Læknablaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 50
270 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/10818
Það er skondin tilviljun að í sama mánuði
og ég er að ljúka störfum á Landspítala
vegna aldurs, bjóðist mér að skrifa eigin
hugleiðingar í Læknablaðið. Ný tækifæri
bjóðast því enn þó ég teljist ekki gjald-
geng lengur sem ríkisstarfsmaður eftir 70
ára afmælið.
Hvenær er eiginlega rétti tíminn til að
hætta að vinna? Það er kúnst að vita það,
ekki of snemma og ekki of seint. Ég hef
verið spurð að þessu í mörg ár. Hvenær
ætlar þú að hætta að vinna? Ég vildi
ekki hætta of snemma, svo hér er ég enn
þangað til mér verður hent út! Kannski of
seint? Ég held samt ekki. Á meðan maður
hefur ánægju af vinnunni hlýtur þetta
að vera í lagi. Það eina sem í raun ætti
að stoppa góðan lækni af, er heilsan og
löngunin til að vinna.
Ellin er ekkert lamb að leik sér við
Það eru rúm 30 ár síðan ég hóf störf á
öldrunardeild Landspítala og hefur
margt breyst til batnaðar á þeim tíma.
En betur má ef duga skal og enn vantar
töluvert upp á félagslegu þjónustuna
sem gerir útskriftir hrumra aldraðra enn
sem áður vandasamar. Heimaþjónustuna
þarf að efla mikið ef spítalinn á ekki
að sprengja utan af sér! Hér áður fyrr
var viðhorfið að öldrunarlæknar ættu
einungis að sinna sjúklingum sem voru
búnir í meðferð. Endurhæfing og grein-
ing á sérhæfðum vandamálum aldraðra
var ekki hátt skrifuð. Nú hefur þetta
breyst. Verkefnin hafa mikið til flust frá
sérstökum öldrunardeildum, sem oft
voru langlegudeildir, yfir á bráðadeildir,
bráðamóttöku og yfir í öflugt göngu-
deildarstarf sem jafnframt er forvarnar-
starf. Nú sinnum við flóknum, fjölveik-
um sjúklingum bæði utan spítalans og
innan og reynum að bæta færni þeirra
eins og kostur er. Öldrun er ekki sjúk-
dómur en við þurfum að greina hvaða
áhrif aldurstengdar breytingar hafa á
einstaklinginn. Það vita allir að með
L I P R I R P E N N A R
Tímamót
Guðný Bjarnadóttir
lyf- og öldrunarlæknir
gudnybjarna52@gmail.com
hækkandi aldri fylgja breytingar sem
eru ígildi sjúkdóma. Við verðum stirðari,
þrekminni, viðkvæmari fyrir sýkingum,
efnum og lyfjum, svo fátt eitt sé nefnt.
Ofan á það leggjast svo ýmsir sjúkdómar
sem verða algengari með aldrinum.
Þetta hefur verið lærdómsríkur ferill
Maður hefur þurft að hafa sig allan við að
fylgjast með framþróun. Starfið spannar
yfir mikla breidd og í gegnum tíðina hef
ég einstaka sinnum spurt mig af hverju
ég valdi ekki þrengra svið. Maður á að
kunna skil á öllu frá heila niður í stórutá!
Aldursbilið sem við sinnum er breitt, til
dæmis er 25 ára aldursmunur á elsta og
yngsta sjúklingnum sem ég sinni núna.
Líffræðilegur aldur er svo mismunandi
eftir einstaklingum. Manneskjan er þó
alltaf söm. Viðbrögð við sorg og gleði eru
þau sömu. Erfiðir aðstandendur hafa alltaf
verið til. Þeir elskulegu og þakklátu eru
þó fleiri og eftirminnilegri. Mér finnst
gamalt fólk spennandi. Þau hafa frá svo
mörgu að segja, um löngu liðna atburði,
um lífsreynslu sína og hvað þau hafa lært
á langri ævi. Það hefur verið þess virði að
gefa sér tíma til að hlusta. Æðruleysið og
róin sem fylgir mörgu öldruðu fólki hefur
oft vakið mig til umhugsunar. Þannig vil
ég líka verða nú þegar ég sjálf er að fylla
þennan hóp. Hvað tekur nú við?
Draumurinn um eilífa æsku er jafn
fjarlægur nú og áður. Yngingarpillan sem
á að leysa öldrunarlækna af hólmi hefur
ekki verið fundin upp enn. Eftir stendur
að eina meðalið sem virkar gegn öldrun er
að halda áfram að takast á við áskoranir
sem lífið hefur uppá að bjóða. Þess vegna
hef ég keypt mér farmiða eins langt í burt
og ég kemst. Nefnilega til Namibíu. Lífið
er núna!
P.S. Og hvernig var svo Namibía? Í
stuttu máli: Ég skildi eftir hluta af hjarta
mínu þegar ég fór þaðan. Og nú er ég far-
in að sjást aftur á göngum Landspítala. Er
ég þá afturganga?
Guðný Bjarnadóttir á fjarlægum slóðum í heitu
löndunum. Jón Eiríksson tók myndirnar.
▼
PP
-X
A
R-
IS
-0
02
6-
1
N
óv
em
be
r
20
21
X
A
R
I0
0
0
2
–
B
ilb
o*án lokusjúkdóms. **ROCKET AF. NOAC = Segavarnarlyf til inntöku sem ekki eru K-vítamínhemlar.
Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto, ágúst 2021. 2. Samantekt á eiginleikum
lyfs Pradaxa, Eliquis, Lixiana.
Verkun og öryggi Xarelto, saman-
borið við önnur NOAC lyf, hafa
verið rannsökuð í sjúklingaþýði:1, 2**
• með meiri hættu á heilaslagi
• þar sem 40 % voru með sykursýki
Verndaðu það sem er
dýrmætt sjúklingum með
gáttatif* og sykursýki
DÝRMÆTAR STUNDIR
Sagan er ekki endilega ný.
En þetta er sagan hans afa.
XARI0002_Xarelto_SPAF_A4_IS.indd 1 2020-05-19 12:302021-11-22 12:30
Endurbirting úr aprílblaði