Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 35

Læknablaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 35
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 255 Philippe Grandjean, prófessor í umhverfislæknisfræði, hvetur lækna til að láta til sín taka gegn mengun, því ekki sé ávinningur af heilsusamlegu líferni í óheilbrigðu umhverfi. Mynd/Jacob Rosenvinge V I Ð T A L komandi kynslóða og miðað við vanda- málin sem við sköpum núna þurfum við virkilega að stóla á að gáfað fólk taki við stjórnartaumunum svo það leysi úr þess- um vanda.“ Ekki borða efst úr fæðukeðjunni Vert er að spyrja hvort hann hvetji þá fólk til þess að forðast sjávarfang? „Nei, ég er læknir. Ég mæli með sjávarfangi í matar- æðinu. Við þurfum fiskiolíuna, d-vítamín- ið og selen. En nú er mælt með að borða frekar það sem liggur lágt í fæðukeðjunni. Borðaðu frekar smærri fisk en þann stærri – flundru og makríl í stað lúðu og túnfisks.“ Grandjean segist finna að áhugi fólks á umhverfisvernd hafi stóraukist. Hann voni að þekkingin á áhrifum mengunar á heilsu okkar og líkama hvetji yfirvöld á endanum enn frekar til að draga úr meng- un. Í hittifyrra hafi Matvælaöryggisstofn- un Evrópu lækkað viðmiðunarmörk fyrir PFAS í drykkjarvatni fimmtíufalt. „Það er fáheyrt og sýnir að við höf- um horft framhjá vandanum sem veldur þessari áhrifaríku ákvörðun. Það sýnir líka hvað yfirvöld hafa brugðist seint við vandanum.“ Hann leggur áherslu á að það sé ekki nóg sem læknir að hvetja fólk til heilsusamlegs lífernis. „Heilbrigðissamfélagið hefur gert of lítið til að hvetja yfirvöld til athafna til að vernda umhverfið og snertingu fólks við skaðleg efni. Við erum í stöðugri snertingu við þessi PFAS-efni og öndum þeim að okkur eða innbyrðum án þess að vita það. Við höfum því þessi efni í líkam- anum enda snertileiðirnar margar og hef- ur ekkert með heilbrigðan lífsstíl að gera.“ Grandjean segir erfitt fyrir lækna að segja sjúklingum sínum að passa sig á umhverfinu. „Það er miklu auðveldara að segja við skjólstæðinginn: Nú er ráð að fara í langa göngu. Minnst 5 daga vikunn- ar. Venja hann á heilsusamlegan lífsstíl, en góð heilsa er líka spurning um heilbrigð- an búskap. Mengun í vatninu og matnum og í neysluvörum hefur þar áhrif.“ En getur hann þá gefið einföld ráð, eins og að sleppa meðhöndlaðri vefnaðarvöru eða skordýraeitri, plastflöskum? „Það eru engar einfaldar reglur aðrar en gagnrýnin hugsun: Ef þú vilt kaupa nýjan sófa, ný ílát fyrir örbylgjuofninn, spurðu þá sölu- manninn hvort þau innihalda truflandi efni. Í flestum tilfellum færðu engin svör í verslunum en því fleiri sem spyrja því meiri verður krafan á framleiðandann um svör. Þannig myndast þrýstingur.“ Þannig hafi það verið þegar ljóst varð að plastpelar barna innihéldu hormóna- raskandi efnið BPA. „Ekkert gerðist þegar greint var frá þessum niðurstöðum en þegar neytandinn spurði um málið í stór- mörkuðum, eins og til dæmis í Walmart, tóku þeir vöruna úr hillum. Það var vegna þrýstings frá neytendum en ekki vegna gjörða yfirvalda,“ segir hann og heldur áfram. Fólk treysti læknum „Við læknar þurfum að bindast skjól- stæðingum okkar traustari böndum og styðja þá í kröfunni um heilbrigðara umhverfi, því ef við gerum það ekki er engin innistæða fyrir því að krefja þá um heilbrigðan lífsstíl,“ segir Grandjean. „Við verðum að tryggja að samkomulag sé um að við séum ekki útsett fyrir mengun í umhverfi okkar.“ Læknar búi yfir mikilvægri þekkingu því þeir geti gert áhættumat. „Við getum rannsakað áhrifin. Svo treysta sjúklingar okkur, því við viljum þeim það besta. Þannig að ef við stígum inn og leiðbein- um um notkun kemískra efna munum við öll sjá ávinning, skjólstæðingar okkar og heilbrigðiskerfið.“ Það sé ekki lengur forsvaranlegt að setja heilsuna í hendur skjólstæðinganna. „Það sem við sögðum í fortíðinni – að fólk ætti bara að lifa heilsusamlegar, á ekki lengur við eitt og sér nema umhverfið sé þannig að fólk geti það. Það á ekki að bjóða fólki upp á kemískt umhverfi sem skaðar efnaskiptin og hormónabúskap- inn.“ Heimild: Grandjean P, Timmermann CAG, Kruse M, et al. Severity of COVID-19 at elevated exposure to perfluorinated alkylates. PLoS ONE 2020; 15: e0244815. Mengun skaðar heilann „Vandinn við uppruna ADHD er sá að flestir horfa í gjörðir barnanna en skýringuna á hegðuninni er ekki að finna þar heldur jafnvel frekar fyrir getnað þeirra,“ segir Philippe Grandjean, prófessor í umhverfislæknisfræði. „Barnið er greint og fær meðferð en forvarnirnar ættu að byrja löngu fyrr,“ segir hann og bendir á áhrif mengunar á fósturþroska. Hann hvetur til þess að fólk sýni gagnrýna hugsun við neyslu og forðist kemísk efni. En á fólk að vera áhyggjufullt vegna framtíðarinnar? „Við ættum að vera áhyggjufull yfir því sem við vitum ekki og ekki láta eins og allt sé öruggt. Við ættum að leggja áherslu á að vernda næstu kynslóðir og gjalda almennt varhug við nýjum kemískum efnum því þau eldri eru enn utan reglna. Fóstur eru svo viðkvæm. Þau eru að þróa líffæri og það verður ekki aftur snúið ef eitthvað fer úrskeiðis við myndun heilans.“

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.