Fréttablaðið - 01.10.2022, Qupperneq 42
ræða hlutina hreint og beint á fag-
legum nótum og svo hefur hún líka
áralanga reynslu sem grunnskóla-
kennari og hefur því dýrmæta
innsýn í okkar heim.“
Eru þið með einhvers konar
mælikvarða á árangur vinnunnar?
„Samskiptavinnan gengur vel og
vinnan með Sigríði að topphegðun
og botnhegðun er lykillinn að
árangri okkar. Það vilja allir vera á
vinnustað þar sem fólki líður vel og
þess vegna vilja allir ná fram enn
betri samskiptum. Þetta er því svo
sannarlega að skila sér. Það þarf að
vera traust til að vinna með það
sem kemur upp og þar getum við
öll horft inn á við. Hverju getum
við breytt hjá okkur sjálfum? Hér
er enginn ofar öðrum, við erum öll
jafn mikilvæg,“ segir Lovísa.
„Það hvað við sjáum góðar og
jákvæðar breytingar kom okkur
ánægjulega á óvart. Námskeiðin
hafa hjálpað okkar vinnu, því það
getur verið svo flókið að vinna í
þessum samskipta- og hegðunar-
málum, en eftir að við fengum
Sigríði inn gengur þetta frábærlega
fyrir sig. Þetta snýst um að leggja
áherslu á styrkleika og tala um
hvaða hegðun við viljum sjá og ná
fram – bæði hjá okkur sjálfum og
hverju öðru, þar sem hver og einn
ber ábyrgð á sér. Það er gaman að
sjá hvað fólk er samtaka í þessu,
enda áttar fólk sig á áhrifunum.
Þetta gerir okkur líka miklu auð-
veldara að taka á málum. Þetta
hefur gengið vonum framar, fólk
er ánægt með þessa vinnu því
okkur langar öllum að líða vel í
vinnunni og hér í Hólabrekkuskóla
höfum við valið að setja fókusinn á
gleðina.“ n
Sigríður Indriðadóttir hjá SAGA
Competence vinnur mikið með
öflugum stjórnendum sem vilja
gera góðan vinnustað enn betri.
sagac.is
Reykjavíkurborg, fjölmenn-
asti vinnustaður landsins,
er lifandi og skemmtilegur
vinnustaður með sterkt
aðdráttarafl fyrir hæfileika-
ríkt fólk á öllum aldri sem
vinnur í þágu borgarbúa.
„Meðal þess sem einkennir mann-
auðsstarf hjá borginni er áhersla á
heilsu og vellíðan starfsfólks og er
litið svo á að það skili sér í aukinni
ánægju og bættri þjónustu til borg-
arbúa. Allt starfsfólk getur fengið
frítt sundkort og menningarkort
hjá borginni, auk árlegs styrks til
heilsuræktar. Mikil starfsánægja
mælist meðal starfsfólks borgar-
innar og sýnir viðhorfskönnun á
þessu ári að 87 prósent starfsfólks
eru ánægð í vinnunni, 84 prósent
telja góðan starfsanda á sínum
vinnustað og að ríflega 82 prósent
starfsfólks upplifa jafnvægi milli
starfs og einkalífs.“
Þetta segir Lóa Birna Birgis-
dóttir, sviðsstjóri mannauðs- og
starfsumhverfissviðs hjá Reykja-
víkurborg.
Hjá Reykjavíkurborg starfa
að meðaltali tæplega 12 þúsund
starfsmenn á um 350 starfsstöðum
sem veita borgarbúum fjölbreytta
þjónustu. Fjölbreytni starfa er
afar mikil en stærstu fagstéttirnar
eru grunn- og leikskólakennarar,
félagsráðgjafar, sálfræðingar,
hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar,
þroskaþjálfar, verkfræðingar og
viðskiptafræðingar.
„Stjórnendahópur borgarinnar
telur tæplega 600 manns. Starfs-
fólk af erlendum uppruna er um
1.100 talsins og er lögð áhersla á
að sem flest þeirra geti nálgast
íslenskukennslu á sínum starfs-
stað á vinnutíma,“ upplýsir Lóa
Birna.
Fag- og kjarnasvið borgarinnar
eru alls átta og á hverju sviði eru
mannauðsstjórar sem stýra mann-
auðsþjónustu hvers sviðs.
„Mannauðs- og starfsum-
hverfissvið er kjarnasvið sem fer
með forystuhlutverk og hefur
yfirumsjón með mannauðsmálum
borgarinnar, auk þess að styðja við
stefnu og megináherslur borgaryf-
irvalda. Sviðið hefur meðal annars
það hlutverk að móta stefnur og
verklag á sviði mannauðsmála og
halda utan um verkefni sem ganga
þvert á borgarkerfið. Þannig á
sviðið að stuðla að því að samhæfa
og samræma vinnubrögð á sviði
mannauðsmála,“ segir Lóa Birna.
