Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 45
Mannauðsstjórar innan
smásölufélagsins Festi eru
allir sammála um að sam-
vinna í mannauðsmálum sé
lykillinn að farsælli vegferð
innan félagsins.
„Við finnum að með samvinnu
er falin mikil hagræðing milli
rekstrareininga og að með henni
sé ómetanlegur stuðningur aldrei
langt undan,“ segir Valgerður
María Friðriksdóttir, mannauðs-
stjóri Festi. Hjá Festi starfa um tvö
þúsund manns. Mannauðsteymið
þarf því oft að halda mörgum
boltum samtímis á lofti til að ýta
úr vör hinum ýmsu verkefnum, svo
sem fræðslu, ráðningum, viðhaldi
vinnustaðamenningar og upplýs-
ingagjöf til starfsfólks.
Innan Festi starfa fimm mann-
auðsstjórar þar sem hvert og eitt
rekstrarfélag er með sinn mann-
auðsstjóra: móðurfélagið Festi,
N1, Krónan, ELKO og Bakkinn
vöruhótel. „Við vinnum því náið
saman að mannauðsmálum innan
félagsins og finnum að Festi græðir
mikið á samvinnunni og aðstoð
milli rekstrarfélaga,“ segir Val-
gerður.
Öll græða á samvinnu
Hlutverk mannauðsdeildar Festi
er margþætt. „En þau felast einna
helst í því að styðja við rekstrar-
félög innan félagsins og veita
virðisaukandi upplýsingagjöf,
ráðgjöf og þjónustu til starfsfólks
innan samstæðunnar. Mannauðs-
deildin sér einnig um öll verkefni
sem tengjast mannauðsmálum
fyrir félögin, allt frá ráðningum til
starfsloka, ásamt launavinnslu,“
segir Valgerður.
Hún segir markmið mannauðs-
stjóra Festi vera að bjóða framúr-
skarandi og eftirsóttan vinnustað
þar sem ýtt er undir starfsþróun
og heillandi vinnumenningu. „Það
væri ekki hægt án samvinnu allra
félaga innan samstæðunnar og því
hefur sameining mannauðsdeildar
í eina heildstæða deild innan Festi
meðal annars gert okkur kleift að
vinna saman að því að uppfæra
og sameina allar okkar stefnur,
svo sem mannauðs-, jafnlauna- og
jafnréttisstefnur, og að byggja upp
rafræna fræðslu meðal starfsfólks
okkar sem hefur reynst okkur afar
vel.“
Allar upplýsingar í lófanum
Mannauðsdeild Festi hefur á
síðustu misserum lagt mikla vinnu
í innleiðingu á fræðslu- og sam-
skiptaappi félagsins sem ýtt var úr
vör í byrjun þessa árs. „Appinu er
einna helst ætlað að halda starfs-
fólki rekstrarfélaganna upplýstu.
Við veitum þar nauðsynlegar upp-
lýsingar, auk þess að stuðla að og
veita þjálfun og fræðslu á einum og
sama vettvanginum. Stór ávinn-
ingur er einnig stytting boðleiða
þar sem hægt er að hafa beint
samband við til dæmis verslunar-
stjóra, vaktstjóra eða stöðvarstjóra
í hverri verslun eða þjónustustöð
fyrir sig, okkur mannauðsstjórana
sem og annað samstarfsfólk,“ segir
Erla María Sigurðardóttir, mann-
auðsstjóri Krónunnar.
Snjallforritið er byggt á grunni
danska fyrirtækisins Relesys
sem sérhæfir sig í stafrænum
fyrirtækjalausnum með áherslu
á fræðslu og samskipti. „Festi var
fyrsta fyrirtækið til að hefja notk-
un á lausninni hér á landi,“ segir
Erla María. Mörg íslensk fyrirtæki
hafa sýnt kerfinu og reynslu Festi
áhuga frá innleiðingu þess og það
sé frábært að sjá áhugann meðal
mannauðsfólks hér á landi.
„Vinnan við þróun lausnarinnar
hófst innan Festi árið 2020 þar
sem hugmyndin var að koma
upp fræðslukerfi fyrir starfsfólk
samsteypunnar. Hugmyndin
þróaðist þó fljótt yfir í sameigin-
legt fræðslu- og samskiptakerfi þar
sem starfsfólk getur nálgast allar
helstu upplýsingar sem snúa að
starfinu á einum og sama staðnum
og átt í samskiptum við samstarfs-
fólk, hvar og hvenær sem er,“ segir
hún.
Mjög góðar viðtökur
„Nánast allt starfsfólk Krónunnar
hefur sótt sér appið, sem telur um
þúsund manns og teljast 80% nú
virkir notendur. Við erum í skýj-
unum með viðtökurnar og þennan
góða árangur.“
Erla María bætir við að inn-
leiðing lausnarinnar innan Festi
hafi verið afar lærdómsríkur tími
þar sem mannauðsstjórarnir hafi
unnið náið saman að þróun kerfis-
ins innan sinna rekstrareininga.
„Við höfum einnig farið saman á
vinnustofur í Kaupmannahöfn,
þar sem Relesys er með bæki-
stöðvar sínar, og höfum þar fengið
reynslusögur frá öðrum erlendum
fyrirtækjum sem hafa innleitt
þessa lausn innan sinna herbúða.
Það hafa verið afar lærdómsríkar
og mikilvægar ferðir sem hafa gert
teyminu mikið gagn,“ segir Erla
María.
Björg Ársælsdóttir, mannauðs-
stjóri N1, tekur undir með Erlu.
„Við getum nýtt okkur tæknina
mun betur þegar kemur að mann-
auðsmálum, þá sérstaklega hvað
varðar fræðslu og samskipti,“ segir
hún. „Það er gríðarlega mikilvægt
að geta miðlað upplýsingum til
starfsfólks okkar á handhægan og
auðveldan hátt og þar mun appið
skipta sköpum. Eins og staðan er
í dag er appið á íslensku og ensku
og stefnum við að því að pólska
og víetnamska verði einnig í boði
sem tungumál.“
Hún bendir á að öll nýliðaþjálf-
un muni fara fram í appinu í formi
myndbanda. „Kosturinn við þá
boðleið er einna helst sá að auðvelt
er að bæta við myndböndum og
annarri fræðslu þegar þörf er á, til
dæmis þegar innleiða á nýjar þjón-
ustulausnir innan starfsstöðvar.
Í appinu getur nýr starfskraftur
einnig aflað sér allra nauðsynlegra
upplýsinga sem starfinu tengist.“
Nefnir hún til að mynda upp-
lýsingar um velferðarpakka
Festi, tækifæri til starfsþróunar
og fríðindi í starfi. „Við hlökkum
til að þróa þennan vettvang á
komandi misserum með dyggri
aðstoð mannauðsins okkar sem
hefur tekið virkilega vel í lausnina
og hjálpað okkur að móta hana að
okkar þörfum,“ bætir Björg við.
Velferðarpakkinn vinsæll
Festi leggur veigamikla áherslu
á velferð og vellíðan starfsfólks
síns, hvetur til heilbrigðs lífernis
og stuðlar að jöfnum tækifærum.
Björn Másson, mannauðsstjóri
ELKO, segir markmið félagsins að
starfsfólkinu líði vel, bæði í starfi
og utan þess. „Við ýttum því til
stuðnings velferðarpakka Festi úr
vör í fyrra,“ segir hann.
„Velferðarpakkanum er ætlað að
stuðla að bættri andlegri og líkam-
legri heilsu og getur allt starfsfólk
innan félagsins nýtt sér pakkann.
Skiptir þar engu hvort um sé að
ræða starfskraft í hlutastarfi eða
fullu starfi.“
Innihald velferðarpakkans er
margþætt og standa starfsfólki til
boða hinir ýmsu styrkir, aðstoð
og velferðarþjónusta, svo sem
íþróttastyrkir, sálfræðiaðstoð, ráð-
gjöf sjúkraþjálfara, félagsráðgjafa
eða næringarfræðings. „En einnig
markþjálfun og ráðgjöf sem snýr
að hjónabandi, uppeldi, fjölskyldu
eða einelti,“ segir Björn.
Hlynur Þór Þorleifsson, mann-
auðsstjóri Bakkans vöruhótels,
telur að góður stuðningur og
hvatning innan vinnustaðar sé
lykilatriði þegar kemur að vellíðan
og velferð mannauðs. „Öll sem
starfa innan samstæðunnar eru í
hvívetna hvött til að nýta sér vel-
ferðarpakkann þar sem þörf er á,“
segir hann.
„Starfsfólk innan félagsins hefur
einna helst sóst í þjónustu sem
snýr að bættri andlegri heilsu en
einnig er íþróttastyrkurinn vel
nýttur sem er ánægjuefni. Mark-
vissar lýðheilsustefnur innan
fyrirtækja eru farnar að skipta
miklu máli þegar á að laða að sér
gott starfsfólk og leitar fólk oft
frekar í störf innan fyrirtækja
sem huga að slíkum málum,“ segir
Hlynur. n
Ramma mannauðsmálin inn
með sterkri umgjörð
Við vinnum því
náið saman að
mannauðsmálum innan
félagsins og finnum að
Festi græðir mikið á
samvinnunni og aðstoð
milli rekstrarfélaga.
Valgerður María Friðriksdóttir
Það er gríðarlega
mikilvægt að geta
miðlað upplýsingum til
starfsfólks okkar á
handhægan og auð-
veldan hátt og þar mun
appið skipta sköpum.
Björg Ársælsdóttir
Mannauðsstjórar Festi eru f.v. þau Erla María Sigurðardóttir (Krónan), Hlynur Þór Þorleifsson (Bakkinn), Björg Ársælsdóttir (N1), Björn Másson (ELKO) og Valgerður María Friðriksdóttir (Festi).
mynd/ÍRIS dÖGG KRISTJÁnS.
kynningarblað 9LAUGARDAGUR 1. október 2022 MannauðuR