Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 7
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 227 R I T S T J Ó R N A R G R E I N ATTR-CM = transtýretín mýlildis hjartavöðvakvilli (transthyretin amyloid cardiomyopathy) ATTR-CM ER LÍFSHÆTTULEGUR SJÚKDÓMUR Fyrsta og eina samþykkta meðferðin hjá sjúklingum með villigerðar eða arfgengan transtýretín mýlildis hjartavöðvakvilla (ATTR-CM) PFI-22-02-01 / PP-VYN-NOR-0068 Febrúar 2022 ©Pfizer Inc. VYNDAQEL HYLKI TIL INNTÖKU GETA HJÁLPAÐ SJÚKLINGUM AÐ LIFA LENGUR MEÐ FÆRRI SJÚKRAHÚSINNLÖGNUM1,2 Vyndaqel (tafamidis) 61 mg mjúk hylki Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi þess komist fljótt og örugglega til skila. Tilkynna skal Lyfjastofnun um allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu. Ábendingar: Vyndaqel er ætlað til meðferðar við villigerðar (wild-type) eða arfgengu transtýretín mýlildi (transthyretin amyloidosis) hjá fullorðnum sjúklingum með hjartavöðvakvilla (ATTR-CM). Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Nálgast má upplýsingar um lyfið og samantekt á eiginleikum þess, fylgiseðil, verð og greiðsluþátttöku á vef Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.is Markaðsleyfishafi: Pfizer Europe MA EEIG. Samantekt á eiginleikum lyfs (SmPC): 31. desember 2021. Sá sem ávísar lyfinu þarf að hafa kynnt sér fræðsluefni (RMP) fyrir lyfið áður en notkun lyfsins hefst. Ef óskað er eftir fræðsluefni eða frekari upplýsingum má hafa samband við umboðsaðila: Icepharma hf., Lynghálsi 13, 110 Reykjavík, sími 540 8000. ATTR-CM = transthyretin amyloid cardiomyopathy NÚ MEÐ GREIÐSLUÞÁTTTÖKU 1. Maurer MS, Schwartz JH, Gundapaneni B, et al. Tafamidis treatment for patients with transthyretin amyloid cardiomyopathy. N Engl J Med. 2018;379(11):1007-1016. 2. SmPC 31. desember 2021 www.serlyfjaskra.is Sigríður Björnsdóttir innkirtla- og efnaskipta- læknir, Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, og Hjartamiðstöðinni í Kópavogi Sigridur.bjornsdottir@ki.se Aukning hefur orðið í fjölda grænkera/grænmetisæta en ekki virðast vera góðar vísbendingar sem sýna aukna tíðni fylgikvilla á meðgöngu hjá þeim hópi. doi 10.17992/lbl.2022.05.688 Góð næring á meðgöngu er mikilvæg fyrir eðlilegan vöxt og þroska barns í móðurkviði. Hún stuðlar að heilbrigði barnsins síðar á ævinni og er einnig mik- ilvæg fyrir heilsu og vellíðan móður á meðgöngu. Sum vítamín og næringarefni eru sérstaklega mikil- væg á meðgöngu. Kalkþörf móður eykst mjög á meðgöngu vegna uppbyggingar beina fósturs. Þessari auknu þörf er svarað með aukinni upptöku kalks og fosfórs frá þörmum en D-vítamín er nauðsynlegt til að auka slíka upptöku. Vegna veðurfars á Íslandi er myndun D-vítamíns í húð ófullnægjandi og þarf að fá það úr mat. Helstu fæðutegundir sem innihalda D-vítamín eru lýsi og feitur fiskur. Vanstarfsemi skjaldkirtils móðurs getur haft áhrif á heila- og taugaþroska fóstursins þar sem skjaldkirtill fósturs hefur ekki framleiðslu á hormónum fyrr en á 13. viku en full framleiðsla verður á 19.-20. viku meðgöngu.1 Þangað til er fóstrið háð skjaldkirtilshormónum frá móð- ur. Joð er mikilvægt fyrir eðlilega starfsemi skjald- kirtils, en joð er aðallega að finna í fiski, mjólk og mjólkurvörum. Á meðgöngu eykst þörf fyrir járn til að viðhalda eðlilegum blóðhag móður. Járn er mest í kjöti og einnig í fiski, belgjurtum, grænmeti og hnetum. Fólat er mikilvægt næringarefni á með- göngu, skortur getur aukið líkur á alvarlegum skaða á miðtaugakerfi fósturs. Grænmeti, korn, hnetur og baunir eru dæmi um fæðutegundir sem innihalda fólat. Nýlega kom út könnun Embættis landlækn- is og Rannsóknarstofu í næringarfræði við Há- skóla Íslands á mataræði Íslendinga árin 2019- 2021.2 Könnunin sýndi að einungis 2% Íslendinga borða ráðlagðan