Samskiptamiðillinn Fróði
Reykjavíkurborg hefur sett sér
metnaðarfulla mannauðsstefnu
sem stýrir áherslum borgarinnar í
mannauðsmálum.
„Mannauðs- og starfsum-
hverfissvið vinnur markvisst
að framtíðarsýn Reykjavíkur-
borgar í mannauðsmálum; það
er að Reykjavíkurborg sé vinnu-
staður með aðdráttarafl fyrir
hæfileikaríkt og metnaðarfullt
fólk sem vinnur í þágu borgarbúa.
Gildistími mannauðsstefnunnar
er til ársins 2025 og á þeim tíma
er markmiðið að öll starfsemi
borgarinnar einkennist af fag-
mennsku og framsækni,“ segir
Auður Björgvinsdóttir, skrifstofu-
stjóri ráðningar og mönnunar.
Til að ná þessu markmiði er
borgin meðal annars að innleiða
umtalsverða tækniþróun með staf-
rænni umbreytingu. Sem dæmi
um stafræn umbreytingaverkefni
í mannauðsmálum má nefna
nýtt ráðningakerfi, nýtt stafrænt
fræðslukerfi og nýtt kerfi fyrir
atvikaskráningar tengdar öryggis-
málum og vinnuvernd.
„Þótt starfsfólk borgarinnar
starfi um alla borg er markmiðið
að starfsfólk upplifi borgina sem
einn vinnustað sem einkennist
af fjölbreytni, sterkri menningu,
sveigjanleika og samheldni og til
að ná því er meðal annars lögð
áhersla á þverfaglegt samstarf,
stuttar boðleiðir og virkt upp-
lýsingastreymi. Í þeim tilgangi er
rekinn sameiginlegur innri vefur, –
Fróði – og Workplace er notað sem
innri samskiptamiðill fyrir allt
starfsfólk. Árlega er haldinn stjórn-
endadagur fyrir alla stjórnendur
borgarinnar og var sumarhátíð
fyrir allt starfsfólk og fjölskyldur
haldin í fyrsta sinn í sumar,“ upp-
lýsir Ásta Bjarnadóttir, skrifstofu-
stjóri starfsþróunar og starfsum-
hverfis hjá Reykjavíkurborg.
Traust og jafnvægi í samskiptum
Leiðarljós Reykjavíkurborgar, sem
móta og stýra áherslum í mann-
auðsmálum, eru mannvæn, sam-
ræmd, traust og snjöll.
„Í því felst að Reykjavíkurborg
mætir síbreytilegum þörfum
vinnustaðarins og starfsfólks. Að
allt starfsfólk sýni ábyrgð og lág-
marki sóun til að bæta þjónustu
og samfélagið í borginni. Lögð
er áhersla á að starfsfólk fái jöfn
tækifæri og er borgin stolt af því
að hafa innleitt styttingu vinnu-
vikunnar á öllum starfsstöðum og
verið í fararbroddi með jafnrétti
í launakjörum og jafnlauna-
vottun. Lengi hefur verið fylgst
með kynbundnum launamun hjá
Reykjavíkurborg en borgin hefur
innleitt jafnlaunakerfi og hlaut
fyrst jafnlaunavottun árið 2019. Á
undanförnum árum hefur dregið
mjög úr þessum launamun og
mældist leiðréttur kynbundinn
launamunur (á heildarlaunum) alls
starfsfólks aðeins 0,4 prósent árið
2021,“ greinir Lóa frá.
„Borgin vill einnig stuðla að
trausti og jafnræði í samskiptum
milli starfsfólks, að því sé skapað
öruggt umhverfi og lögð er áhersla
á gagnkvæma virðingu í öllum
samskiptum, sem kemur meðal
annars fram í öflugu forvarnastarfi
og viðbragðsáætlunum gegn einelti
og áreitni. Markvisst er unnið að
því að skapa aukna öryggismenn-
ingu með markvissri innleiðingu
á nýrri öryggisstefnu, sem felur í
sér áhættumat starfa, öryggis- og
heilbrigðisáætlanir og samræmda
atvikaskráningu,“ greinir Ásta frá.
Hún segir Reykjavíkurborg vera
framsækinn vinnustað sem hvetji
til þverfaglegrar starfsþróunar.
„Með því að horfa til framtíðar
vinnum við í sameiningu að því
að takast á við áskoranir, tileinka
okkur nýja tækni og grípa tæki-
færi þegar þau gefast. Á næstunni
verður opnað í áföngum nýtt staf-
rænt fræðslukerfi – Torgið – sem
verður vettvangur fyrir fjölbreytta
fræðslu fyrir allt starfsfólk. Þar
mun fólk nálgast nýliðafræðslu,
fræðslu um upplýsingatækni,
stjórnun og heilsutengd málefni,
auk sértækrar vinnutengdrar
fræðslu og skyldufræðslu sem
ræðst af starfi og starfsvettvangi
hvers og eins.
