Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 18
n Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
Almenn-
ingur tekur
lán án þess
að hafa
hugmynd
um hvað
það kostar
hann. Það
er einmitt
töfralausn
Íslands.
Liz Truss
sendir
björgunar-
bát að lysti-
snekkju
sem liggur
við höfn í
Mónakó.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Ég heilsa ykkur, kæru lesendur, af sökkvandi
skipi. Skipið er breskt efnahagslíf en gatið á
skrokknum braut skipstjórinn sjálfur.
Liz Truss er nýtekin við sem forsætisráð-
herra hér í Bretlandi. Væntingar til æðsta
ráðamanns hafa sjaldan verið jafnlitlar. Í
kjölfar kjörs Truss sögðust aðeins 22 prósent
Breta ánægð með hinn nýja leiðtoga. En
þrátt fyrir litlar væntingar tókst Truss að
valda stórbrotnum vonbrigðum.
Liz Truss aðhyllist frjálshyggju eins og
bókstafstrúarmaður aðhyllist kristni. Frægt
er þegar fyrirmynd Truss, Margrét Thatcher,
barði í borð bók eftir frjálshyggjuhag-
fræðinginn F.A. Hayek með orðunum: „Þetta
er það sem við trúum á.“ Við kjör Truss lýsti
samflokksmaður henni sem „frelsiselskandi,
frjáls-markaðs-verjandi, skattalækkandi
vélmenni á sjálfstýringu sem hefði verið
forritað til að stefna í aðeins eina átt og gæti
ekki skipt um stefnu (eða skoðun) sama
hvað væri í veginum.“
En þrátt fyrir að Truss sé þekkt fyrir
ósveigjanleika stóðu vonir til að þegar á
hólminn kæmi tæki hún tillit til aðstæðna.
„Stjórnartíð Liz Truss verður ekkert stórslys,
aðeins glundroði,“ fullyrti pistlahöfundur
íhaldsblaðsins The Times. Annar sagði Truss
hljóta að sjá tækifærin í kredduleysi líkt og
fjöldi forvera hennar úr sama flokki, þeirra
á meðal Salisbury lávarður sem varð þrisvar
forsætisráðherra og sagði „engan algildan
sannleik eða lögmál í stjórnmálum.“
Umræddir pistlahöfundar éta nú hatt
sinn.
Brauðmolar í gúmmíverksmiðju
Truss er vorkunn. Draumur hennar um
forsætisráðherraembættið rættist á tímum
krísu. Ríkið er skuldum vafið vegna Covid.
Stríðið í Úkraínu veldur háu orkuverði svo
að almenningur hefur ekki efni á að kynda
heimili sín. Verðbólga rýrir kaupmátt fólks
sem sumt þarf að neita sér um nauðsynjar.
Truss beið mikið verk. Verkið tekst hún
á við á þann eina veg sem frelsiselskandi,
skattalækkandi vélmenni á sjálfstýringu er
fært.
Matarbankar anna ekki eftirspurn: Liz
hyggst leggja niður auðlegðarskatt. Verð-
bólga hefur ekki verið hærri í Bretlandi í
fjörutíu ár og seðlabankinn hækkar stýri-
vexti í von um að draga úr neyslu: Liz hyggst
lækka almennan tekjuskatt til að auka
neyslu. Heilbrigðiskerfið er fjársvelt: Liz
hyggst lækka almannatryggingagjaldið.
Vika er frá því að ríkisstjórn Liz Truss
kynnti efnahagsaðgerðir sínar. Síðan þá
hefur gengi pundsins hrunið og skuldabréfa-
markaðurinn farið á hliðina. Það hriktir í
stoðum lífeyrissjóða. Seðlabankinn greip til
neyðaraðgerða og hótar enn frekari vaxta-
hækkunum. Almenningur sér fram á að geta
ekki borgað af húsnæðislánum. Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn segir Bretland ógna
hagkerfi heimsins.
En Liz Truss situr við sinn keip. Eftir viku-
langa þögn mætti hún loks í útvarpsviðtal
og sagðist ekki ætla að bakka með neitt því
hún „tryði á að þetta væri það besta fyrir
landið.“
Breskur almenningur er staddur á sökkv-
andi farþegaferju. Liz Truss sendir björgun-
arbát að lystisnekkju sem liggur við höfn í
Mónakó. Því hún trúir að ef eiganda hennar
farnist vel muni brauðmolar falla af gnægta-
borði hans sem kunni einn góðan veðurdag
að enda sem fjárfesting í gúmmíverksmiðju
þar sem framleiddir eru björgunarkútar.
