Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 28

Læknablaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 28
248 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 „Stríðið er svo gróft og hrikalegt. Það er ekki hægt að skilja það sem gerist núna á 21. öld í miðri Evrópu,“ segir Angela sem hefur starfað sem læknir allt frá ár- inu 1996 þegar hún kláraði læknanámið í Úkraínu. Hún starfaði sem berklasér- fræðingur í Úkraínu en er nú starfandi geðlæknir á Íslandi, á Landspítala og hjá Lækninga- og sálfræðistofunni í Skipholti. „Slíkt óréttlæti, lygi, villimennska, þjófnaður, pyntingar, nauðganir, dráp á almennum borgurum, börnum – þetta er þjóðarmorð.“ Hún lýsir því hvernig Úkraínumenn hafi verið þriðja stærsta kjarnorkuríki heims á eftir Bandaríkjunum og Rússlandi. „En samið var um að af- vopnast með Búdapest Memorandum árið 1994 gegn því að landamærin yrðu virt og kjarnorkuríki myndu veita öryggis ábyrgð.“ Rússland, Bretland og Bandaríkin hafi ásamt Úkraínu skrifað undir samninginn. „Samkomulagið var ekki virt.“ Angela lýsir tilfinningunum sem geta blossað upp við stríð hjá fólki. „Það er eðlilegt að upplifa stundum blendnar til- finningar í stríði. Þær geta verið depurð, örvænting, spenna, afneitun, lost, sekt- arkennd, vanmáttur en líka léttir! Allar þessar tilfinningar eru eðlilegar en það er erfitt fyrir marga að skilja það. Sjálf hef ég farið í gegnum öll þessi stig og fundið létti að standa ekki í stríðinu miðju og að ekkert hafi komið fyrir fólkið mitt. En guð minn góður. Fullt af fólki hefur misst sína og ég græt það,“ segir hún. Óskiljanleg voðaverk Fólk sem standi fjær, eins og Íslendingar sem sæki tíma til hennar, upplifi líka van- mátt og sektarkennd. „En þetta eru eðli- legar tilfinningar.“ Sorgin sé mikil. „Bæði „Óttinn varð að skelfingu,“ segir Angela Haydarly geðlæknir um tilfinninguna þegar hún heyrði að stríð hefði brotist út í heimalandi hennar, Úkraínu. Angela hefur búið hér á landi frá aldamótum og horfir með hryllingi heim þar sem foreldrar hennar eru í miðju landinu, of veikburða til að flýja ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Úkraínumenn gefast seint upp V I Ð T A L vegna hermanna okkar og hinna. Sorg yfir almennum borgurum og börnum sem hafa verið drepin.“ Flestir vilji kenna Pútín um. „En það er ekki bara Pútín. Margir fremja voðaverkin og maður skilur ekki hvernig þetta er hægt.“ Hún tárast þegar hún nefnir óhugnaðinn í borginni Bucha. „Hvað er að í hausnum á mönnum sem gera svona hluti? Svo mikið áfall. Ég er ofboðslega hrædd“. Angela býst ekki við stuttu stríði. „Í Donbas hefur verið stríð í 8 ár.“ Hún hugsi til þess hvernig hún grét yfir fréttum af látnum börnum þegar þau voru 20. „Núna eru þau yfir 200. Maður verður dofinn. Ég las og las fréttir og gat ekki sofið. Grét. Ég horfði á vanmáttinn og ráðaleysið hjá eiginmanni mínum sem hélt í höndina á mér og reyndi að styðja mig. Ég er þakklát fyrir hann. Hvað getur hann gert? Hann er miður sín eins og ég,“ segir hún og þurrkar tár. Hryllingurinn staðreynd „Já, tárin koma,“ segir hún og brosir. Spurð hvort henni finnist íslenskur eigin- maður hennar skilja ástandið svarar hún: „Ég veit ekki einu sinni hvort ég geri það. Þetta er svo bilað. Þú getur slökkt á hryll- ingsmynd en þú slekkur ekki á stríði. Það er staðreynd. Þetta er að gerast.“ Hún hafi fundið að hún verði að passa sig betur. „Vernda mig frá þessum voðafréttum.“ Fyrstu 10 dagarnir hafi verið hræðilegir. Hún þekkti ekki marga hér á landi frá Úkraínu en langaði til að hjálpa. „Ég sendi Rauða krossinum tölvupóst og fékk til baka svar á íslensku og ensku um að styrkja samtökin fjárhagslega. Ég hringdi svo og gaf símanúmerið mitt og sagðist geta hjálpað. Enginn hafði samband. Svo fann ég Svein Rúnar. Frábær manneskja. Hann bjó til kjarna þar sem fólk getur komið og hjálpað.“ Núna mætir hún reglulega í Guðrúnartún og hjálpar sem geðlæknir. „Mér fór að líða betur þegar ég gat hjálpað. Ég fer að heiman fyrir kl. 8 á morgnana, er í vinnunni til 4, stundum lengur, og svo frá klukkan 18-20 í Guð- rúnartúni. Svona hafa dagarnir liðið.“ Hún hafi tekið yngstu dótturina með til að hafa hana nálægt sér. Hitta hana. „Flest fólk frá Úkraínu sem kemur hingað er í grunninn heilbrigt en þau eru mjög kvíðin og með svefntruflanir vegna áfalls. Þau þurfa að sofa til að ná sér. Svefninn er mikilvægur til að vinna úr áfalli. Ég legg því áherslu á svefninn.“ Sjálf hafi hún verið vansvefta. „Ég svaf aðeins 4-5 tíma fyrstu daga stríðsins, var upptendruð og þreytt, en tók á því til að hjálpa öðrum.“ Margir foreldrar meðal flóttamannanna ræði um börnin sín sem hagi sér öðruvísi eða eigi erfiðara með svefn. „Ég ráðlegg þeim að ræða við krakkana, knúsa þau eins og hægt er, leika, syngja saman, tala um fallegar minningar og gera jákvæð framtíðarplön. Það hjálpar.“ Einkabarn foreldra sinna Angela er einkabarn foreldra sinna sem komin eru á eftirlaunaaldur. Pabbi hennar geð- og taugalæknir. Móðir hagfræðingur. Þau bjuggu nálægt Chernobyl en fluttu inn í mitt land, til Uman þar sem foreldrar föður hennar bjuggu, í kjölfar kjarnorku- slyssins árið 1986. Sjálf á hún þrjú einka- börn, eins og hún lýsir, svo langt sé á milli þeirra í aldri. 29 ára sonurinn, 19 og 9 ára dætur. Hún lýsir áhrifum vanmáttarins á son

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.