Mannauðs- og starfsum-
hverfissvið leggur áherslu á öfluga
mannauðsþjónustu í því skyni að
laða að, styðja við og þróa starfs-
fólk og stjórnendur, svo þjóna megi
borgarbúum sem best og skapa
virðingu og traust samfélagsins,“
segir Ásta. n
Fjölbreytni og framsækni í fyrirrúmi
Frá vinstri: Ásta Bjarnadóttir, Auður Björgvinsdóttir og Lóa Birna Birgisdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Öll getum við verið sammála
um að mannauður er okkar
dýrmætasta auðlind og getur
fjárfesting í mannauði skilað
sér margfalt til baka.
Lovísa Guðrún Ólafsdóttir, skóla-
stjóri Hólabrekkuskóla, sat skóla-
stjóraráðstefnu á Akureyri haustið
2021 þar sem Sigríður Indriða-
dóttir, framkvæmdastjóri SAGA
Competence, var með erindi um
meðvirkni í stjórnun.
„Sigríður hefur einstakt lag á
að koma orðum á hegðun sem við
höfðum ekki heyrt áður og talaði
einfaldlega mannamál,“ sagði
Lovísa, er hún var spurð hvers
vegna þau fengu Sigríði í lið með
sér til að efla vinnustaðamenn-
inguna í skólanum.
„Við höfum verið að skilgreina
hvaða hegðun við viljum hafa á
okkar vinnustað og einblínt á að
fólki líði vel í starfi, því það hefur
auðvitað áhrif á líðan og árangur
nemenda okkar. Sigríður setti orð
á hegðun og frammistöðu sem við
höfðum ekki heyrt áður og opnaði
á nýjan heim þegar kemur að sam-
skiptum og frammistöðu á vinnu-
stað. Hún talaði um meðvirkni,
topphegðun og botnhegðun, sem
er ný nálgun sem okkur skóla-
stjórnendum Hólabrekkuskóla
þótti spennandi að nýta til að
byggja upp enn betri vinnustaða-
menningu þar sem áherslan er
á öflugri liðsheild og hvetjandi
starfsanda. Við fengum Sigríði því
til að koma til okkar strax þarna
um haustið,“ greinir Lovísa frá.
„Við erum að vinna með Uppeldi
til ábyrgðar, sem er þekkt skóla-
stefna og snýst um að taka ábyrgð
á eigin hegðun. Þar eru mörg góð
verkfæri sem við erum að kenna
nemendum og verkfærin sem
Sigríður hefur gefið starfsfólkinu
okkar tóna vel við þessa aðferða-
fræði.“
Hvað er það sem Sigríði tekst að
ná út úr starfsfólkinu ykkar?
„Við erum öll mannleg og sýnum
mörg lærða hegðun úr æsku sem
við áttum okkur ekki á.
Okkur fullorðna fólkinu hættir
stundum til að tala í kringum hlut-
ina, en ekki stíga inn í aðstæður og
taka á þeim og þar hefur Sigríður
fært okkur ýmis verkfæri sem
við getum nýtt okkur þannig að
við séum öll á sömu blaðsíðu og
meðvituð um hvað gildir á okkar
vinnustað og hvað ekki. Þannig
verður miklu auðveldara að stíga
inn í aðstæður og halda okkur
öllum samábyrgum í því,“ svarar
Lovísa og bætir við:
„Að byggja upp góðan vinnu-
stað er eilífðarverkefni sem við
munum halda áfram að vinna
með um ókomna tíð. Við viljum
að allt starfsfólk sé lykilstarfsfólk,
til að ná því þurfum við að setja
markmið svo öll nái að nýta sína
styrkleika, en þar hefur Sigríður
aðstoðað okkur.
Að fá utanaðkomandi aðstoð,
eins og Sigríður hefur veitt, hefur
reynst ómetanlegt í þessu ferli.
Bæði hefur hún hjálpað okkur að
Settu fókusinn
á gleðina
Lovísa Guðrún
Ólafsdóttir,
skólastjóri
Hólabrekku-
skóla og Sigríður
Indriðadóttir,
framkvæmda-
stjóri SAGA
Competence.
FRÉTTABLAÐIÐ/
eRnIR
Samskiptavinnan
gengur vel og
vinnan með Sigríði að
topphegðun og botn-
hegðun er lykillinn að
árangri okkar.
Lovísa Guðrún Ólafsdóttir
6 kynningarblað 1. október 2022 LAUGARDAGURMannauður