Læknablaðið - 01.03.2021, Side 52
164 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
Á öðrum stað hér í blaðinu er sagt frá
rannsóknum á heysjúkdómum á Íslandi
um síðustu aldamót. Þegar búið var að
greina helstu orsakavalda þessara sjúk-
dóma í heyinu var komið að því að rann-
saka útbreiðslu þeirra hjá fjölskyldum
bænda. Okkur var kunnugt um að bænd-
ur undir Eyjafjöllum og í Mýrdal þurrk-
uðu megnið af heyforðanum þótt úrkoma
væri þar mikil, en bændur á Ströndum
hirtu mest allt sitt hey í vothey þótt þar
væri minnsta úrkoma á landinu. Það þótti
áhugavert að bera saman þessa ólíku
heyskaparhætti til að sjá hvort þeir hefðu
áhrif á algengi heysjúkdómanna.
Það var ákveðið að við Tryggvi Ás-
mundsson lungnalæknir færum norður
á Strandir til að heimsækja bændur. Við
höfðum búið til nokkuð ítarlega spurn-
ingalista sem lagðir skyldu fyrir alla
þátttakendur, og svo átti að gera húðpróf
á þeim sem höfðu einhver einkenni sem
gátu bent til ofnæmis, og einnig skyldi
dregið úr þeim blóð.
Við Tryggvi hugðumst fara norður
þegar við yllum sem minnstu ónæði fyrir
bændur og völdum tímann kringum 20.
september, þegar heyskap og garðyrkju-
störfum væri lokið, en réttir ekki hafnar.
Ég hafði dálitlar áhyggjur af farartæki til
fararinnar, en Tryggvi fullvissaði mig um
að það væri alger óþarfi, hann hefði góðan
bíl sem kæmist hvert sem væri, jafnvel
þótt vegir væru illfærir af aurbleytu eða
snjókomu. Hann sótti mig á bílnum á
umsömdum degi. Ég sá þá að farartækið
var Lada Sport og lét í ljós efasemdir um
ágæti þess, en Tryggvi fullyrti glaðbeittur
að rússneska stálið myndi ekki bregð-
ast okkur. Ferðinni var fyrst heitið til
Hólmavíkur og ég man ekki til þess að
neitt markvert gerðist á leiðinni. Ég man
þó að Tryggvi trúði mér fyrir því að ef
Ö L D U N G A D E I L D I N
Rannsóknarferð á
Strandir árið 1983
okkur yrði boðinn siginn fiskur í matinn
í þessari ferð yrðum við að afþakka það
staðfastlega því hann væri næstum það
eina sem hann gæti ekki hugsað sér að
borða. Mér þótti þetta slæmt, því fátt læt-
ur mér betur í munni en sjósiginn fiskur
með góðum vestfirskum hnoðmör.
Það var meiningin að gista fyrstu næt-
urnar á Hótel Hólmavík og hafa aðstöðu
í heilsugæslunni. Voru bændur og þeirra
fólk kallað þangað. Við höfðum gert lista
yfir alla sem átti að kalla í rannsóknina
og brugðust Strandamenn svo vel við að
aðeins þrír létu sig vanta af þeim sem
til náðist. Þegar við höfðum lokið við að
rannsaka fólk á syðri hluta svæðisins
höfðum við móttöku í samkomuhús-
inu á Drangsnesi fyrir þá sem bjuggu
norðanvert við Steingrímsfjörð. Þar voru
húðprófin gerð upp á sviði meðan aðrir
svöruðu spurningalistum niðri í salnum,
og þótti fólkinu þetta dágóð tilbreyting frá
hversdagsleika daganna. Frá Bjarnarfirði
og norður úr var ákveðið að heimsækja
hvern bæ og gista í skólahúsinu á Finn-
bogastöðum.
Það var nokkuð seint um kvöldið, á
leiðinni þangað, að við fengum beiðni
um að koma í vitjun. Þegar hér var komið
sögu vissu sjálfsagt allir í sýslunni um
ferðir okkar, og þegar bóndi nokkur veikt-
ist með köldu, háum hita og andþyngslum
þótti bera vel í veiði að tveir sérfræðingar
að sunnan skyldu vera á svæðinu. Þetta
var ungur maður og hraustlegur að sjá en
mjög heitur, rjóður í andliti og átti erfitt
með sig vegna hósta. Við höfðum verið
svo fyrirhyggjusamir að hafa með okk-
ur læknatösku. Þegar við höfðum lokið
skoðuninni vorum við sammála um að
hann væri með stóra lungnabólgu, vafa-
laust orsakaða af pneumococcum. Tryggvi
hringdi í ljósmóðurina sem geymdi lyfja-
búr hreppsins og mælti fyrir um góðan
skammt af penicillíni og parasetamól til
að lækka hitann. Áður en við kvöddum
horfðum við alvarlega á bóndann og sögð-
um að hann ætti að liggja í rúminu eina
til tvær vikur. Hann mætti þó fara á kló-
settið og nærast í eldhúsinu. Við vildum
auðvitað fylgjast með því hvernig honum
heilsaðist og seinni hluta næsta dags feng-
um við þær fréttir að hann hefði sést uppi
á heiði í morgunsárið að smala, en þá var
norðan strekkingur og slydduhraglandi á
heiðinni. „Hann þarf þá ekkert hitalækk-
andi,“ sagði Tryggvi heldur þurrlega.
Við vorum nú komnir norður í Tré-
kyllisvík. Þarna voru nokkrir bæir og
greinilega myndarlegur búskapur. Okkur
var sagt að skólahúsið á Finnbogastöðum
stæði autt, en skólastjórinn hafði flutt til
Reykjavíkur nokkrum dögum áður og
biðu okkar lyklar að húsinu í Árnesi. Við
fórum á þrjá eða fjóra bæi um kvöldið
en fórum snemma að sofa því okkar beið
ærið verkefni næsta dag.
Eftir morgunverð með jógurt, ristuðu
brauði og kaffi sem við útbjuggum okkur í
skólaeldhúsinu lögðum við af stað.
Rétt um hádegið komum við að Kross-
nesi. Ég sá strax að þarna byggi myndar-
fólk, en það sem gladdi mig sérstaklega
var að eldhúsið ilmaði yndislega af sign-
um fiski og annarri lykt sem ég gat ekki
komið fyrir mig en vakti forvitni mína.
Ég þóttist viss um að okkur yrði boðið
í matinn og vonaði að okkur yrði ekki
kynntur matseðillinn fyrr en við værum
sestir að borðum. En þar varð mér ekki að
ósk minni. Hjónin buðu okkur að borða,
en sögðust ekki hafa átt von á gestum; og
þau væru bara með siginn fisk í pottinum
og saltað selsspik sem viðbit. Ég vissi að
best væri að segja sem minnst en Tryggvi
þakkaði innilega fyrir boðið, en sagði að
Davíð Gíslason
Ofnæmislæknir