Fréttablaðið - 01.10.2022, Síða 39
Við viljum að
starfsfólk viti frá
upphafi til hvers er
ætlast af því og að það
geti mætt þeim kröfum.
Valur Hólm
Um 220 ráðgjafar starfa
hjá ELKO sem er stærsta
raftækjaverslun landsins.
Þjálfun starfsmanna er einn
af lykilþáttunum í rekstri
fyrirtækisins.
ELKO er stærsta raftækjaverslun
landsins og hjá fyrirtækinu starfa
um 220 traustir ráðgjafar, f lestir í
fullu starfi, og margir hverjir með
mjög háan starfsaldur, segir Valur
Hólm, þjálfunarstjóri ELKO. „ELKO
er með sex verslanir ásamt því að
reka eina öflugustu vefverslun
landsins og starfsfólk okkar er fjöl
breyttur hópur sem hefur sérhæft
sig á sviði raftækja og þjónustu.
Við leggjum mikla áherslu á að
bjóða upp á gott úrval af þekktum
vörumerkjum á sviði raftækja
á lágu verði, ásamt því að veita
viðskiptavinum framúrskarandi
þjónustu og eftirkaupaþjónustu og
til þess þarf að leggja metnað í við
eigandi þjálfun og fræðslu. Einnig
þarf að tryggja að starfsfólk hafi
greiðan aðgang að upplýsingum
og fái stuðning í starfi og tæki
færi til starfsþróunar. Þetta hefur
aukið sjálfsöryggi og þekkingu
starfsfólks, sem skilar sér í meiri
starfsánægju og viðskiptavinir
verða ánægðari með þá þjónustu
sem þeir fá.“
Hann segir það ekki leyna á
sér að að fræðsla skipti starfsfólk
ELKO miklu máli. „Við höldum
árlega vinnustofu með öllu okkar
starfsfólki, sem við köllum Besta
vinnustaðinn, þar sem leitað er að
áskorunum, tækifærum og hug
myndum um hvernig starfsfólk og
ELKO getur gert betur.“
Starfsfólk kallaði
eftir breytingum
Niðurstöður vinnustofunnar árið
2020 leiddu í ljós að ELKO þyrfti
að gera betur í þjálfunarmálum
og í kjölfarið var stöðu þjálfunar
stjóra komið á fót. „Raftækja
markaðurinn er ört vaxandi og í
sífelldri þróun, og því nauðsynlegt
að fyrirtækið bjóði upp á fræðslu
og þjálfun í takt við þróunina.
Á ábyrgðarsviði þjálfunarstjóra
er að halda utan um alla fræðslu
innan fyrirtækisins ásamt því að
koma auga á og styðja við ýmsar
umbætur í starfsumhverfi og
starfsþróun. Hlutverk okkar er að
hjálpa öllum að njóta ótrúlegrar
tækni og er megináhersla lögð á
ánægju viðskiptavina. Við mætum
viðskiptavinum okkar þar sem
þeir eru og svörum þeim í gegnum
hvaða miðil sem er, til dæmis
með tölvupósti, síma, netspjalli,
snjallspjalli eða á samfélags
miðlum.“
Allir ferlar skýrir
ELKO er með mjög öfluga nýliða
þjálfun sem hefst í raun strax
í ráðningarferlinu, segir Valur.
„Við viljum að starfsfólk viti frá
upphafi til hvers er ætlast af því
og að það geti mætt þeim kröfum.
