Fréttablaðið - 01.10.2022, Page 67
FRAMSÆKINN OG ÖFLUGUR
SKJALASTJÓRI ÓSKAST TIL STARFA
gardabaer.is
Garðabær óskar eftir að ráða skjalastjóra í fullt starf. Leitað er að metnaðarfullum og öflugum
leiðtoga með yfirgripsmikla þekkingu á skjalastjórn til að veita faglega forystu í gagna- og
upplýsingastjórnun sveitarfélagsins.
Skjalastjóri gegnir lykilhlutverki í ráðgjöf, stuðningi, fræðslu og þjónustu við starfsmenn Garðabæjar
um skjalamál. Á bæjarskrifstofum Garðabæjar og í stofnunum Garðabæjar er ONE skjalakerfi þar
sem notendur eru á fjórða hundrað. Um er að ræða fjölbreytt starf í góðu starfsumhverfi.
Garðabær er sveitarfélag í örum vexti sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu og eflingu
stafrænnar þróunar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Leiðir þróun og uppbyggingu í skjalamálum Garðabæjar
• Ráðgjöf, stuðningur, fræðsla og þjónusta við stofnanir og starfsmenn Garðabæjar um skjalamál
• Yfirumsjón með skjalakerfinu ONE og tilheyrandi kerfum fyrir stofnanir bæjarins
• Yfirumsjón með innleiðingu á nýjum kerfiseiningum í skjalakerfi bæjarins og áframhaldandi
innleiðingu í stofnanir
• Ábyrgð á eftirfylgni og þróun skjalastefnu
• Ábyrgð og umsjón með að skjalamál séu í samræmi við reglugerðir og lög
• Gerð fræðsluefnis og leiðbeiningar fyrir starfsmenn um skjalamál
• Leiða þróun og áframhaldandi innleiðingu rafrænna skila til Þjóðskjalasafns
• Þátttaka í að bæta og þróa vinnuferla og stuðla þannig að bættri hagnýtingu gagna
• Þátttaka í stafrænum þróunarverkefnum og öðrum samstarfsverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í upplýsingafræði með áherslu á skjalastjórn eða annað sambærilegt háskólapróf
sem nýtist í starfi skilyrði
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þekking og reynsla af skjalastjórn og notkun rafrænna skjalakerfa er skilyrði
• Frumkvæði, metnaður, nákvæmni og lausnamiðuð hugsun í starfi
• Þekking á One systems skjalakerfi er kostur
• Þekking á TEAMS og Microsoft skýjalausnum er kostur
• Þekking á opinberri stjórnsýslu og málefnum sveitarfélaga er kostur
• Þekking og reynsla af stefnumótun og verkefnastýringu er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 17. október 2022.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjenda sem nýtist í starfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hulda Hauksdóttir upplýsingastjóri, í síma 525 8500
eða með því að senda tölvupóst á hulda@gardabaer.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi
stéttarfélag.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í meira en
50 ár
RÁÐNINGAR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu
starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting
og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings
að vel takist til.