Fréttablaðið - 01.10.2022, Side 55
Framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur leitar að öflugum leiðtoga í starf
framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Framkvæmdastjóri er í
stjórnendateymi sviðsins. Um verkefni og heimildir framkvæmdastjóra gilda
ákvæði laga og reglugerða sem viðkomandi framfylgir í umboði heilbrigðis-
nefndar Reykjavíkur. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í síbreytilegu
og faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á teymisvinnu og góða þjónustu.
Við leitum að einstaklingi með ríka forystuhæfileika, metnað og drifkraft til að
leiða fjölbreytta og mikilvæga þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Framkvæmdastjóri veitir Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur faglega forystu. Hlutverk
Heilbrigðiseftirlits er að fara með eftirlit með hollustuháttum, matvæla- og
mengunarvörnum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur auk umhverfisvöktun
samkvæmt lögum. Framkvæmdastjóri fer með yfirstjórn matvæla-, heilbrigðis-
og mengunareftirlits og vöktunar umhverfis. Annast samskipti við heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkur og framfylgir markmiðum nefndarinnar. Framkvæmdastjóri
fylgist með og hefur yfirumsjón með markmiðasetningu og faglegri þróun sem
og opinberri stefnumörkun í málaflokknum. Starfar í nánu samstarfi við
sviðsstjóra og borgaryfirvöld eftir því sem við á og sinnir eftir þörfum miðlun
upplýsinga í samvinnu við stjórnendur bæði innan sviðs og utan.
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun æskileg.
• Reynsla af stjórnun og rekstri.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur.
• Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og drifkraftur.
• Teymishugsun, lipurð og hæfileikar til samskipta og samvinnu.
• Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti.
• Góð færni til framsetningar og greiningar á flóknum upplýsingum og gögnum.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Um er að ræða 100% starf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi kjarafélags.
Samgöngustjóri
Reykjavíkurborgar
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur leitar að framsýnum liðsmanni í starf
samgöngustjóra Reykjavíkur. Samgöngustjóri er yfirmaður skrifstofu samgöngu-
mála. Á skrifstofunni eru þrjá deildir samgöngudeild, deild borgarhönnunar og
deild bílastæðasjóðs. Samgöngustjóri er í stjórnendateymi sviðsins og næsti
yfirmaður er sviðsstjóri. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í faglegu
starfsumhverfi þar sem áhersla er á teymisvinnu og góða þjónustu. Við leitum
að einstaklingi með ríka forystu- og samskiptahæfileika, metnað og drifkraft til
að taka þátt í spennandi breytingum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg forysta samgöngumála hjá Reykjavíkurborg. Samgöngustjóri heldur utan
um stefnumótun í málaflokknum, gerir tillögur um nýframkvæmdir og úrbætur
á samgöngumannvirkjum, leggur tillögur fyrir umhverfis- og skipulagsráð og
fylgir verkefnum eftir frá upphafi skipulagsgerðar í gegnum hönnunarferli og til
framkvæmda. Samgöngustjóri ber ábyrgð á framfylgd aðalskipulags og
svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins í samvinnu við umhverfis- og skipu-
lagsráð og sviðsstjóra. Samgöngustjóri ber ábyrgð á samskiptum við hagaðila,
frekari stefnumótun, undirbúningi og frumhönnun samgöngu- og borgarhön-
nunarverkefna og að forgangsröðun fjármuna sé í samræmi við gildandi stefnur
og áætlanir.
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf á sviði samgönguverkfræði eða önnur sambærileg menntun
sem nýtist í starfi.
• Víðtæk reynsla af stjórnun og rekstri, stefnumótun og áætlanagerð.
• Skapandi, jákvæð og lausnamiðuð hugsun.
• Leiðtogahæfileikar og mjög góðir hæfileikar til samskipta og samvinnu.
• Reynsla og færni í þverfaglegri teymisvinnu.
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
• Færni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Um er að ræða 100% starf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi kjarafélags.
Umsóknarfrestur er til og með 17. október 2022
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is)
og Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is