Fréttablaðið - 01.10.2022, Page 34
„Ég, eins og aðrir sem komnir eru
á minn aldur og stunda hreyfingu,
var farinn að finna fyrir stirðleika í
liðamótum og sting í hnjánum sem
reynir oft mest á þegar klumpar
eins og ég eru að reyna að skoppa.
Svo varð mér til happs að ég sá
auglýsingu þar sem mér eldri
maður, en ágætis kunningi minn,
hann Hartmann hjólari, talaði um
hversu ánægður hann væri með
bætiefnið Active Joints frá Eylíf. Í
kjölfarið fór ég og keypti mér glas
af Active Joints og hef eiginlega
ekki sleppt úr degi, rúmlega hálfu
ári síðar.“
Þetta segir Einar Bárðarson,
framkvæmdastjóri Votlendissjóðs
og tónlistarmaður.
„Ég fann eiginlega strax mun
daginn eftir og keypti mér líka
Happier Guts frá Eylíf en bæði
efnin hafa reynst mér mjög vel. Ég
hef nú prófað eitt og annað í gegn-
um tíðina og konan mín myndi
örugglega segja að henni fyndist
fullmikið af nýopnuðum dósum af
alls konar heima, því ég er alltaf að
leita að einhverju sniðugu, sem svo
virkar sumt en flest ekki, en þetta
virkar svo sannarlega vel og ég gæti
ekki verið ánægðari með vöruna,“
segir Einar.
Hann er mikið á faraldsfæti í lífi
sínu og starfi.
„Ég hjóla mikið og labba, passa
að ganga upp og niður stiga í stað
þess að taka lyftuna og finnst
Active Joints hafa gjörbreytt
leiknum fyrir mig. Fyrir mann eins
og mig, sem er í yfirvigt, og þótt ég
hafi oft verið í meiri yfirvigt en ég
er í dag, þá fylgir mikilli hreyfingu
áreynsla á hnén. Ég fann alltaf fyrir
seyðingi og sting í hnénu en það
er bara alveg farið. Því duga engar
afsakanir lengur; bara gjöra svo vel
að fara út að hreyfa sig og núna er
það bara gaman.“
Þarf að sannfæra hausinn
Einar fer fyrir Votlendissjóði og
því fylgja bæði ferðalög og f lakk.
„Í vinnunni geng ég mikið úti í
náttúrunni til að skoða mýrlendi
og þá þyngist oft labbið í þýfnum
og blautum jarðvegi og mikið
um skröngl og brölt, en nú finn
ég ekkert fyrir því. Áhugamálið
felst svo í því að ég og smá hópur
í kringum mig höldum íþrótta-
og af þreyingarmót fyrir fólk á
miðjum aldri, svo sem hjólamót,
utanvegahlaup og hitt og þetta, og
því fylgir líka undirbúningur við
að skoða leiðir og þvælast á vett-
vangi, því á einni slíkri keppnis-
helgi þarf að djöflast um og labba
f leiri tugi kílómetra, og þá er
ekki verra að vera með liðina vel
smurða,“ segir Einar ánægður með
árangurinn.
„Þegar maður hefur glímt
við verki og er í yfirvigt er ríkt í
manni að reyna að komast hjá því
að hreyfa sig af því maður veit að
því fylgir áreynsla og vont nudd á
hnjám, en þegar það hverfur, eins
og hefur gerst hjá mér með Active
Joints, þá tekur smá tíma að sann-
færa hausinn um að kvíða því ekki
lengur að hlaupa upp í móti eða
skjótast það sem þarf. Hausinn
þarf að venjast því að hafa ekki
lengur áhyggjur af verknum en
svo kemur að því að hann segir:
„Þetta verður allt í lagi; verkurinn
er farinn. Gott! Hlaupum bara af
stað!“ og þá gerir maður einmitt
það,“ segir Einar kátur.
