Fréttablaðið - 01.10.2022, Síða 78
Orðspor og reynsla
eru lykilþættir í
velgengni fyrirtækisins í
gegnum árin.
Torfi Markússon
Intellecta er sjálfstætt þekk-
ingarfyrirtæki sem var
stofnað árið 2000. Fyrirtæk-
ið starfar á þremur sviðum,
við ráðgjöf, ráðningar og
rannsóknir.
„Í dag starfa sextán reynslu
miklir ráðgjafar hjá Intellecta og
eru kynjahlutföllin nánast jöfn.
Ráðgjafar okkar veita fjölbreytta
ráðgjöf, svo sem á sviði ráðninga,
rekstrarráðgjafar, upplýsinga
tækniráðgjafar og kjararáðgjafar,“
upplýsir Thelma Kristín Kvaran,
meðeigandi hjá Intellecta og sér
fræðingur í ráðningum.
Thelma hefur starfað hjá Intell
ecta í tæp fimm ár og upplifað fjöl
breytta tíma hjá fyrirtækinu.
„Þegar ég hóf störf hjá Intellecta
störfuðu tíu ráðgjafar hjá fyrirtæk
inu og þar af var ráðningadeildin
með fjögur stöðugildi. Undanfarin
ár hefur vöxturinn verið mikill og
verðum við brátt sjö í ráðninga
teyminu,“ bætir hún við.
Víðtæk og fjölbreytt reynsla
Torfi Markússon er meðeigandi
Intellecta og sérfræðingur í
ráðningum.
„Orðspor og reynsla eru lykil
þættir í velgengni fyrirtækisins í
gegnum árin. Intellecta er ein af
stærstu ráðningastofum landsins,
sem helgast af því hversu öflugir
ráðgjafar starfa fyrir fyrirtækið á
því sviði sem hafa metnað fyrir að
veita framúrskarandi þjónustu.
Við höfum ráðið til okkar ráðgjafa
með víðtæka reynslu úr atvinnu
lífinu, ásamt menntun og sér
þekkingu á fjölbreyttum sviðum,
sem hefur styrkt ráðningateymið
okkar svo um munar,“ greinir Torfi
frá.
Aðspurð segjast þau Thelma og
Torfi sinna ráðningum stjórnenda
og sérfræðinga á flestum sviðum
atvinnulífsins, fyrir fyrirtæki á
einkamarkaði, opinberar stofnanir
og sveitarfélög.
„Verkefnin hafa verið fjölbreytt
og krefjandi og því hefur safnast
hjá okkur mikil reynsla sem nýtist
viðskiptavinum okkar í ráðning
um og öðrum þáttum sem tengjast
mannauði fyrirtækja. Engir tveir
einstaklingar eru eins og því
leggjum við mikla áherslu á að
finna einstakling sem bæði veldur
starfinu og fellur að áherslum og
menningu fyrirtækisins,“ segir
Torfi.
Gott orðspor og reynsla
Thelma bætir við að Intellecta
hafi skapað sér gott orðspor þegar
kemur að opinberum ráðningum.
„Ráðgjafar okkar hafa unnið að
fjölmörgum ráðningum stjórn
enda og sérfræðinga og hefur skap
ast mikil sérþekking á því sviði
innan deildarinnar. Við höfum
meðal annars mikla reynslu af
því að takast á við ráðningar sem
hafa komið í kjölfar erfiðra skipu
lagsbreytinga hjá hinu opinbera.
Slík mál eru oft flókin, til dæmis
vegna umsókna frá starfsfólki
viðkomandi stofnunar og öðrum
hæfum einstaklingum. Þá getur
styrkt ferlið að hafa hlutlausan
aðila með, eins og Intellecta, sem
hefur umfangsmikla reynslu og
þekkingu á lögum og reglum sem
þarf að fylgja.
Það að fá okkur til ráðgjafar
gefur ferlinu aukinn trúverðug
leika sem stuðlar að bættri upplif
un viðskiptavina og umsækjenda.
