Læknablaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 42
262 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
B R É F T I L B L A Ð S I N S
Uppfærður gagnagrunnur um faraldsfræði
krabbameina á Norðurlöndunum – NORDCAN 2.0
Helgi Birgisson, Elínborg J. Ólafsdóttir,
Laufey Tryggvadóttir
rannsókna- og skráningarsetri Krabbameinsfélagsins
Norrænu krabbameinsskrárnar hefa lengi
unnið náið saman í Samtökum norrænna
krabbameinsskráa (Association of Nordic
Cancer Registries, ANCR; www.ancr.nu/).
Árið 2002 kom út fyrsta útgáfa þeirra af
NORDCAN sem er gagnagrunnur og for-
ritapakki. Með honum varð bylting í að-
gengi að upplýsingum um nýgengi,
dánartíðni og aðra þætti tengda faralds-
fræði krabbameina á Norðurlöndunum.
NORDCAN varð aðgengilegur með netút-
gáfu árið 2007 og á síðasta ári var
grunnurinn endurforritaður og viðmót
uppfært og kallast útgáfan NORDCAN
2.0.
Norska krabbameinsskráin stýrir nú
daglegum rekstri NORDCAN gagna-
grunnsins en Danir höfðu sinnt honum
frá upphafi, verkefnið er fjármagnað af
Samtökum norrænna krabbameinsfélaga
(Nordic Cancer Union) og Alþjóða-
krabbameinssamtökin (IARC) sjá um for-
ritun. Fyrir hönd Íslands sinnir Elínborg
J. Ólafsdóttir sérfræðingur hjá Rann-
sókna- og skráningarsetri Krabbameins-
félagsins gagnagrunninum.
Með NORDCAN 2.0 er notendum gert
auðvelt að skoða nýgengi, algengi, dánar-
tíðni og lífshorfur sjúklinga með krabba-
mein og gera samanburð milli landa
(mynd 1) eða mismunandi krabbameina
(mynd 2) á yfir 60 ára tímabili.
Einnig er hægt að skoða líkur á því
hvert nýgengi og dánartíðni krabbameina
verður í framtíðinni og skoða aldurssam-
setningu þjóðanna.
Þegar línuritin eru gerð er unnt að
jafna tilviljunarsveiflur með því að velja
„Smoothing” undir „Options” og er sú
aðferð notuð í meðfylgjandi myndum
(LOESS regression algorithm (bandwidth:
0.2). Tilviljanasveiflur eru áberandi í ís-
lenskum tölum vegna þess hve þýðið er
lítið. Gagnagrunnurinn er mikið notaður
af þeim sem vilja fá faraldsfræðilegar
upplýsingar um krabbamein.
Með þessu bréfi viljum við vekja
athygli á uppfærslu gagnagrunnsins og
minna á hversu mikilvægur hann er fyrir
okkur á Íslandi. Með NORDCAN 2.0
gefst einstakt verkfæri til þess að fylgjast
með þróun í faraldsfræði krabbameina,
árangri meðferðar, nákvæmni skráningar
og til þess að geta borið okkur saman við
önnur lönd.
Mynd 1. Aldursstaðlað (norrænn staðall) nýgengi allra krabbameina í körlum á Norðurlöndunum
á hverja 100.000 íbúa. Nýgengið hefur lækkað mest hjá íslenskum körlum síðastliðinn áratug
sem skýrist meðal annars af lækkun nýgengis blöðruhálskirtils- og lungnakrabbameina.
Mynd 2. Aldursstöðluð (norrænn staðall) dánartíðni valinna krabbameina í meltingarvegi
kvenna á Íslandi á hverja 100.000 íbúa. Dánartíðni magakrabbameins hefur lækkað mikið
vegna breytinga á mataræði og upprætingar á Helicobacter pylori. Dánartíðni ristil- og enda-
þarmskrabbameins hefur ekki breyst þrátt fyrir framþróun í meðferð og skýrist af aukningu í
nýgengi.
Vefslóð: https://nordcan.iarc.fr/en
Ristill
Nýru
Magi
Vélinda