Læknablaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 13
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 233
R A N N S Ó K N
starfsemi fyrir aðgerð. Mynd 1 sýnir skiptingu sjúklinga í hópa
eftir gaukulsíunarhraða fyrir aðgerð með KDIGO-stigun til hlið-
sjónar, en 1871 (81,3%) voru í viðmiðunarhópi, 296 (12,9%) í GSH
45-59 hópi, 92 (4,0%) í GSH 30-44 hópi og 41 (1,8%) í GSH <30 hópi.
Í töflu I eru bakgrunnsþættir GSH-hópanna bornir saman. Sjúk-
lingar með skerta nýrnastarfsemi reyndust marktækt eldri, oftar
konur og EuroSCORE II hærra (10,3 í hópi 3 á móti 1,9 í viðmiðun-
arhópi) og hækkaði það með lægri gaukulsíunarhraða (p<0,001).
Þessir sjúklingar voru einnig með útbreiddari kransæðasjúkdóm,
oftar með vinstri höfuðstofnsþrengsl og höfðu meiri einkenni frá
hjarta en sjúklingar í viðmiðunarhópi. Sést það meðal annars á
hlutfalli sjúklinga í CCS-flokki 4 sem jókst með lækkandi gaukulsí-
unarhraða, (p<0,001). Útfallsbrot vinstri slegils reyndist einnig
lækka með lækkandi gaukulsíunarhraða og blóðrauði var mark-
tækt lægri hjá sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi, eða 120 g/L
að meðaltali borið saman við miðað við 142 g/L í viðmiðunarhópi.
Tafla I. Samanburður á bakgrunnsþáttum milli gaukulsíunarhraðahópa (GSH) (ml/mín/1,73m2). Fjöldi (%) eða meðaltal ± staðalfrávik (SD).
Allir
(n=2300)
Viðmið*
(n=1871)
GSH 45-59
(n=296)
GSH 30-44
(n=92)
GSH <30
(n=41)
P-gildi
Kyn (karlkyn) 1898 (82,5) 1594 (85,2) 215 (72,6) 59 (64,1) 30 (73,2) <0,001
Aldur 66,5 ± 9,3 65,4 ± 9,2 71,0 ± 7,3 73,6 ± 8,3 71,4 ± 10,8 <0,001
Líkamsþyngdarstuðull (kg/m2) 28,4 ± 4,5 28,4 ± 4,4 28,5 ± 4,8 28,4 ± 4,2 28,1 ± 5,8 0,978
EuroSCORE II 2,5 ± 3,4 1,9 ± 2,3 4,0 ± 5,0 5,7 ± 5,1 10,3 ± 8,7 <0,001
CCS-flokkur 4 931 (40,5) 738 (39,4) 124 (41,9) 43 (46,7) 26 (63,4) 0,009
NYHA-flokkur 4 401 (17,4) 298 (15,9) 67 (22,6) 17 (18,5) 19 (46,3) <0,001
Nýlegt hjartaáfalla 564 (24,5) 429 (22,9) 91 (30,8) 28 (30,4) 16 (39,0) 0,002
Langvinn lungnateppa 170 (7,4) 115 (6,2) 41 (13,9) 8 (8,7) 6 (14,6) <0,001
Takttruflanir 262 (11,4) 183 (9,8) 58 (19,7) 15 (16,3) 6 (14,6) <0,001
Hjartabilun 190 (8,3) 118 (6,3) 48 (16,3) 11 (12,0) 13 (31,7) <0,001
Lokusjúkdómur 86 (3,7) 52 (2,8) 19 (6,4) 6 (6,5) 9 (22,0) <0,001
Saga um kransæðavíkkunb 544 (23,7) 439 (23,5) 70 (23,7) 22 (23,9) 13 (31,7) 0,679
Útfallsbrot vinstri slegils <0,001
>50% 1442 (64,7) 1216 (67,0) 167 (58,0) 42 (48,3) 17 (42,5)
>30% og ≤50% 670 (30,1) 518 (28,6) 95 (33,0) 39 (44,8) 18 (45,0)
≤30% 117 (5,2) 80 (4,4) 26 (9,0) 6 (6,9) 5 (12,5)
Þriggja æða sjúkdómur 1861 (80,9) 1495 (79,9) 253 (85,5) 78 (84,8) 35 (85,4) 0,084
Vinstri höfuðstofnsþrengsli 964 (41,9) 772 (41,3) 122 (41,2) 43 (46,7) 27 (65,9) 0,012
Blóðrauði fyrir aðgerð 140,7 ± 15,3 142,5 ± 13,8 136,2 ± 17,1 127,1 ± 21,2 119,8 ± 15,0 <0,001
*Viðmiðunarhópur: GSH ≥60 ml/mín/1,73m2.
aNýlegt hjartaáfall var skilgreint sem hjartaáfall innan 90 daga fyrir aðgerð. bKransæðavíkkun með eða án stoðnets.
Mynd 1. Skipting sjúklingahópsins (n=2300)
í fjóra hópa eftir gaukulsíunarhraða (mL/
mín/1,73m2). Viðmiðunarhópur: GSH ≥60 mL/
mín/1,73m2.