Læknablaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 39
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 259
Dagur í lífi læknis
06:21 Sony útvarpsvekjaraklukkan sem
ég fékk í fermingargjöf 1979 hringir. Hún
er stillt 9 mínútum of fljótt þannig að hún
sýnir 06.30. Ástæðan fyrir því er sú að í
henni er innbyggt 9 mínútna snús, þannig
að ef mér dytti í hug að snúsa (sem gerist
sjaldan) vakna ég samt 06.30.
06:35 Ég vakna í bílnum. Bý í Grjóta-
þorpinu og vinn á HVE á Akranesi. Búinn
að vinna þar í 20 ár. Frábær vinnustaður.
Samstarfsfólkið frábært og ekkert rotið
epli, sem er mjög mikilvægt á svo lítilli
einingu. Í dag er þriðjudagur og þá er ég á
bakvakt og gisti á Skaganum.
07:00 Í botni Kollafjarðar. Dagurinn
lofar góðu. Ef ég er í botni Kollafjarðar
þegar sjöfréttirnar byrja á Rás eitt boðar
það gott. Ég reyni þess vegna að vera
nákvæmlega í botninum klukkan sjö. Ef
ég er snemma í því hægi ég á mér en gef
aðeins í ef ég er seinn.
07:20 Mæti til vinnu. Fæ mér fyrsta
kaffibollann úr Nespressovél sem ég er
með á skrifstofunni. Fer yfir pósta og fer í
gegnum sjúklinga deildarinnar auk þess
sem ég skoða aðgerðarsjúklinga dagsins.
Enda á fréttamiðlum. Ekkert nýtt, stríð.
08:00 Fer upp á skurðstofu og skipti um
föt og ræði við fyrsta aðgerðarsjúkling
dagsins sem er fimmtugur maður með
nárakviðslit.
08:15 Stofugangur. Þekki flesta sjúk-
linga og enginn alvarlega veikur. Stofu-
gangurinn tekur 25 mínútur.
08:45 Kaffi í matsalnum. Ég borða ekki
morgunmat. Kaffi- og matartímar eru
mjög mikilvægir á litlu landsbyggðar-
sjúkrahúsi. Þar hittumst við læknarnir,
förum yfir málin og gefum hvort öðru ráð
og styrk.
08:55 Fyrsta aðgerð dagsins gengur vel.
TEP-aðgerð sem er nárakviðslitsaðgerð
með holsjá. Rútínuaðgerð sem ég geri
mjög mikið af. Eftir að hafa rætt við næsta
aðgerðarsjúkling skoða ég mann á bráða-
móttökunni með kandídatnum (ég hef
ekki tileinkað mér að nota orðið sérnáms-
grunnslæknir, það fer ekki vel í munni).
Maðurinn fékk slípirokk í höndina, risp-
aði aðeins í vöðvann en hreyfingar og
skyn í lagi.
09:55 Önnur aðgerð dagsins, nárakvið-
slit beggja vegna. Aðgerðin gengur vel.
Ræði við þriðja aðgerðarsjúkling dagsins
sem er fertug kona með gallsteina með
slæmum endurteknum verkjaköstum.
Aðgerðin gengur vel. Diktera og fer yfir
blóðprufur og rannsóknir inniliggjandi
sjúklinga.
11:10 Þriðja aðgerð dagsins. Gallkögun
sem gengur vel. Greinilega krónískar
bólgubreytingar og samvextir í kringum
gallblöðru. Diktera og ræði við fjórða að-
gerðarsjúklinginn sem er rúmlega tvítug-
ur smiður með stórt nárakviðslit.
12:15 Fjórða aðgerð dagsins. TEP-að-
gerð. Gengur vel. Stórt hliðlægt kviðslit, í
raun opin processus vaginalis, þurfti því að
taka í sundur sekkinn. Diktera aðgerða-
lýsingu og ræði við fimmta og síðasta
aðgerðarsjúkling dagsins. Unglingur með
tvíburabróður (sinus pilonidalis). Löng saga
um endurteknar sýkingar og ígerðir. Öm-
urlegur kvilli. Er oft í ættum og árangur
aðgerða er lélegur með hárri tíðni endur-
komu.
12:50 Hádegismatur. Mötuneytið okkar
er framúrskarandi. Frábær kokkur og
starfsfólk. Fiskur þrisvar í viku, alltaf
ferskur og góður. Er aðeins of seinn í mat
í dag, flestir búnir að borða.
13:50 Síðasta aðgerð dagsins. Ung-
lingurinn með tvíburabróðir. Aðgerðin
gengur vel og þetta lítur mjög vel út í lok
aðgerðar. Ég er eldri en tvævetur í þessu
og veit því að það segir ekkert um fram-
haldið. Hann gæti verið kominn til mín
aftur með endurkomu eftir nokkrar vikur
en vonandi grær þetta vel. Diktera og
skoða sjúkling með kandídatnum á bráða-
móttökunni.
15:00 Eftirmiddagskaffi. Mjög mikil-
vægur hluti af vinnunni og flestir læknar
reyna að mæta. Það er farið yfir daginn og
rætt um dægurmál.
16:00 Eftir að hafa farið upp á deild
og athugað hvort allt sé í lagi fyrir vakt-
ina, fer ég yfir í íbúðina mína sem er á
sjúkrahús lóðinni og undirbý mig fyrir
æfingar kvöldsins.
17:00 Hljómsveitaræfing Handyman
sem er starfsmannahljómsveit sem hefur
starfað við stofnunina í 15 ár. Þar spila
ég á bassa og syng. Við erum að æfa fyrir
mjög stórt gigg í maí. Þetta verður fyrsta
post-covid giggið og við reiknum með
5-600 manns. Við erum danshljómsveit
og auk þess að æfa gömul lög förum við
sérstaklega yfir „stórar spurningar“ með
Birni og Páli Óskari og „Mér er drull“
með Flott. Við gerum okkur nefnilega
grein fyrir því að þó við séum allir á
sextugs- og sjötugsaldri verðum við að
vera „current“. Starfsfólkið á stofnuninni
yngist meðan við eldumst.
19:00 Sæki Dómínóspizzuna. Kosturinn
við að vera alltaf á bakvakt á þriðjudögum
er þriðjudagstilboð Dómínós.
19.30 Æfing byrjar í kirkjukór Akraness.
Við erum að æfa Requiem eftir Faure og
Fuglakabarett eftir Hjörleif Hjartarson og
Daníel Þorsteinsson sem er frábærlega
skemmtilegt verk.
21:30 Kem við á deildinni og skoða einn
sjúkling með kviðverki. Fylgjumst með
honum. Endurmat og nýjar blóðprufur í
fyrramálið. Bakvaktin er búin að vera ró-
leg. Komst í gegnum báðar æfingarnar án
truflunar. Bakka í sjónvarpinu og horfi á
leik í Evrópukeppninni.
00.00 Fer að sofa. Er ekki vakinn. Góð
vakt.
Fritz H. Berndsen
kviðarholsskurðlæknir, yfirlæknir, handlækningadeild HVE Akranesi
Fyrsta aðgerð dagsins á Skaganum.
Fanney Svala skurðhjúkrunarfræðingur
tók myndina.