Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 20
Formenn
sambands-
ins í þjálf-
aratíð
Arnars
hafa verið
fljótir að
hlaupa í
felur í
erfiðum
málum.
Raunhæfur möguleiki
er á að þessir ökumenn
verði áfram í Formúlu
1 á næsta ári en síðustu
sex keppnishelgarnar
munu skera úr um það.
Ekki er hægt að túlka tíðindi vik
unnar frá Knattspyrnusambandi
Íslands öðruvísi en vantraust til
Arnars Þórs Viðarssonar. Á mánu
dag greindi sparkspekingurinn
Mikael Nikulásson frá því að Vanda
Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ,
hefði ætlað að ráða Heimi Hall
grímsson til starfa í sumar.
Um leið og það kom fram sendi
Fréttablaðið fyrirspurn á Vöndu,
fyrstu viðbrögð sambandsins bentu
til þess að þessar sögur væru á rökum
reistar. Svarið kom svo tveimur sólar
hringum seinna þar sem Vanda stað
festir að hafa fundað með Heimi.
Arnar Þór hafði ekki hugmynd
um þá staðreynd að það hefði staðið
tæpt að hann yrði rekinn úr starfi.
Arnar fékk aðeins veður af því degi
eftir sinn besta leik í starfi. Óvíst er
hvaða áhrif það hefur á Arnar í starfi
að vita að formaður sambandsins
íhugaði það mjög alvarlega að reka
hann úr vinnunni í sumar.
Arnar hefur auðvitað ekki verið
vinsæll í starfi en síðustu leikir hafa
bent til þess að hann sé á réttri leið.
Það er í tísku í dag að vera illa við
Arnar en hafa skal í huga öll þau
verkefni sem hann hefur fengið í
hendurnar og nánast verið látinn
tækla einn.
Formenn sambandsins í þjálfara
tíð Arnars hafa verið fljótir að hlaupa
í felur í öllum þeim erfiðu málum
sem sambandið hefur tekist á við.
Nú síðast þegar Arnar valdi síðasta
landsliðshóp.
Íslendingar hefðu margir hverjir
viljað fá Heimi aftur til starfa en það
er óþægilegt fyrir einstakling sem er
í vinnu að frétta af því í gegnum fjöl
miðla að yfirmaður þinn íhugaði að
reka þig úr starfi. Málið er óheppilegt
og gæti haft áhrif til framtíðar. n
Vantraust Vöndu til Arnars Þórs
n Utan vallar
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
hordur@frettabladid.is
FÓTBOLTI Enska úrvalsdeildin fer
aftur af stað í dag eftir nokkurt hlé
en búast má við miklum látum um
helgina þegar tveir stórleikir fara
fram. Allt byrjar þetta með hvelli í
hádeginu í dag þegar grannaslagur
inn í NorðurLundúnum fer fram.
Tottenham heimsækir þá Arsenal
en bæði félög hafa farið af stað með
miklum ágætum í deildinni. Arse
nal situr á toppi deildarinnar með
18 stig en Tottenham er aðeins einu
stigi á eftir og getur krækt í topp
sætið, um stund hið minnsta.
Arsenal varð fyrir nokkru áfalli í
aðdraganda leiksins en Emile Smith
Rowe, miðjumaður liðsins, þurfti
að fara í aðgerð vegna meiðsla og
verður frá í tvo mánuði. Dejan
Kulusevski, leikmaður Tottenham,
er einnig að glíma við meiðsli og er
tæpur fyrir leikinn mikilvæga.
Á sunnudag fer fram annar
grannaslagur þegar Man
chesterliðin mætast í orustu
á Ethiadvellinum þar í borg.
Ma nchester United
heimsækir þá Manc
hester City. Flestir
búast v ið sig r i
þeir ra bláu en
spilamennska
Ma nche st er
United hefur
ver ið bet r i
undanfarið eftir er f iða
byrjun. City er í öðru sæti
deildarinnar með 17 stig en
United er með 12 stig eftir
fjóra sigra í röð, liðið á leik til
góða á efstu lið deildarinnar.
Erling Haaland, framherji City,
hefur farið frábærlega
af stað í
deildinni
og hefur
skorað 11
deildarmörk í sjö deildarleikjum
og það gæti reynst United erf
iður leikur að stöðva hann.