Kominn á fullt með gítarinn
Einar segir mikinn lífsstílslétti að
finna ekki lengur seyðing eða sting í
hnjánum og hann er ekki frá því að
Active Joints hafi góð áhrif á fleiri
liði líkamans.
„Svei mér ef ég er ekki líka orðinn
fimari í fingrunum því ég er farinn
að setjast oftar niður með gítarinn
og kannski það sé Active Joints að
þakka. Hver veit nema maður semji
jólalag,“ segir hann glettinn og hlær.
„Undanfarin ár hef ég verið
heldur rólegri í tónlistinni en ég
vildi, en nú er ég aðeins farinn að
spá og spekúlera meira og í febrúar
ætla ég að halda kassagítarstón-
leika hér og þar á landinu með þeim
sem hafa gert flest lögin mín þekkt.
Þar tökum við lagið, ég og Gunni
Óla, Magni, Skímó og kannski Klara
í Nylon; fyrst og fremst okkur til
skemmtunar og þeim sem hafa
gaman af því að hlusta á okkur,“
segir Einar, fullur tilhlökkunar og
létt að vera laus við verkina.
„Ég mæli hiklaust með Active
Joints og Happier Guts frá Eylíf og
svo finnst mér ekki verra að vita
til þess að bætiefnin frá Eylíf eru
framleidd hér heima; úr íslenskum
hráefnum úr hreinni, íslenskri nátt-
úru.“ n
Eylíf vörurnar fást í öllum apó
tekum, Fjarðarkaupum, Hagkaup,
Nettó, Heilsuhúsinu, Krónunni og
Melabúðinni. Ókeypis heimsend
ing ef keypt er fyrir 7.000 krónur
eða meira á eylif.is.
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Einar Bárðarson segir áhugavert að sannfæra þurfi hausinn um að verkurinn sé farinn en nú sé hann tilbúinn og farinn að hjóla og ganga um þúfur, mýrlendi, fjöll og firnindi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Heilsan er dýrmæt
Vörulína Eylíf býður upp á fimm frábærar heilsuvörur sem reynst
hafa fólki vel. Þær eru Active Joints, Stronger Bones, Smoother Skin
& Hair, Happier Guts og nýjasta varan Stronger Liver. Vörurnar eru
framleiddar á Íslandi úr hreinum, íslenskum hráefnum og engum
aukefnum er bætt við.
Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi Eylíf. „Hugmyndin að vörulín
unni kom til vegna þess að mig langaði að setja saman þau frábæru
hráefni sem framleidd eru á Íslandi á sjálfbæran hátt úr íslenskum,
náttúrulegum auðlindum og auka þannig aðgengi fólks að þessum
hráefnum,“ upplýsir Ólöf.
Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í sam
starfi við sérfræðinga frá Matís. „Við vöndum til verka, sækjum í
sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi, og notum hreina, íslenska
náttúruafurð og hrein hráefni sem eru framleidd af viðurkenndum
íslenskum framleiðendum.“
Hráefni sem notuð eru í bætiefnin frá Eylíf eru ekki erfðabreytt.
„Þau stuðla að heilbrigði og sveigjanlegri líkama því þá erum við
færari um að takast á við verkefnin í dagsins önn. Við vitum öll að
heilsan er okkur dýrmætust og því er svo mikilvægt að gæta vel að
henni og fyrirbyggja ýmis heilsufarsvandamál,“ segir Ólöf Rún.
Ég fann alltaf fyrir
seyðingi og sting í
hnénu en það er bara
alveg farið. Því duga
engar afsakanir lengur;
bara gjöra svo vel og fara
út að hreyfa sig og núna
er það bara gaman.
Einar Bárðarson
Einar ákvað að prófa líka Happier
Guts frá Eylíf þegar hann fann að Act
ive Joint var árangursríkt fyrir liðina.
Active Joints er eins og aðrar vörur
frá Eylíf unnið úr íslenskum hrá
efnum og án allra aukefna.
2 kynningarblað A L LT 1. október 2022 LAUGARDAGUR