Við höldum nýliðanámskeið og í
kjölfar þess tekur við starfsþjálfun
ELKO, þar sem hver og einn fær
sinn starfsþjálfara. Hluti hverrar
vinnuviku er helgaður starfs
mannafræðslu, sem miðar meðal
annars að því að kynna nýjar
vörur og skerpa á þekkingu um
eldri vörur ásamt þjónustutengdri
fræðslu. Við leggjum mikla áherslu
á góð samskipti, bæði við við
skiptavini og samstarfsfólk.“
Með því að vera með skýrt ferli
fyrir nýráðið starfsfólk er ELKO
betur í stakk búið til að tryggja
jákvæð tengsl ELKO og nýliðans og
þar gegna starfsþjálfarar lykilhlut
verki. „Eitt af því sem þeir gera er
að fara með nýliða á kaffistofuna
og sjá til þess að þeir kynnist bæði
fólkinu og vinnustaðnum. Hluti af
því er að kynna menningu ELKO
og fara yfir nytsamleg atriði hvort
sem þau eru fagleg eða félagsleg.“
Starfsþjálfarar veita auk þess
félagslegan stuðning sem miðar
að því að nýliðar kynnist sam
starfsfélögum og félagslífinu sem
fyrst, en það er mikil samheldni
og vinskapur meðal starfsfólks á
starfsstöðvum og á milli verslana.
„Með þessu er dregið úr óöryggi og
kvíða, sem stundum gerir vart við
sig í nýju starfi. Markmiðið er að
nýliðum líði vel og nái fljótt þeirri
færni að geta starfað sjálfstætt
enda er það allra hagur.“
Eru með háleit markmið
Árið 2021 var settur á laggirnar
fræðsluvefur fyrir starfsfólk ELKO.
Tilgangur hans er að vera starfs
fólki innan handar, hvort sem það
vantar upplýsingar um ákveðinn
vöruflokk eða hvernig sinna eigi
ákveðnum ferlum. „Þar er að finna
leiðbeiningar, vöruupplýsingar
og annað starfsmannatengt efni
eins og velferðarpakka og öryggis
handbók ELKO. Enska er ráðandi
tungumál í raftækjaheiminum
en með því að gera upplýsingar
aðgengilegar á íslensku er starfs
fólki auðveldað að öðlast betri
þekkingu á þeim vörum sem ELKO
býður ásamt því að styrkja okkur í
að svara á skýran og einfaldan hátt
spurningum viðskiptavina.“
Starfsfólk ELKO er í framlínunni
alla daga og það gefur augaleið að
ýmislegt getur komið upp á, segir
Valur. „Á hverju ári höldum við því
öryggisnámskeið þar sem starfs
fólkið lærir rétt viðbrögð ef upp
kemur ógnandi hegðun auk fleiri
öryggistengd atriði. Vinnunni
er aldrei lokið og við erum sífellt
að reyna að gera móttöku nýliða
betri. Við erum enda með það
háleita markmið að ELKO veiti
bestu nýliðafræðslu á raftækja
markaði árið 2023. Nýliðafræðslan
miðar að því að skila traustum ráð
gjöfum í raftækjum í allar stöður
fyrirtækisins.“
Ánægja með fræðsluna
Valur segir stjórnendur ELKO líta
svo á það sé verðmætt að starfs
fólkið meti þá þjálfun sem það fær.