Það er mikilvægt að umsækjendur
finni að verið sé að vinna faglega
Breytt landslag kallar á nýjar áherslur í ráðningum
Starfsfólk Intellecta, frá vinstri: Hafdís Ósk Pétursdóttir, Sigríður Svava Sandholt, Helga Birna Jónsdóttir, Thelma Kristín Kvaran, Henrietta Þóra Magnúsdóttir og Torfi Markússon. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
og að lögum og reglum sé fylgt,“
segir Thelma.
Hún segist hafa tekið eftir
mikilli breytingu hjá hinu opin
bera, þar sem fjöldi stjórnenda af
einkamarkaði hafi sóst þar eftir
stöðum og fengið.
„Það hefur verið gaman að vinna
með þessum stjórnendum að
þeirra fyrstu opinberu ráðningum
og kenna þeim ferlið frá AÖ. Það
er svo margt sem kemur þeim á
óvart og margt sem ber að hafa
í huga. Það er einmitt það sem
gerir þetta svo skemmtilegt. Það
er okkar upplifun að stjórnendur
hjá hinu opinbera hafi metnað
fyrir því að vanda til verka og þess
vegna erum við kölluð að borðinu,“
bætir hún við.
Tengslanet ráðgjafa mikilvægt
Thelma segir sína reynslu vera þá
að mannauðsdeildir séu í auknum
mæli að beina kröftum sínum inn
á við, halda utan um vinnustaða
menninguna og gæta að því að
næra sitt fólk.
„Oft er því betra að fá aðra til að
vera úti á mörkinni varðandi öflun
umsækjenda og láta ráðninga
stofu vinna þessa tengslavinnu.
Þar komum við sterk inn. Æðstu
stjórnendur fyrirtækja nýta sér
mikið beina leit (e. headhunting)
þegar leitað er að lykilfólki. Að
auki er Intellecta í góðum sam
skiptum við fjölmarga einstakl
inga sem þó eru ekki endilega í
eiginlegri atvinnuleit. Tengslanet
ráðgjafa er mikilvægt þegar kemur
að öflun umsækjenda í stjórnenda
stöður,“ upplýsir Thelma.
Torfi nefnir að áhugavert hafi
verið að fylgjast með þeim miklu
breytingum sem hafi átt sér stað á
síðustu tveimur árum.
„Atvinnumarkaðurinn hefur
tekið stakkaskiptum frá því í upp
hafi faraldursins, en þá var mikið
atvinnuleysi og oft mikill fjöldi
umsókna um hvert starf. Í dag er
meiri umsækjendamarkaður þar
sem umframeftirspurn er eftir
reynslumiklu fólki, til dæmis í sér
fræði og stjórnendastörf. Stjórn
endur hafa þurft að auka hraðann
í ferlinu sjálfu til að eiga ekki á
hættu að missa af góðum umsækj
endum, sem eru jafnvel í öðrum
ráðningaferlum samtímis,“ segir
Torfi og heldur áfram:
„Undanfarinn áratug höfum
við mikið verið að vinna í leitar
verkefnum í tæknistörf, en þá eru
þau ekki auglýst, heldur leitum
við að hæfum einstaklingum í
tiltekið starf. Þessi leið er oft farin
þegar erfitt hefur reynst að manna
störf með auglýsingu, til dæmis ef
um mikla sérhæfingu er að ræða
eða skort á ákveðinni þekkingu.
Þá hefur einnig verið töluverð
aukning í leitarverkefnum í öðrum
starfsgreinum sem tengist ein
mitt þessari umframeftirspurn á
atvinnumarkaði,“ segir Torfi.
Stytta sér aldrei leið
Mikil aukning hefur verið í ráðn
ingum á sviði upplýsingatækni,
sem rekja má meðal annars til
stafrænnar þróunar, auk þess sem
ný tæknifyrirtæki hafa sprottið
upp undanfarin ár og mörg hver
náð góðum árangri, sem veldur
aukinni mannaflaþörf.
„Í dag erum við tvö sem sér
hæfum okkur að mestu í upp
lýsingatækniráðningunum, þó
hinir ráðgjafarnir taki einnig
tilfallandi verkefni á því sviði. Ég
starfaði sem mannauðsstjóri hjá
upplýsingatæknifyrirtæki í tíu
18 kynningarblað 1. október 2022 LAUGARDAGURMannauður