Munið þið eftir guttunum sem gengu
um vatnsgreiddir í jakkafötum á mennta-
skólaárunum með heildarútgáfu Milton
Friedman í skjalatöskunni og Ayn Rand á
náttborðinu, svo fallega öruggir í þeirri vissu
að sama hvers væri spurt væri svarið alltaf
frelsi, skattalækkun eða afnám hafta? Ég hef
stundum velt fyrir mér hvað gerðist ef Heim-
dellingum yrðu afhentir stjórnartaumar
heils lands. Nú vitum við svarið: Þetta.
Nákvæmlega þetta. n
Skattalækkandi vélmenni
í dag!
öll
velkomin!
vísindavaka
vísindin lifna við!
ka
i lifna við!i davaka
i din lifna við!
Laugardalshöll
laugardagur 1. október
kl. 13.00 - 18.00
Formaður Sjálfstæðisflokksins geldur
varhug við töfralausnum Evrópusam-
bandsins. Það er auðvitað hans skoðun
– og hana ber að virða.
En valkosturinn er þá væntanleg
töfralausn Íslands, sú útgáfa af samfélagi sem
blasir við eyjarskeggjum á endimörkum álf-
unnar.
Og sú lausn felur í sér eitt sveiflukenndasta
hagkerfi sem þekkist á byggðu bóli þar sem
boðið er upp á svo afleitan gjaldmiðil að forkólf-
ar fyrirtækja á meginlandi Evrópu láta það ekki
hvarfla að sér að fara út í samkeppnisrekstur á
Íslandi.
Fyrir vikið hefur ríkt framfærslukostnaðar-
krísa hér á landi svo áratugum skiptir, enda
hefur fyrirsjáanleikinn í heimilisbókhaldinu
aldrei verið til staðar. Enginn veit hvað krónan
kostar hverju sinni. Gengi hennar hefur verið
fellt svo reglulega á síðustu fimmtíu árum eða
svo að varla verður tölu á komið. Og ekki um
einhver nokkur prósent, heldur um fimmtíu
prósent hverju sinni, í besta falli um tuttugu
prósent, en jafnvel líka um meira en 130 prósent.
Síðast í hruninu veiktist hún um nálega fimmtíu
prósent.
Og verðgildi hennar hefur og mun verða á
huldu. Og þess vegna er boðið upp á breytilega
vexti á Íslandi. Almenningur tekur lán án þess
að hafa hugmynd um hvað það kostar hann.
Það er einmitt töfralausn Íslands. Krónan kostar
bara það sem henni sýnist.
Og þetta er svona svipað því að fara út í hús-
gagnaverslun og kaupa þar hægindastól sem
kostar eitthvað allt annað heimkominn en verð-
miðinn í búðinni gaf til kynna. Þvílík hægindi.
Þess utan felur töfralausn Íslands í sér hæstu
vexti álfunnar, dýrustu tryggingarnar, hæsta
matarverðið, hæsta verðið á víni og bjór – og
hvergi er skattbyrði meiri á almenning nema ef
vera kynni í Svíþjóð.
Og guð forði landsmönnum frá því að búa við
örorku eða að eldast, því þá er skattheimtan enn
þá ómannúðlegri. En það er væntanlega vegna
þess að stjórnvöld hafa komið auga á dýpstu vas-
ana í þeim hópum. Og þeir eru einmitt tæmdir,
helst oftar en einu sinni, til að hlífa ríkasta parti
þjóðarinnar við íþyngjandi gjöldum.
Töfralausn Íslands er að vera utan Evrópu-
sambandsins, þótt fyrir liggi að evrópski efna-
hagssamningurinn sé langsamlega veigamesti
áfangi þjóðarinnar á leið til réttarbóta og ríkari
afkomu.
Töfralausn Íslands er einmitt að vera utan
þess sem helst og best hefur hjálpað þjóðinni á
síðustu þremur áratugum. n
Töfralausnin
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 1. október 2022 LAUGARDAGUR