Fréttablaðið - 01.10.2022, Side 36
Orgelhátíð barnanna fer
fram í Hallgrímskirkju í dag.
Boðið verður upp á tónleika
og skemmtilegar smiðjur
fyrir börnin.
starri@frettabladid.is
Í dag, laugardag, verða fjölskyldu-
tónleikar í Hallgrímskirkju
undir yfirskriftinni Orgelhátíð
barnanna. Þar munu Guðný
Einarsdóttir og Sigrún Magna Þór-
steinsdóttir leika nokkur af fræg-
ustu orgelverkum sögunnar ásamt
þekktum lögum úr kvikmyndum
auk þess sem þær taka nokkra
Eurovision-slagara. Efnisskráin er
tengd saman með skemmtilegri
sögu sem flutt er af Guðmundi
Einari Jónssyni, átta ára gömlum
leikara. Eftir tónleikana verður
boðið upp á spennandi smiðjur
fyrir börn í safnaðarheimilinu og í
kirkjunni.
Kolféllu fyrir hugmyndinni
Hugmyndin að hátíðinni kviknaði
haustið 2019 þegar þær vinkon-
urnar voru staddar á orgelhátíð
í Stokkhólmi. Þar tóku þær þátt í
vinnustofu þar sem meðal annars
var smíðað lítið orgel. „Við kol-
féllum fyrir þessu og fórum strax
að afla okkur upplýsinga um
hvernig væri hægt að gera svipað
verkefni hér á landi,“ segir Guðný.
„Okkur fannst þetta spennandi
en verkefnið er einstakt sinnar
tegundar á Íslandi. Þessi hugmynd
var undirliggjandi hjá okkur í þó
nokkurn tíma áður en við tókum
af skarið og pöntuðum litla orgelið
frá Hollandi og fórum að bjóða
upp á vinnusmiðjur fyrir börn.“
Heillandi hljóðfæri
Sigrún segir frábært að sjá hvað
krakkar sem koma, sjá og taka
þátt verða heilluð af þessu
hljóðfæri og kynnast hinum
ótal hljómheimum sem
koma frá orgelinu. „Mark-
miðið er auðvitað að kynna
hljóðfærið sem slíkt og
innviði þess. Í kjölfarið
kviknaði hugmyndin um
Orgelkrakkahátíð þar
sem fleiri vinnusmiðjur
væru í boði og tónleikar
miðaðir við áhugasvið
og úthald barna.“
Guðný og Sigrún
starfa báðar sem
organistar og
orgelkennarar,
Guðný er organisti í Háteigskirkju
og Sigrún Magna í Akureyrar-
kirkju.
Listgjörningur fyrir börn
Þær segja smiðjurnar eftir tónleik-
ana, sem þær kalla orgelkrakka-
vinnusmiðjur, vera listgjörning
fyrir börn sem samanstandi af
byggingarlist og tónlistarflutningi.
„Við leikum okkur með að setja
saman orgel, pípu fyrir pípu, raða
nótum og tengja við vindhlöðu,
setja saman orgelhúsið og auð-
vitað prófa hljóðfærið með því að
spila á það,“ segir Sigrún. „Orgelið
sem um ræðir er afar einfalt að
gerð, lítið og nett og stærðin passar
börnum vel. Það kemur í bitum
eða kubbum og er til þess gert að
taka í sundur og setja saman aftur.
Svona eins og Legó eða trékubbar,“
bætir Guðný við. Þær taka skýrt
fram að ekki sé nauðsynlegt að
kunna á hljóðfæri til að taka
þátt í smiðjunum.
Vinnusmiðjurnar taka tæp-
lega klukkutíma. „Aðgangur
er að sjálfsögðu ókeypis,
bæði á hátíðina sjálfa og í
smiðjurnar, en fjöldi þátt-
takenda er takmarkaður.
Því biðjum við áhugasama
um að skrá sig með tölvu-
pósti á netfangið kristny@
hallgrimskirkja.is.“
Orgelkrakkahátíðin
er styrkt af Barnamenn-
ingarsjóði, Tónlistarsjóði
og Þjóðkirkjunni.
Nánari upplýsingar
má finna á Facebo-
ok (orgelkrakkar)
og á hallgrims-
kirkja.is. n
Orgelveisla og spennandi smiðjur fyrir börn
Sigrún Magna
Þórsteinsdóttir
(t.v.) og Guðný
Einarsdóttir
skipuleggja
Orgelhátíð
barnanna sem
fer fram í Hall-
grímskirkju í
dag.
Eftir tónleikana
verður boðið
upp á spenn-
andi smiðjur.
MYND/
SIGRÚN MAGNA
ÞÓRSTEINS DÓTTIR
Fimm ný fæðubótarefni frá
Good Routine eru komin
á markað á Íslandi og hafa
slegið í gegn undanfarin
misseri. Þessi vönduðu fæðu-
bótarefni eru gerð úr nátt-
úrulegum innihaldsefnum
og geta stuðlað að bættri
heilsu á ólíkan hátt, meðal
annars með því að vernda
þvagfærakerfið, styrkja
ónæmiskerfið og bæta
meltingu.
