Fréttablaðið - 01.10.2022, Qupperneq 53
hagvangur.is
Tæknifólk
Neyðarlínan óskar eftir að ráða tæknifólk til framtíðarstarfa
við neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi Íslands. Við rekum
búnað á um 250 stöðum um land allt ásamt umfangsmiklu
miðkerfi í Reykjavík.
Aðalstarfssvið er uppsetning og rekstur á sendistöðvum,
fjarskiptahýsingum og öðrum fjarskiptabúnaði. Starfs stöð
tæknimanna er um landið allt en megin starfsstöð getur
verið hvort sem er á Akureyri eða í Reykjavík. Við leitum
að aðila sem getur unnið sjálfstætt, er úrræðagóður og
sveigjanlegur varðandi vinnutíma.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sveinspróf í rafeindavirkjun og/eða rafvirkjun
eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
• Starfsreynsla af rekstri farskiptabúnaðar er æskileg
• Haldgóð þekking í upplýsingatækni er kostur
• Reynsla af ferðalögum um hálendið að sumri
og vetri er kostur
• Geta til að vinna í hýsingum og í möstrum við krefjandi
aðstæður, hvar sem er á landinu og á hvaða árstíma
sem er
Persónulegir eiginleikar
• Lausnamiðuð hugsun og geta til að tileinka sér
nýjungar fljótt og vel
• Samviskusemi, stundvísi og ósérhlífni
• Sjálfstæði í vinnubrögðum sem og hæfni til að
vinna í teymi
Neyðarverðir
Neyðarlínan óskar eftir að ráða neyðarverði til starfa. Við
bjóðum upp á ábyrgðarmikið og gefandi framtíðarstarf.
Neyðarverðir annast símsvörun í neyðarnúmerinu 112,
ásamt virkjun viðeigandi viðbragðsaðila. Neyðarverðir hljóta
markvissa þjálfun í upphafi starfs. Unnið er á vöktum í
sveigjanlegu vaktakerfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun eða reynsla
• Fimm ára farsæl reynsla af almennum vinnumarkaði
• Góð almenn tölvukunnátta og innsláttarhraði
• Góð tök á íslensku og ensku. Kunnátta í öðrum
tungumálum mikill kostur
• Almenn þekking á landinu
• Hreint sakavottorð
Persónulegir eiginleikar
• Geta til að taka stjórn í erfiðum aðstæðum og halda
skýrri hugsun undir mikilli pressu
• Frumkvæði, sjálfstæði og áræðni í starfi
• Góð greiningarhæfni
• Ríkir samstarfshæfileikar og hæfni í mannlegum
samskiptum
• Þjónustulund, samviskusemi og sveigjanleiki
Neyðarlínan sér um neyðar- og öryggisþjónustu á Íslandi og starfrækir til þess 112, Vaktstöð
siglinga og Tetra fjarskiptakerfið. Markmið Neyðarlínunnar er að vera traustur vinnustaður fyrir
hæft starfsfólk þar sem þjónustuvilji og hröð og skjót viðbrögð fara saman. Laun og önnur
starfskjör taka mið af ábyrgð og frammistöðu og almennri þróun á vinnumarkaði.
Neyðarlínan
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 10. október nk.
Nánari upplýsingar veita Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is,
og Hallveig Hafstað Haraldsdóttir, hallveig@hagvangur.is.
Sótt er um störfin
á hagvangur.is
Þátttakandi í íslensku
atvinnulífi í meira en
50 ár
hagvangur.is
Þátttakandi í íslensku
atvinnulífi í meira en
50 ár
hagvangur.is
Þátttakandi í íslensku
atvinnulífi í meira en
50 ár
hagvangur.is
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára