Læknablaðið - 01.03.2021, Page 42
154 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
„Við vorum á leiðinni til Ástralíu,“ seg-
ir læknirinn Rasmus Erik Strandmark
sem setur nú lokapunktinn á sérnám
sitt í bráðalækningum á bráðamóttöku
Landspítala. Þar hefur hann starfað frá
því í október. Hann er í skiptinámi á sínu
5. ári og sá fyrsti sem sækist eftir því að
stunda sérnám í skiptinámi á Íslandi.
Ísland var þó ekki fyrsta val Rasmusar
og fjölskyldu. Þau stefndu til Ástralíu.
„En það varð ljóst þegar kórónuveiru-
faraldurinn færðist í aukana að plön um
Ástralíuför væru fyrir bí. Yfirvöld lokuðu
landamærunum,“ lýsir hann í símtali
við Læknablaðið. Hann er nú samt bara í
Vesturbænum, þar sem fjölskyldan hefur
komið sér vel fyrir. Þau eru ánægð. „Fjöl-
skyldan var ekki tilbúin að gefa drauminn
um að búa erlendis upp á bátinn og ég leit
í kringum mig og hafði svo samband við
Landspítala um mánaðamótin ágúst-sept-
ember,“ segir hann.
„Okkur langaði svo virkilega að fara
eitthvert og mig langaði að klára sérnámið
mitt utan Svíþjóðar. Mig langaði að stækka
sjóndeildarhringinn og læra frá fyrstu
hendi hvernig unnið er annars staðar,“
segir hann og er ánægður þótt hann hafi
fengið vetur í stað sumars þegar áfanga-
staðurinn varð Ísland.
Æfðu ensku fyrir Íslandsförina
„Ég hafði undirbúið börnin fyrir ensku-
mælandi ár en við urðum að laga okkur
fljótt að nýjum aðstæðum,“ segir hann.
Rasmus segir ekki ekki mikla hefð fyrir
því að Svíar sæki sérnám erlendis. „Það
er óvanalegt, sama til hvað sérgreinar er
litið.“ Fáir fari til Ástralíu en einhverjir
sæki til Suður-Afríku. Rasmus segir fjöl-
skylduna aðlagast vel en þau kona hans,
Camilla, eiga tvær ungar dætur.
„Þær standa sig svo vel. Eldri dóttir
mín er 10 og sú yngri, sem hefur sérþarfir
vegna Downs-heilkennis, er 7 ára. Við
höfum alltaf smá áhyggjur af því hvernig
hún aðlagist þegar við ferðumst en skólinn
hefur staðið sig með miklum sóma. Fag-
mennskan er mikil og báðar stelpurnar
elska að fara í skólann. Þær hafa eignast
marga góða vini og eldri dóttir okkar upp-
lifir sig mjög frjálsa. Hún getur gengið yfir
til nágrannanna og ver öllum stundum
með nýju vinkonu sinni. Þær njóta þess
að vera hér,“ segir hann. Það eigi líka við
eiginkonu hans.
„Já, hún rekur jógastöð. Nú í heimsfar-
aldrinum hafði mesta vinnan færst á netið
og hún því ekki bundin staðsetningu held-
ur getur stundað vinnu sína hvaðan sem
er. Hún skýst til Svíþjóðar í stuttar ferðir
sem gengur vel héðan.“
Íslenskir læknar haukar í horni
Hann er ánægður með íslenska lækna,
sem svo margir þekki hvernig það er að
læra utan heimalandsins. „Við njótum þess
að íslenskir læknar vita hvað við erum að
ganga í gegnum sem fjölskylda á nýjum
stað og hafa stutt okkur. Við erum mjög
þakklát fyrir það.“ Kófið hafi þó sett strik í
reikninginn. „Við höfum ekki komið heim
til margra en hefðum örugglega gert það
ef ekki væri fyrir heimsfaraldurinn.“
Rasmus segir að sérgrein í bráðalækn-
ingum sé tiltölulega ný í því formi sem
nú sé í Svíþjóð og að horft hafi verið til
Íslands. Hann hafi því vitað að íslenska
Sænski sérnámslæknirinn
sem vildi sumar í skiptináminu
en fékk vetur
Hermaðurinn sem starfaði sem slökkviliðsmaður en varð hjúkrunarfræðingur og
að lokum læknir. Rasmus Erik Strandmark er fyrsti erlendi læknirinn sem stundar
sérnám í bráðalækningum í skiptinámi á Landspítala. Hann lærði til læknis þegar
honum fannst hann staðnaður sem hjúkrunarfræðingur
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
V I Ð T A L