Læknablaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 31
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 251
lækna um bætt heilbrigðiskerfi. Undir-
skriftirnar voru afhentar yfirvöldum á sól-
ríkum degi í júní í fyrra.
„Ég var ekki vinsælastur í Skaftahlíð
eða stjórnarráðinu,“ segir hann. „Svo
gerðist eitthvað. Storminn lægði og allt
datt í logn. Mér leið eins og misheppnaðri
sögupersónu Cervantes. Lenti eins og Don
Kíkóti í tilvistarkreppu. Allar vindmyllur
fallnar. Forstjóri farinn, ráðherra farinn,
breytingar í Læknafélaginu og allt í einu
gat ég hugsað um mig á mínum forsend-
um.“ Fimm ára áætlunin hans hafi skotið
upp kollinum.
„Ég gat metið hvar ég stóð, hverju ég
hefði komið í verk og ég varð fyrir svo
miklum vonbrigðum. Mér fannst ég hafa
brugðist litlu sjúklingunum mínum að
koma þjónustunni fyrir þá ekki á legg og
þegar ég tók þetta upp fannst mér ekki á
mig hlustað. Ég fór að hugsa: Af hverju
er ég á Landspítala ef ég get ekki sinnt
börnunum sem ég brenn fyrir og vil sinna
almennilega?“ Þótt reynslu hans hafi vant-
að á Íslandi, hafi hún ekki verið nýtt sem
skyldi.
Þriðja kynslóð á spítalanum
„Mér fannst ég hafa lent á vegg. Ég endur-
skoðaði val mitt. Ég er þriðja kynslóð
heilbrigðisstarfsmanna á Landspítala. Ætla
ég að vera þar, eins og ég hélt alltaf að ég
yrði, eða er kominn tími til þess að ég prófi
eitthvað nýtt?“
Afi hans, Theódór Skúlason, hjarta- og
innkirtlalæknir, kom úr læknanámi frá
Danmörku með bátnum Frekjunni í seinni
heimsstyrjöldinni árið 1940. Mamma hans,
Auður Ingibjörg Theodórs, var meinatækn-
ir í Blóðbankanum og pabbi hans, Sigurður
Helgi Björnsson, forstöðumaður launa- og
starfsmannamála spítalans um árabil.
„Báðir foreldrar mínir voru miklir
unnendur spítalans,“ segir hann. „Ég er
stofnanabarn í húð og hár. Kom í heiminn
á Landspítala með keisara. Var á leikskóla
spítalans og hef unnið flest störf sem hægt
er að vinna á Landspítala; allt frá því að
skúra og sjá um umönnun sjúklinga, vinna
með pípulagningamönnum, rafvirkjum
og smiðum við niðurbrot og uppsetningu
legudeilda og skurðstofa, jafnvel ein jólin
við eldamennsku í eldhúsinu. Svo á end-
anum læknir eins og ég ákvað snemma.“
V I Ð T A L
Theódór Skúli er kominn á fullt eftir þriggja mánaða
veikindaleyfi. Hann stefndi í kulnun vegna álagsins
og varð að rétta kúrsinn til að geta haldið áfram.
Mynd/gag