Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.03.2021, Page 49

Læknablaðið - 01.03.2021, Page 49
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 161 B R É F T I L B L A Ð S I N S Leghálskrabbameinsleit Krabbameinsfélagsins – árangursmat og gæðaeftirlit agnosis can lead to unnecessary and costly inter- ventions. In a vaccinated population although HPV testing may be seen to be more advantageous, the PPV of this test will be even lower as the PPV of any test falls in a population with a decreased prevalence of disease. Although the PPV of conventional cytology will also fall in this situation it in fact has an advantage over HPV testing as it has a much hig- her PPV to start with … Rannsóknir Leitarstöðvar styðja ábendingar um að næmi hefðbundins frumustroks sé háð skipulagi leitarinnar. Hér á landi var þriggja ára næmið 81% fyrir flöguþekjukrabbamein og 42% fyrir kirtil- og blandæxli (adenosquamos). Sér- tæki (specificity) frumustroksins var hins vegar 98% sem skiptir miklu í skimun. Nýmyndun krabbameina (de novo mein) innan þriggja ára leitartímabils var aðeins 5% fyrir flöguþekjukrabbamein en 36% fyrir blandæxlin.5 Næmi frumustroksins, hvað varðar greiningu æxla á frumstigi og hulinstigi, er því mun betra en fram kemur í ummælum skimunarráðs. Þessar niðurstöður benda til að gildi HPV-greiningar geti aðallega legið í því að styðja við snemmgreiningu blandæxla og illa sérgreindra flöguþekjumeina,5 en á kostnað ofgreininga meðal HPV-jákvæðra kvenna.4 Þó HPV-greining sé í anda fyrri hugmynda Leitarstöðvar ber að sann- reyna með eigin eftirfylgni hvort þessar breytingar standist væntingar. Niðurstaða Árangur leghálskrabbameinsleitar byggir á skipulagi og mætingu til leitar. Þriggja ára mæting var 82% á tímabilinu 1988-19923 en 3,5 árs mæting var 71% á tímabilinu 2009-2013 og 69% á tímabilinu 2014-2018.7 Í gögnum Leitarstöðvar eru ástæður minnkandi mætingar raktar til breyttra þjóðfélagshátta, aðallega í kjöl- far bankahrunsins 2008, en nýleg rann- sókn Leitarstöðvar bendir til að lækkun skoðunargjalds geti komið að gagni. Í kjölfar tillagna skimunarráðs um flutning leghálskrabbameinsleitar til heilsugæsl- unnar ákvað ráðherra að lækka skoðunar- gjaldið hjá þeim sem mæta í skoðun til heilsugæslunnar og verður fróðlegt að sjá áhrif þeirrar ákvörðunar. Það var stefna Leitarstöðvar fram til ársins 2013 að stíga varlega til jarðar og undirbyggja allar breytingar á fram- kvæmd leitarinnar með rannsóknum á eigin efniviði frekar en að treysta í blindni á niðurstöður erlendra rannsókna. Má í því sambandi vitna til heimilda um innlendar rannsóknir sem fram koma í tilvitnaðri yfirlitsgrein,3 auk síðari rann- sókna á næmi vökvasýna8 og árangurs- mati brjóstakrabbameinsleitar hjá konum 40-69 ára.9 Af umsögn þeirra erlendu fagaðila sem hér er vitnað til má greina að þessi að- ferðafræði hefur sannað gildi sitt og þykir því athyglisvert að skimunarráð og aðrir álitsgjafar hins opinbera6 vitna ekki til íslenskra rannsókna3,9 en kjósa frekar að styðjast við erlendar rannsóknir, sem vek- ur spurningar um tilgang eigin athugana. Eftir 2013 varð sú stefnubreyting að þáverandi stjórnendur leitarsviðs ákváðu að leggja af rannsóknir á eigin efniviði og treysta eingöngu niðurstöðum erlendra rannsókna.7 Frá þeim tíma hafa ekki borist nein fræðileg uppgjör frá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Ef þessi ákvörðun hefur áhrif á söfnun upplýsinga í gagnabanka Leitarstöðvar yrði það afar óheppilegt með tilliti til út- tektar á árangri þeirra skipulagsbreytinga sem framkvæmdar voru í ársbyrjun 2014, breytinga skimunarráðs sem tóku gildi um síðustu áramót og mats á áhrifum HPV-bólusetninga 12 ára stúlkna sem hófust í september 2011. Það má þó væntanlega horfa fram á betri tíma þar sem Embætti landlæknis hefur nú tekið yfir gagnabanka Leitar- stöðvar og mun tíminn leiða í ljós hvort nýtt skipulag skimunarráðs með dreifðri framkvæmd og stjórnun leitarinnar auk útvistunar grunnrannsókna leg- hálskrabbameinsleitar til erlendra aðila verði farsælli fyrir íslenskar konur. Heimildir 1. IARC working group on evaluation of cervical cancer screening programmes. Monografi IARC on Cervical Cancer screening Vol 10, IARC Press, Lyon 2005. 2. Sigurdsson K, Sigvaldason H. Effectiveness of cervical cancer screening in Iceland, 1964-2002: a study on trends in incidence and mortality and the effect of risk factors. Acta Obstet Gynecol Scand 2006; 85: 343-9. 3. Sigurdsson K. Review: Cervical cancer: cytological cervical screening in Iceland and implications of HPV vaccines. Cytopathology 2010; 21: 213-22. 4. Farnsworth A. Cervical screening in the era of HPV vaccination. Editorial. Cytopathology 2010; 21: 211-2. 5. Sigurdsson K. Quality assurance in cervical cancer screening. The Icelandic experience1964-1993. Eur J Cancer 1995; 31A: 728-34. 6. Stefánsdóttir Á. Hvers vegna á ekki að skima á aldrinum 40-49 ára fyrir brjóstakrabbameini? Læknablaðið 2021; 107: 65. 7. Sigurðsson K, Geirsson RT. Breytt skipulag krabba- meinsleitar - Stöðumat á tímum nýrra áskoranna. Læknablaðið 2020; 106: 216-8. 8. Sigurdsson K. Is liquid-based cytology more sensitive than a conventional Pap smear? Cytopathology 2013; 24: 254-63. 9. Sigurdsson K, Olafsdottir EJ. Population-based service mammography screening: the Icelandic experience. Breast Cancer (Dove Med Press) 2013; 5: 17-25.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.