Good Routine framleiðir gæða
fæðubótarefni með náttúrulegum
innihaldsefnum og einstakri
blöndun og samvirkni inni-
haldsefna. Fæðubótarefnin eru
kröftug og virka hratt, hafa hátt
næringargildi og upptaka þeirra í
líkamanum er góð. Þau innihalda
auk þess engin algeng ofnæmis- eða
aukaefni.
Fæðubótarefnin eru framleidd á
Spáni eftir einkaleyfisvörðum og
vísindalega skrásettum formúlum
Secom®, en hér er um að ræða
einstaklega vandaðar vörur og
háþróuð bætiefni.
Loksins á Íslandi
Núna fást fimm af vörum Good
Routine á Íslandi. Þær eru: Com-
fort-U®, sem veitir þvagfæra-
kerfinu stöðuga vernd, Daily-D3
2000 IU®, sem er D3-vítamín af
náttúrulegum uppruna, Synergize-
Your-Gut®, sem er fyrir þarma-
heilsu og heilbrigða þarmaflóru,
Pure Omega-3, sem er kraftmikið
ómega-3 í gelhylkjum, og C-Your-
Immunity®, sem inniheldur
C-vítamín, quercetin, hesperidin
og bromelain í einu hylki og hjálpar
fólki sem er viðkvæmt fyrir kulda
og hitabreytingum. Von er á fleiri
vörutegundum frá vörumerkinu
bráðlega.
Ásamt því að sérhæfa sig í fæðu-
bótarefnum leggur Good Routine
einnig mikla áherslu á að stuðla að
vitundarvakningu um að góðar
venjur séu lykilatriði þess að líða
vel alla daga. Það spannar allt frá
hreyfingu og næringu til andlegrar
heilsu.
Vönduð og spennandi fæðubótar-
efni með mikla virkni
Unnur Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá Engey kids,
hefur verið að prófa nýju fæðu-
bótarefnin frá Good Routine
undanfarnar vikur og er mjög
ánægð með virkni þeirra. Hún
hefur verið að nota Daily-D3 2000
IU®, Synergize-Your-Gut® og C-
Your-Immunity®.
„Ég hef tekið þetta inn í um
3-4 vikur og þetta eru mjög góð
bætiefni. Ég hef ágætis þekkingu á
fæðubótarefnum því ég hef alltaf
hugsað vel um mig og ég fann það
strax að þetta er frábær vara,“ segir
hún.
„Ég frétti af þessum fæðubótar-
efnum í gegnum vinafólk og sá
þetta í verslunum og fannst þetta
strax mjög spennandi. Ég hef
alltaf verið áhugamanneskja um
bætiefni, eins og ég segi, svo ég var
ánægð með að fá að prófa eitthvað
nýtt og spennandi,“ segir Unnur.
„Mér finnst virkilega hafa verið
vandað til verka og þetta er mjög
fjölbreytt lína af fæðubótarefnum
svo ég á eftir að prófa fleiri efni, en
þetta lofar mjög góðu hingað til og
mér finnst allt við þetta merki mjög
faglegt.“
Betri melting og þarmaflóra
„Maður vill alltaf hugsa vel um sig
og nú er ég orðin amma, svo ég þarf
að hugsa vel um ónæmiskerfið og
meltinguna og mér finnst áhrifin af
Synergize-Your-Gut® sérstaklega
eftirtektarverð og jákvæð,“ segir
Unnur. „Ég hef tekið eftir því að
meltingin hefur orðið betri og það
sé meira jafnvægi á þarma flórunni.
Það kom mér eiginlega á óvart hvað
ég finn mikið fyrir þessu, sérstak-
lega þar sem ég hef ekki notað þetta
lengi.
Ég myndi virkilega mæla með
þessum fæðubótarefnum. Ég hef
mikla trú á þessum vörum og
góða tilfinningu fyrir þeim,“ segir
Unnur. „Ég held líka að þau sem
fylgjast með í vítamínheiminum
eigi eftir að sjá það fljótt hvað þetta
er vönduð og flott vara.“ n
Good Routine fæðubótarefnin
fást í Hagkaup, Lyfjum & heilsu,
Apótekaranum og Krónunni.
Good Routine bætti meltinguna til muna
Unnur Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Engey kids, hefur verið að
prófa nýju fæðubótarefnin frá Good Routine undanfarnar vikur og er mjög
ánægð með virkni þeirra. MYND/AÐSEND
Synergize-Your-Gut® hjálpar til við þarmaheilsu og heilbrigða þarmaflóru. MYND/AÐSEND
4 kynningarblað A L LT 1. október 2022 LAUGARDAGUR