Þetta segir Anna Björnsdóttir taugalæknir sem segir stöðuna ekki eins og best verður á kosið ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Stofulæknir segir sjúklingum mismunað í auknum mæli „Þjónusta við Parkinson-sjúklinga hér á landi er ekki eins og hún gerist best í heiminum og það þótt hún hefði alla burði til að vera það,“ segir Anna Björns- dóttir, sérfræðilæknir í Parkinson og hreyfi röskunum. Hún er einn síðustu lækna sem komst inn á rammasamning ríkisins áður en hann féll úr gildi 31. des- ember 2018 og með þeim yngstu sem reka eigin stofu en meðalaldur sérfræðilækna er nú um 60 ár. Blaðamaður Læknablaðsins sest niður heima hjá Önnu á björtum en blautum vetrardegi, enda bráðnar nú snjór gær- dagsins hratt eins og jafnan er á höfuð- borgarsvæðinu. Við ræðum stöðuna. „Það er augljóslega ekki straumur af ungum sérfræðilæknum að hefja sinn stofurekstur,“ segir Anna. Þótt það sé jákvætt að ráða tíma sínum sjálf og geta lokið vinnudeginum þegar hentar, séu hindranirnar margar við reksturinn. Greiðslur frá Sjúkratryggingum dekki vart veikindarétt eða annan sem oft reyni á í tengslum við barneignir og upp- eldi ungra barna. Sjálf hafi hún farið í fæðingarorlof og skellurinn þá mikill enda engar tekjur sem berast ef stofulæknar hitta ekki skjólstæðinga sína. „Mörgum ungum læknum vex því stofurekstur í augum,“ segir Anna. Sjúklingum mismunað Anna hefur áhyggjur af vaxandi mis- munun í kerfinu. Hún segir mikilvægt að fólki sé ekki mismunað eftir því hvar það komist að; á stofu eða á spítalanum, því það hafi ekki alltaf val. Það komist ekki að hjá ríkinu eða biðin óeðlilega löng. „Þjónusta við Parkinson-sjúklinga með langt genginn sjúkdóm sem krefst sértækra úrræða hér á landi er til að mynda misjöfn eftir því hvort þeir komast að á spítalanum eða á stofu. Því þarf að breyta,“ segir hún og að þeim séu settar skorður í meðferðum við sjúkdómi sínum. „Einstaklingar sem hafa mikil Park- inson-einkenni og sveiflur á einkennum ættu að hafa val um þrjá möguleika: fá lyf, fara í rafskautaísetningu í heila eða að fá duodopa-dælu, en þessi lyfjadælumeðferð í gegnum maga er sú eina sem er í boði hér á landi. Hún er gerð á Landspítala,“ segir hún. Meðferðirnar séu mismunandi og henti ólíku fólki en til að komast í rafskauta- ísetningu erlendis þurfi Parkinson-sjúk- lingar að fara í sérhæft mat á Landspítala og þar strandi fólk. Biðtíminn hafi reynst óvenju langur. „Ég vísaði skjólstæðingi mínum á Landspítala til uppvinnslu fyrir tveimur árum. Hann hefur ekki enn farið í aðgerð. Það er að mínu mati óviðunandi biðtími og ekki aðeins COVID-19 um að kenna.“ Anna bendir á að hún sem sérfræðing- ur hafi bæði menntun og reynslu til að gera þessa sérhæfðu uppvinnslu fyrir aðgerð sjálf en ekki sé gert ráð fyrir greiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands í endurgreiðslureglugerð enn sem komið er. Skjólstæðingar hennar þurfi því að greiða fyrir hana að miklu leyti úr eigin vasa. Þeir sem fái þjónustuna á Landspítala þurfi þess hins vegar ekki. „Mismununinn á greiðsluþátttöku þeirra sjúklinga sem fá þjónustu á spítal- anum og svo hinna sem fá þjónustu utan spítalans er að aukast. Sjúklingarnir mínir þurfa að borga meira þrátt fyrir að hafa sömu sjúkratryggingu og rétt til heilbrigð- isþjónustu og þeir sem njóta þjónustu innan Landspítala,“ segir hún og bendir á að óheimilt sé að mismuna sjúklingum samkvæmt lögum um réttindi sjúklinga. Fær ekki svör Anna segir að hún hafi endurtekið haft samband við SÍ en hingað til hafi einungis fengist þau svör að málið sé á borði ráð- herra. Ekki sé við læknana á spítalanum að sakast heldur telur hún að sökum anna gefist ekki nægur tími til að sinna Parkin- son-sjúklingum, sem þurfi alla jafna ekki að leggja inn til mats og meðferðar. „Auðvitað vil ég geta séð um þetta fyr- ir sjúklinga mína og fylgt þeim eftir. Það er tvíverknaður að annar sérfræðingur þurfi að fara yfir málin á nýjan leik.“ En Hlustið á viðtalið á hlaðvarpi Læknablaðsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.