dagsskammt (að minnsta 500 gr) af grænmeti og ávöxtum. Einnig kom fram að D-vítamín neysla þeirra sem ekki taka lýsi eða ann- an D-vítamíngjafa er langt undir ráðlögðum dags- skammti (15-20 míkrógrömm (600-800 IE) á dag). Joðneysla hefur einnig minnkað um 20% að með- altali frá síðustu síðustu landskönnun frá árun- um 2010-2011, fyrst og fremst í yngsta aldurshópi kvenna (18-39 ára). Var það talið skýrast af minni mjólkurneyslu og lítilli fiskneyslu. Járnneysla hefur minnkað frá síðustu landskönnun og engin kona á barneignaaldri nær ráðlögðum dagsskammti fyr- ir járn (15 mg á dag). 12% kvenna á barneignaaldri Þurfum við að hafa áhyggjur af næringu kvenna á meðgöngu? taka inn fæðubótaefni sem inniheldur fólat, en öll- um konum á barneignaaldri er ráðlagt að taka fólat sem fæðubótarefni. Einungis 1% þátttakenda í hópi kvenna 18-39 ára nær að fylgja ráðleggingum um tvær til þrjár fiskmáltíðir á viku. Þetta er umhugs- unarefni þar sem fiskur og fiskafurðir eru næringar- ríkar af próteini, joði, járni, D-vítamíni og ómega-3 fitusýrum. Jákvætt er að heildarneysla kolvetna og viðbætts sykurs hefur minnkað hjá Íslendingum. Þrátt fyrir það fer algengi meðgöngusykursýki hratt vaxandi og höfðu tæplega 19% kvenna sem fæddu á Landspítala á árinu 2018 meðgöngusykursýki.3 Rannsókn Ellenar A. Tryggvadóttur og félaga sem birt er í þessu tölublaði Læknablaðsins skoðar neyslutíðni matvæla og bætiefna og fylgni við styrk langra ómega-3 fitusýra í blóðvökva barnshafandi kvenna. Þar kemur meðal annars fram að 35% barns- hafandi kvenna borða fisk, eina helstu fæðuupp- sprettu langra ómega-3 fitusýra, að minnsta kosti tvisvar sinnum í viku í samræmi við ráðleggingar Embættis landlæknis. Helming- ur af hinum 65% barnshafandi konunum tóku einhver bætiefni með ómega-3. Neysla matvæla og bætiefna sem innihalda ómega-3 fitusýrur endurspeglaðist í styrk þeirra í blóðvökva. Hins vegar var engin fylgni á milli neyslutíðni ís- lensks fjölvítamíns fyrir þungaðar konur sem inniheldur ómega-3 og styrks þess í blóðvökva. Aukning hefur orðið í fjölda grænkera/græn- metisæta en ekki virðast vera góðar vísbendingar sem sýna aukna tíðni fylgikvilla á meðgöngu hjá þeim hópi.4,5 Það er áhyggjuefni að mataræði kvenna á barn- eignaaldri á Íslandi uppfyllir ekki næringarþörf fyrir mikilvæg efni eins og D-vítamín, joð, járn og fólat. Mikið úrval er af bætiefnum á markaði og þurfa neyt- endur að vanda valið út frá mataræði og sérþörfum eins og við þungun. Neytendur eru illa upplýstir um þörfina. Ef þeir kynna sér hana ekki og innihaldslýs- ingar bætiefna má búast við næringarskorti. Land- læknir hefur gefið út góðar almennar leiðbeiningar um mataræði á meðgöngu. Mikilvægt er að kynna þær öllum þunguðum konum. Sigríður Björnsdóttir, MD. PhD, Specialist in Endocrinology and Diabetes. Department of Endocrinology, Karolinska University Hospital, Stockholm, Sweden. Hjartamidstodin, Kopavogur, Iceland Do we need to worry about maternal nutrition during pregnancy? Heimildir 1. Burrow GN, Fisher DA, Larsen PR. Maternal and fetal thyroid function. N Engl J Med 1994; 331: 1072. 2. Hvað borða Íslendingar? Könnun á mataræði Íslendinga 2019-2021. landlaeknir.is/servlet/file/store93/item49171/Hvadbordaislendingar_vefur_endan- legt.pdf - apríl 2022. 3. Júlíusdóttir ÞJ, Hrafnkelsson H, Bjarnadóttir RI, et al. Meðferð með hreyfiseðli í kjölfar meðgöngusykursýki. Læknablaðið 2019; 105: 555-60. 4. Wang Z, Zhao S, Cui X et al. Effects of Dietary Patterns during Pregnancy on Preterm Birth: A Birth Cohort Study in Shanghai. Nutr 2021; 13: 2367. 5. Yisahak, SF, Hinkle SN, Mumford SL et al. Vegetarian diets during pregnancy, and maternal and neonatal outcomes. Int J Epidemiol 2021; 50: 165-78.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.