„Þannig getum við betrumbætt
fræðsluumhverfið. Starfsfólkið
hefur verið duglegt að svara könn
unum og koma með ábendingar
ásamt því að gefa námskeiðum og
kynningum heildareinkunn. Svör
við slíkum könnunum eru ekki
persónugreinanleg. Sem dæmi
má nefna að frá því að skipulögð
fræðsla hófst sumarið 2021 til
ársloka var samtals boðið upp á
rúmlega þrjátíu námskeið fyrir
starfsfólk ELKO og mældist ánægja
þátttakenda að meðaltali 4,7 af 5
mögulegum. Við erum því mjög
ánægð með útkomuna en teljum
enn vera svigrúm til bætingar.“
Boðið upp á fjölbreytta fræðslu
„Við erum alltaf að reyna að gera
betur, og til þess að ná því mark
miði að bjóða upp á bestu nýliða
fræðsluna þurfum við að skoða
alla ferlana okkar,“ segir Valur. „Við
ætlum að leggja jafnmikla áherslu
á rafræna fræðslu og staðkennslu,
í samræmi við óskir starfsfólks. Í
lok september innleiddum við nýtt
samskiptakerfi fyrir starfsfólk, í
formi smáforrits. Þar sjáum við ný
tækifæri til að efla upplýsingagjöf
sem og rafræna fræðslu. Jafnframt
sjáum við fram á að nýta rúm
góðan sal í nýju versluninni okkar
í ELKO Skeifunni sem kennslustofu
og þá getum við boðið upp á enn
betri starfsmannafræðslu, sem og
haldið námskeið fyrir viðskipta
vini.“
Í vetur mun ELKO ekki einungis
bjóða upp á kennslu sem tengist
beint starfsemi ELKO, heldur mun
starfsfólk hafa aðgang að margs
konar fræðslu sem gagnast því í
víðara samhengi, í frekari starfs
þróun eða námi. „Þetta er mjög
fjölbreytt, allt frá tímastjórnun,
markmiðasetningu og betri svefni,
til myndvinnslu, Excel og vefsíðu
gerðar, svo dæmi séu tekin.“
Styðja heilbrigðan lífsstíl
Valur segir stjórnendum ELKO
vera umhugað um að starfsfólkinu
líði vel. „Árið 2021 var velferðar
pakki kynntur til leiks til að stuðla
að bættri andlegri og líkamlegri
heilsu starfsmanna. Í gegnum
hann getur starfsfólk fengið sál
fræðitíma, áfallahjálp, lífsstílsráð
gjöf, hjónabandsráðgjöf, starfs
lokanámskeið og margt fleira.“
Auk þess styður ELKO einnig
við heilbrigðan lífsstíl og heilbrigt
mataræði hjá sínu starfsfólki. „Á
öllum starfsstöðvum ELKO er
niðurgreiddur hádegismatur í boði
fyrir starfsmenn ásamt því að þeim
stendur til boða að fá sér millimál
eins og ávexti og heilsustangir.“
Einnig er lögð áhersla á að það
sé gaman í vinnunni. „Við teljum
að gott félagslíf starfsmanna
geri vinnustaðinn enn betri.
Því reynum við að gera eitthvað
skemmtilegt saman að minnsta
kosti einu sinni í mánuði og ELKO
styrkir slíka viðburði. Á hverri
starfsstöð er skemmtinefnd sem
sér um skipulag, hvort sem það er
að fara í pílu, keilu, halda spila
kvöld eða fara í bíó, svo eitthvað sé
nefnt. ELKO býður öllu starfsfólki
upp á íþróttastyrk og leigir líka
íþróttasal einu sinni í viku til þess
að starfsfólk geti hist, farið í fót
bolta eða eitthvað slíkt.“
Í sumar var yfir þrjátíu starfs
mönnum ELKO boðið til Noregs
til þess að mæta á eina stærstu raf
tækjaráðstefnu Norðurlandanna.
„Þar fékk starfsfólk tækifæri til þess
að kynnast framleiðendum, prófa
nýjustu vörurnar þeirra og efla
kunnáttu sína. ELKO styður við
starfsþróun og hvetur starfsmenn
til að bæta sig í starfi og einkalífi,
oft verður það til þess að það fær
ný tækifæri í öðrum starfsgreinum
sem við fögnum. Okkar markmið
er að starfsfólk læri eitthvað nýtt,
öðlist aukið sjálfstraust og hugsi
með hlýju og jákvæðni til fyrir
tækisins, komi til þess að það leiti á
ný mið á sínum starfsferli.“ n
Þjálfunin hefst strax í
ráðningarferlinu
„Við ætlum að leggja jafnmikla áherslu á rafræna fræðslu og staðkennslu, í samræmi við óskir starfsfólks,“ segir Valur
Hólm, þjálfunarstjóri ELKO, en fyrirtækið hefur mjög metnaðarfulla þjálfunarstefnu. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Þú getur fundið allar kaupnótur þínar á elko.is. MYND/ELKO
kynningarblað 3LAUGARDAGUR 1. október 2022 Mannauður