Læknablaðið - 01.03.2021, Síða 49
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 161
B R É F T I L B L A Ð S I N S
Leghálskrabbameinsleit
Krabbameinsfélagsins
– árangursmat og gæðaeftirlit
agnosis can lead to unnecessary and costly inter-
ventions. In a vaccinated population although HPV
testing may be seen to be more advantageous, the
PPV of this test will be even lower as the PPV of any
test falls in a population with a decreased prevalence
of disease. Although the PPV of conventional
cytology will also fall in this situation it in fact has
an advantage over HPV testing as it has a much hig-
her PPV to start with …
Rannsóknir Leitarstöðvar styðja
ábendingar um að næmi hefðbundins
frumustroks sé háð skipulagi leitarinnar.
Hér á landi var þriggja ára næmið 81%
fyrir flöguþekjukrabbamein og 42% fyrir
kirtil- og blandæxli (adenosquamos). Sér-
tæki (specificity) frumustroksins var hins
vegar 98% sem skiptir miklu í skimun.
Nýmyndun krabbameina (de novo mein)
innan þriggja ára leitartímabils var aðeins
5% fyrir flöguþekjukrabbamein en 36%
fyrir blandæxlin.5 Næmi frumustroksins,
hvað varðar greiningu æxla á frumstigi
og hulinstigi, er því mun betra en fram
kemur í ummælum skimunarráðs.
Þessar niðurstöður benda til að gildi
HPV-greiningar geti aðallega legið í því
að styðja við snemmgreiningu blandæxla
og illa sérgreindra flöguþekjumeina,5 en á
kostnað ofgreininga meðal HPV-jákvæðra
kvenna.4 Þó HPV-greining sé í anda fyrri
hugmynda Leitarstöðvar ber að sann-
reyna með eigin eftirfylgni hvort þessar
breytingar standist væntingar.
Niðurstaða
Árangur leghálskrabbameinsleitar
byggir á skipulagi og mætingu til leitar.
Þriggja ára mæting var 82% á tímabilinu
1988-19923 en 3,5 árs mæting var 71% á
tímabilinu 2009-2013 og 69% á tímabilinu
2014-2018.7 Í gögnum Leitarstöðvar eru
ástæður minnkandi mætingar raktar til
breyttra þjóðfélagshátta, aðallega í kjöl-
far bankahrunsins 2008, en nýleg rann-
sókn Leitarstöðvar bendir til að lækkun
skoðunargjalds geti komið að gagni. Í
kjölfar tillagna skimunarráðs um flutning
leghálskrabbameinsleitar til heilsugæsl-
unnar ákvað ráðherra að lækka skoðunar-
gjaldið hjá þeim sem mæta í skoðun til
heilsugæslunnar og verður fróðlegt að sjá
áhrif þeirrar ákvörðunar.
Það var stefna Leitarstöðvar fram til
ársins 2013 að stíga varlega til jarðar og
undirbyggja allar breytingar á fram-
kvæmd leitarinnar með rannsóknum á
eigin efniviði frekar en að treysta í blindni
á niðurstöður erlendra rannsókna. Má
í því sambandi vitna til heimilda um
innlendar rannsóknir sem fram koma í
tilvitnaðri yfirlitsgrein,3 auk síðari rann-
sókna á næmi vökvasýna8 og árangurs-
mati brjóstakrabbameinsleitar hjá konum
40-69 ára.9
Af umsögn þeirra erlendu fagaðila sem
hér er vitnað til má greina að þessi að-
ferðafræði hefur sannað gildi sitt og þykir
því athyglisvert að skimunarráð og aðrir
álitsgjafar hins opinbera6 vitna ekki til
íslenskra rannsókna3,9 en kjósa frekar að
styðjast við erlendar rannsóknir, sem vek-
ur spurningar um tilgang eigin athugana.
Eftir 2013 varð sú stefnubreyting að
þáverandi stjórnendur leitarsviðs ákváðu
að leggja af rannsóknir á eigin efniviði og
treysta eingöngu niðurstöðum erlendra
rannsókna.7 Frá þeim tíma hafa ekki
borist nein fræðileg uppgjör frá Leitarstöð
Krabbameinsfélagsins.
Ef þessi ákvörðun hefur áhrif á söfnun
upplýsinga í gagnabanka Leitarstöðvar
yrði það afar óheppilegt með tilliti til út-
tektar á árangri þeirra skipulagsbreytinga
sem framkvæmdar voru í ársbyrjun 2014,
breytinga skimunarráðs sem tóku gildi
um síðustu áramót og mats á áhrifum
HPV-bólusetninga 12 ára stúlkna sem
hófust í september 2011.
Það má þó væntanlega horfa fram á
betri tíma þar sem Embætti landlæknis
hefur nú tekið yfir gagnabanka Leitar-
stöðvar og mun tíminn leiða í ljós hvort
nýtt skipulag skimunarráðs með dreifðri
framkvæmd og stjórnun leitarinnar
auk útvistunar grunnrannsókna leg-
hálskrabbameinsleitar til erlendra aðila
verði farsælli fyrir íslenskar konur.
Heimildir
1. IARC working group on evaluation of cervical cancer
screening programmes. Monografi IARC on Cervical
Cancer screening Vol 10, IARC Press, Lyon 2005.
2. Sigurdsson K, Sigvaldason H. Effectiveness of cervical
cancer screening in Iceland, 1964-2002: a study on trends
in incidence and mortality and the effect of risk factors.
Acta Obstet Gynecol Scand 2006; 85: 343-9.
3. Sigurdsson K. Review: Cervical cancer: cytological
cervical screening in Iceland and implications of HPV
vaccines. Cytopathology 2010; 21: 213-22.
4. Farnsworth A. Cervical screening in the era of HPV
vaccination. Editorial. Cytopathology 2010; 21: 211-2.
5. Sigurdsson K. Quality assurance in cervical cancer
screening. The Icelandic experience1964-1993. Eur J
Cancer 1995; 31A: 728-34.
6. Stefánsdóttir Á. Hvers vegna á ekki að skima á aldrinum
40-49 ára fyrir brjóstakrabbameini? Læknablaðið 2021;
107: 65.
7. Sigurðsson K, Geirsson RT. Breytt skipulag krabba-
meinsleitar - Stöðumat á tímum nýrra áskoranna.
Læknablaðið 2020; 106: 216-8.
8. Sigurdsson K. Is liquid-based cytology more sensitive
than a conventional Pap smear? Cytopathology 2013; 24:
254-63.
9. Sigurdsson K, Olafsdottir EJ. Population-based service
mammography screening: the Icelandic experience.
Breast Cancer (Dove Med Press) 2013; 5: 17-25.