Læknablaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 43
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 263
Læknafélag Íslands (LÍ) hefur gert spálík-
an um mannaflaþörf lækna til ársins 2040.
Þá hefur LÍ kallað eftir upplýsingum frá
sérgreinafélögum til að kanna þróun og
horfur innan sérgreina lækna og þær eru
mikilvægar til að skoða framtíðarþörf fyr-
ir sérfræðinga.
Sérgreinar læknisfræði hafa ótvíræðu
hlutverki að gegna og nauðsynlegt að
tryggja þar nægjanlegan fjölda.1
Embætti landlæknis hefur veitt
sérfræðileyfi í um 60 sér- og undirsér-
greinum læknisfræði. Þörfin fyrir þessar
sérgreinar er stöðugt að breytast þar sem
ný þekking og tækni kallar á breytta
nálgun.2
LÍ hefur greint þessar sér- og undirsér-
greinar eftir kyni og aldri.3 Sú greining
leiðir meðal annars í ljós að endurnýjun í
nokkrum sérgreinum er ekki nægjanleg,
þar sem meirihluti sérfræðinga er 60 ára
og eldri. Þessar sérgreinar eru:
• Almennar skurðlækningar
• Atvinnu- og umhverfislækningar
• Augnlækningar
• Barna- og unglingageðlækningar
• Blóðmeinafræði
• Brjóstholsskurðlækningar
• Endurhæfingarlækningar
• Erfðalæknisfræði
• Félagslækningar
• Geðlækningar
• Heimilislækningar
• Húðlækningar
• Krabbameinslækningar
• Lungnalækningar
• Meinafræði
• Meltingarlækningar
• Meinaefnafræði
• Myndgreining
• Ofnæmis- og ónæmislækningar
• Taugalífeðlisfræði
• Taugalækningar
• Veirufræði og örverufræði
• Þvagfæraskurðlækningar
• Æðaskurðlækningar
• Öldrunarlækningar
Hafa verður í huga að þetta er einn
mælikvarði á skorti á endurnýjun, sumar
Þróun og horfur innan sérgreina á Íslandi
sérgreinar glíma án efa við mun meiri
skort en þessi tölfræði gefur til kynna
vegna vaxandi eftirspurnar og fjölgunar
verkefna.
Hér verða tvær breiðar sérgreinar
teknar til sérstakrar skoðunar:
öldrunarlækningar og heimilislækningar.
Staðan í öldrunarlækningum er sú
að 15 sérfræðingar eru starfandi, auk
fjögurra sérnámslækna og fjögurra sér-
fræðilækna sem komnir eru yfir 70 ára
aldur (og eru fæstir í fullu starfi). Þegar
meta á þörfina fyrir öldrunarlækna er
hægt að hafa til hliðsjónar fjölda Ís-
lendinga sem eru 67 ára eldri en þeir
eru um 46.000 í dag. Rannsóknir gefa til
kynna að um 15% af þessum hópi þurfi
á þjónustu öldrunarlækna að halda, eða
7046 einstaklingar. Að meðaltali má áætla
að hver og einn sem þarf á þjónustu
öldrunarlæknis að halda, þurfi um 10
klukkutíma af tíma læknisins árlega
(miðað er við göngudeildarkomur og
læknisþjónustu á hjúkrunarheimilum
og legudeildum), sem gera samtals um
70.046 klukkutíma á ári og er það líklega
varlega áætlað. Árlegt vinnuframlag
sérfræðilæknis er um 1800 klukkustundir
(þegar teknir eru út frídagar og rauðir
dagar og miðað er við 8 klukkutíma dag-
vinnu). Út frá þessum forsendum er núna
þörf á rétt rúmlega 39 öldrunarlæknum til
þess að sinna verkefninu. Ef tekið er með
að læknar þurfa líka að sinna stjórnun,
rannsóknum og kennslu, myndi um 20%
viðbótarvinnuframlag bætast ofan á og þá
yrði þörfin um 47 öldrunarlæknar.4
Helsta áskorunin er að mennta nægi-
lega marga öldrunarlækna og einnig að
þeir fái sem fjölbreyttasta menntun. Það
er mikilvægt að hluti hópsins haldi áfram
að fá sérmenntun erlendis til að viðhalda
fjölbreytileika og víðsýni hópsins. Þjóðin
er að eldast. Elstu aldurshóparnir stækka
hraðast og þörf þeirra fyrir þjónustu öldr-
unarlækna er meiri en þörf yngri aldr-
aðra. Þörfin fyrir öldrunarlækna verður
því enn meiri á komandi árum.
Heimilislæknar eru mikilvægur hluti
heilbrigðiskerfisins því gert er ráð fyrir
að þeir séu fyrsti viðkomustaður sjúk-
linga. Sú nálgun að hver og einn hafi sinn
heimilislækni hefur sýnt að það getur
komið í veg fyrir sjúkrahúsinnlagnir og
alvarleg veikindi. Áður var talið að hver
heimilislæknir í fullu starfi gæti sinnt
1500 skjólstæðingum. Á síðustu áratugum
hefur þessi forsenda verið endurskoðuð
alls staðar á Norðurlöndunum í ljósi vax-
andi starfsemi og starfsviðs heilsugæsl-
unnar. Í dag er miðað við að hver heimil-
islæknir geti sinnt 1200 skjólstæðingum
í þéttbýli og um 800-1000 í dreifbýli, eða
færri en í þéttbýli vegna vaktþjónustu og
fjarlægðar frá sjúkrahúsi.
Byggt á mannfjöldatölum í sveitarfé-
lögum á Íslandi á árinu 2021 sést að 252
heimilislæknar þarf til að þjóna þéttbýli
Íslands og 67 í dreifbýli. Nú eru um 200
heimilislæknar á Íslandi, eða um 13% af
starfandi læknum.5
Skoðunin á fjölda öldrunarlækna og
heimilislækna sýnir með óyggjandi hætti
að talsverður skortur er þegar á læknum
í þessum sérgreinum. Sérnám þarf að
styrkja í báðum sérgreinum með betri
fjármögnun til að hægt sé að fjölga sér-
námslæknum.
Greina þarf fleiri sérgreinar og mun
það verða gert hjá LÍ. Þessar upplýsingar
eru bæði nauðsynlegar fyrir skipulag
heilbrigðisþjónustunnar en einnig fyrir
lækna, sem eru að ákveða í hvaða sérgrein
þeir vilja fara. Mikilvægt er að bregðast
við yfirvofandi skorti í sérgreinum með
því að greina ástæður hans og möguleg
viðbrögð til að tryggja nýliðun.
Heimildir
1. Ólafsson E. Sérgreinar læknisfræðinnar. Hugleiðingar
um stöðu sérgreina á íslensku háskólasjúkrahúsi.
Læknablaðið 2005; 91: 725.
2. Skipulag sérgreina lækninga á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi. landspitali.is.
3. Starfsleyfaskrá. landlaeknir.is/gaedi-og-eftirlit/heilbrigd-
isstarfsfolk/finna-heilbrigdisstarfsfolk/ - apríl 2022.
4. Upplýsingar frá formanni Félags íslenskra öldrunar-
lækna, Önnu Björgu Jónsdóttur.
5. Upplýsingar frá fyrrverandi formanni Félags íslenskra
heimilislækna, Salóme Arnardóttur.
Ingvar Freyr Ingvarsson
hagfræðingur
Læknafélags Íslands
ingvar@lis.is
Steinunn Þórðardóttir
öldrunarlæknir
formaður Læknafélags Íslands
steinunn@lis.is
F R Á L Æ K N A F É L A G I Í S L A N D S