Liver pool sem hef u r
verið í hópi bestu liða Evr
ópu undanfarin ár hefur
hikst að í upphafi tíma
bils. Liðið tekur á
móti Brighton
um helgina sem
leikur í fyrsta
s i n n u n d i r
stjórn Roberto De Zerbi. Nýi
þjálfari Brighton er þekktur
fyrir að spila mjög áhættu
saman fótbolta og það gæti
hentað Mohamed Salah
og liðsfélögum hans vel á
Anfield. n
Nágrannaslagir af bestu gerð í beinni
Eftirspurnin eftir ökumanns
sæti í Formúlu 1 er meiri en
framboðið. Nýir ökumenn
vilja komast að á meðan aðrir
berjast um að halda sæti sínu.
aron@frettabladid.is
FORMÚLA 1 Nú þegar aðeins sex
keppnishelgar eru eftir af yfirstand
andi tímabili í Formúlu 1 virðast
úrslitin ráðin. Max Verstappen er
með níu fingur á heimsmeistaratitl
inum og þá er Red Bull Racing með
þægilegt forskot á andstæðinga sína.
Að sama skapi virðist rásröðin
fyrir næsta tímabil að mestu ljós
en getgátur eru uppi um framtíð
tveggja ökumanna.
Daniel Ricciardo, hinn reynslu
mikli ökumaður McLaren, fær ekki
áframhaldandi sæti hjá liðinu á
næsta tímabili eftir að tilkynnt var
um komu Oscar Piastri.
Þá er orðrómur á kreiki um að
Mick Schumacher, sonur Formúlu
1 goðsagnarinnar Michael Schu
macher fái ekki áframhaldandi sæti
hjá bandaríska liðinu Haas.
Þegar kemur að lausum öku
mannssætum fyrir næsta tímabil
hafa flestöll liðin fyllt sín sæti. Alp
ine og Williams eru hins vegar opin
berlega með laust sæti fyrir næsta
tímabil og þá þykir nokkuð líklegt
að sæti losni hjá Haas og Alpha
Tauri með hreyfingu núverandi
ökumanna liðanna.
Daniel R icciardo, Ástralinn
síbrosandi sem hefur verið hluti
af Formúlu 1 síðan árið 2011, er
ekki reiðubúinn til þess að yfirgefa
mótaröðina. Hann segist reiðubú
inn að taka sæti varaökumanns ef
ekkert aðalsæti býðst.
Maðurinn með sögufræga nafnið,
Mick Schumacher, stendur á kross
götum. Forráðamenn Haas virðast
vera að missa trúna á Þjóðverjanum
unga og þá virðist samband Schu
macher við ökumannaakademíu
Ferrari vera að renna sitt skeið,
hann verður því frjáls ferða sinna
með öllu í fyrsta skipti á ökumanns
ferli sínum.
Raunhæfur möguleiki er á að
þessir ökumenn verði áfram í
Formúlu 1 á næsta ári en síðustu sex
keppnishelgar tímabilsins munu
skera úr um það. Árangur í keppn
um skiptir miklu máli í Formúlu
1, Ricciardo og Schumacher hefur
ekki tekist að skila af sér stöðugum
frammistöðum og það er þess vegna
sem lið eru ekki að stökkva á þá um
leið og færi gefst.
Verkefnið gerist ekki erfiðara
fyrir þessa tvo ökumenn en núna
á sunnudaginn þegar keppt verður
á erfiðri götubraut við afar erfiðar
aðstæður í Singapúr. Spáð er rign
ingu sem gerir verkefnið erfiðara
fyrir ökumenn en við venjulegar
aðstæður eru ökumenn að missa
á bilinu þrjú til fjögur kíló við að
keyra heila keppni í Singapúr.
Formúla 1 er mótaröð sem er
mjög fljót að verðlauna fyrir góðan
árangur en ef þér skrikar fótur, gerir
mistök, er hún einnig fljót að refsa.
Hvort verður það fyrir þessa tvo
ökumenn? Næstu mánuðir munu
leiða það í ljós. n
Berjast fyrir áframhaldandi
þátttöku sinni í Formúlu 1
Erling Braut Haaland
spilar sinn fyrsta
granna slag í Manchester
ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 1. október 2022 LAUGARDAGUR
Mick Schumacher og Daniel Ricciardo vilja báðir halda sæti sínu í Formúlu 1 en tekst þeim að landa áframhaldandi
sæti í mótaröðinni fyrir næsta tímabil? FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Leikir helgarinnar:
Laugardagur:
n 11.30 Arsenal - Tottenham
n 14.00 Bournemouth -
Brentford
n 14.00 Crystal Palace -
Chelsea
n 14.00 Fulham - Newcastle
n 14.00 Liverpool - Brighton
n 14.00 Southampton -
Everton
n 16.30 West Ham - Wolves
Sunnudagur:
n 13.00 Manchester City -
Manchester United
n 15.30 Leeds United -
Aston Villa
Mánudagur:
n 19.00 Leicester City -
Nottingham Forest
Baráttan um Norður-Lundúnir fer fram í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
KAUPUM BLEIKU SLAUFUNA
Sýnum lit
á bleikaslaufan.is og á sölustöðum
um allt land 1. – 20. október
LíFIÐ E að ALA UPP
BÖRN OG KANNSKI
BARNABÖRN