Læknablaðið - 01.05.2022, Page 35
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 255
Philippe Grandjean, prófessor í umhverfislæknisfræði,
hvetur lækna til að láta til sín taka gegn mengun, því
ekki sé ávinningur af heilsusamlegu líferni í óheilbrigðu
umhverfi. Mynd/Jacob Rosenvinge
V I Ð T A L
komandi kynslóða og miðað við vanda-
málin sem við sköpum núna þurfum við
virkilega að stóla á að gáfað fólk taki við
stjórnartaumunum svo það leysi úr þess-
um vanda.“
Ekki borða efst úr fæðukeðjunni
Vert er að spyrja hvort hann hvetji þá fólk
til þess að forðast sjávarfang? „Nei, ég er
læknir. Ég mæli með sjávarfangi í matar-
æðinu. Við þurfum fiskiolíuna, d-vítamín-
ið og selen. En nú er mælt með að borða
frekar það sem liggur lágt í fæðukeðjunni.
Borðaðu frekar smærri fisk en þann
stærri – flundru og makríl í stað lúðu og
túnfisks.“
Grandjean segist finna að áhugi fólks
á umhverfisvernd hafi stóraukist. Hann
voni að þekkingin á áhrifum mengunar
á heilsu okkar og líkama hvetji yfirvöld á
endanum enn frekar til að draga úr meng-
un. Í hittifyrra hafi Matvælaöryggisstofn-
un Evrópu lækkað viðmiðunarmörk fyrir
PFAS í drykkjarvatni fimmtíufalt.
„Það er fáheyrt og sýnir að við höf-
um horft framhjá vandanum sem veldur
þessari áhrifaríku ákvörðun. Það sýnir
líka hvað yfirvöld hafa brugðist seint við
vandanum.“ Hann leggur áherslu á að
það sé ekki nóg sem læknir að hvetja fólk
til heilsusamlegs lífernis.
„Heilbrigðissamfélagið hefur gert of
lítið til að hvetja yfirvöld til athafna til
að vernda umhverfið og snertingu fólks
við skaðleg efni. Við erum í stöðugri
snertingu við þessi PFAS-efni og öndum
þeim að okkur eða innbyrðum án þess að
vita það. Við höfum því þessi efni í líkam-
anum enda snertileiðirnar margar og hef-
ur ekkert með heilbrigðan lífsstíl að gera.“
Grandjean segir erfitt fyrir lækna að
segja sjúklingum sínum að passa sig á
umhverfinu. „Það er miklu auðveldara að
segja við skjólstæðinginn: Nú er ráð að
fara í langa göngu. Minnst 5 daga vikunn-
ar. Venja hann á heilsusamlegan lífsstíl, en
góð heilsa er líka spurning um heilbrigð-
an búskap. Mengun í vatninu og matnum
og í neysluvörum hefur þar áhrif.“
En getur hann þá gefið einföld ráð, eins
og að sleppa meðhöndlaðri vefnaðarvöru
eða skordýraeitri, plastflöskum? „Það eru
engar einfaldar reglur aðrar en gagnrýnin
hugsun: Ef þú vilt kaupa nýjan sófa, ný
ílát fyrir örbylgjuofninn, spurðu þá sölu-
manninn hvort þau innihalda truflandi
efni. Í flestum tilfellum færðu engin svör
í verslunum en því fleiri sem spyrja því
meiri verður krafan á framleiðandann um
svör. Þannig myndast þrýstingur.“
Þannig hafi það verið þegar ljóst varð
að plastpelar barna innihéldu hormóna-
raskandi efnið BPA. „Ekkert gerðist þegar
greint var frá þessum niðurstöðum en
þegar neytandinn spurði um málið í stór-
mörkuðum, eins og til dæmis í Walmart,
tóku þeir vöruna úr hillum. Það var vegna
þrýstings frá neytendum en ekki vegna
gjörða yfirvalda,“ segir hann og heldur
áfram.
Fólk treysti læknum
„Við læknar þurfum að bindast skjól-
stæðingum okkar traustari böndum og
styðja þá í kröfunni um heilbrigðara
umhverfi, því ef við gerum það ekki er
engin innistæða fyrir því að krefja þá um
heilbrigðan lífsstíl,“ segir Grandjean. „Við
verðum að tryggja að samkomulag sé um
að við séum ekki útsett fyrir mengun í
umhverfi okkar.“
Læknar búi yfir mikilvægri þekkingu
því þeir geti gert áhættumat. „Við getum
rannsakað áhrifin. Svo treysta sjúklingar
okkur, því við viljum þeim það besta.
Þannig að ef við stígum inn og leiðbein-
um um notkun kemískra efna munum við
öll sjá ávinning, skjólstæðingar okkar og
heilbrigðiskerfið.“
Það sé ekki lengur forsvaranlegt að
setja heilsuna í hendur skjólstæðinganna.
„Það sem við sögðum í fortíðinni – að fólk
ætti bara að lifa heilsusamlegar, á ekki
lengur við eitt og sér nema umhverfið
sé þannig að fólk geti það. Það á ekki að
bjóða fólki upp á kemískt umhverfi sem
skaðar efnaskiptin og hormónabúskap-
inn.“
Heimild: Grandjean P, Timmermann CAG, Kruse M, et al.
Severity of COVID-19 at elevated exposure to perfluorinated
alkylates. PLoS ONE 2020; 15: e0244815.
Mengun skaðar heilann
„Vandinn við uppruna ADHD er sá að flestir horfa í gjörðir barnanna en skýringuna
á hegðuninni er ekki að finna þar heldur jafnvel frekar fyrir getnað þeirra,“ segir
Philippe Grandjean, prófessor í umhverfislæknisfræði.
„Barnið er greint og fær meðferð en forvarnirnar ættu að byrja löngu fyrr,“ segir
hann og bendir á áhrif mengunar á fósturþroska. Hann hvetur til þess að fólk sýni
gagnrýna hugsun við neyslu og forðist kemísk efni. En á fólk að vera áhyggjufullt
vegna framtíðarinnar?
„Við ættum að vera áhyggjufull yfir því sem við vitum ekki og ekki láta eins og
allt sé öruggt. Við ættum að leggja áherslu á að vernda næstu kynslóðir og gjalda
almennt varhug við nýjum kemískum efnum því þau eldri eru enn utan reglna.
Fóstur eru svo viðkvæm. Þau eru að þróa líffæri og það verður ekki aftur snúið ef
eitthvað fer úrskeiðis við myndun heilans.“