Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 79
Hver einstök
ráðning er mikil-
væg fjárfesting og hagur
viðkomandi fyrirtækis
og einstaklings að vel
takist til.
Thelma Kristín Kvaran
Margir hafa endur-
hugsað lífsstíl sinn,
sem og óskir og kröfur
sem þeir gera til vinnu-
staða. Fólk hefur áttað
sig á að talan á launaseðl-
inum er ekki allt.
Thelma Kristín Kvaran
ár og samstarfskona mín er með
menntun á sviði tölvunarfræði og
klínískrar sálfræði ásamt starfs-
reynslu í hvoru tveggja. Það er
mikilvægt að vera vel kunnugur
tækninni og skilja tæknimálið
til að geta áttað sig á því hverjir
eru virkilega framúrskarandi á
þessu sviði. Okkur hefur tekist að
skila miklum virðisauka til okkar
viðskiptavina með úrvals ráðn-
ingum,“ segir Torfi.
Hann bætir við að síðustu ár hafi
eftirspurn eftir konum í tæknistörf
aukist vegna áherslu stjórnenda
á að jafna kynjahlutfall á vinnu-
staðnum.
„Það hefur verið ánægjulegt að
fylgjast með því hversu meðvituð
fyrirtæki eru orðin um að fjöl-
breytt teymi skili góðum árangri.
Konum hefur fjölgað ár hvert í
þessu umhverfi og höfum við
gengið frá fjölmörgum farsælum
ráðningum sem við erum stolt af.“
Thelma segir vaxandi kröfu um
að fagmennska í valferli sé tryggð
og að allt þeirra starf miðist við að
uppfylla ströngustu kröfur í þeim
efnum.
„Við viljum tryggja að umsækj-
endur sem koma í gegnum ráðn-
ingarferli okkar séu það vel valdir
að það muni um þá í þeim starfs-
mannahópi sem þeir koma til
með að starfa í. Við tryggjum það
með eins góðum hætti og mögu-
legt er með því að vanda til verka í
ráðningarferlinu og styttum okkur
aldrei leið.“
Covid breytti sviðinu
Thelma nefnir að Covid-faraldur-
inn hafi reynst mörgum Íslend-
ingum erfiður þar sem álagið jókst
hjá vinnandi fólki. Sum fyrirtæki
hafi neyðst til að fara í miklar upp-
sagnir á meðan önnur hafi upp-
lifað mikla aukningu í eftirspurn
eftir ákveðinni vöru eða þjónustu
og jafnvel ekki verið undir það
búin hvað varðar mannafla.
„Hvort tveggja veldur miklu
álagi á starfsfólk og í framhaldinu
varð mikil vitundarvakning á
meðal umsækjenda. Við tökum
eftir að margir leggja nú ríkari
áherslu á þætti eins og fjarvinnu,
sveigjanleika, gott starfsumhverfi
og vinnustaðamenningu. Margir
hafa endurhugsað lífsstíl sinn, sem
og óskir og kröfur sem þeir gera til
vinnustaða. Fólk hefur áttað sig á
að talan á launaseðlinum er ekki
allt og því þurfa vinnuveitendur
að leggja meira púður í að selja sig
og upplýsa um ýmis fríðindi og
sveigjanleika sem starfsfólki býðst.
Hér áður þótti eftirsóknarvert
í fari umsækjenda að þeir væru
tilbúnir til að setja starfið efst á
forgangslistann; það var merki um
dugnað. En þessi tími hefur kennt
mörgum að meta aðra þætti lífsins.
Yngri kynslóðin er þar í farar-
broddi og kemur inn með breyttan
hugsunarhátt og ný gildi sem snúa
að jafnvægi milli vinnu og einka-
lífs, sem aðrir mættu tileinka sér,“
greinir Thelma frá.
Aðspurð hvort breytingar hafi
orðið á því með hvaða hætti störf
séu auglýst nú, segir Thelma að
Frá vinstri eru Thelma Kristín Kvaran, Sigríður Svava Sandholt, Helga Birna Jónsdóttir og Hafdís Ósk Pétursdóttir. Þær sinna allar ráðningum stjórnenda og
sérfræðinga fyrir einkafyrirtæki, sveitarfélög og opinberar stofnanir hjá Intellecta. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Torfi Markús
son og Henri
etta Þóra
Magnúsdóttir
eru sérfræð
ingar Intellecta
í ráðningum
í upplýsinga
tækni.
upplifun þeirra sé að stafrænir
miðlar séu orðnir vinsælli og nái til
f leiri einstaklinga.
„Við tökum einnig eftir því að
hæfniskröfur í stjórnendaráðn-
ingum hafa breyst, þar sem meiri
áhersla er lögð á mýkri eiginleika,
svo sem samskipta-, samstarfs-
og leiðtogahæfni. Kemur það til
vegna þess að stjórnunaraðferðir
hafa verið að taka breytingum á
þann hátt að stjórnendur hafa í
meiri mæli lagt áherslu á að hafa
starfsfólkið með í því sem er að
gerast á vinnustaðnum, svo sem í
breytingum og ákvarðanatökum
og leggja meiri áherslu á upplýs-
ingaflæði,“ upplýsir Thelma.
Hún nefnir að orðið sé algengara
að einstaklingar stoppi styttra við í
starfi en áður.
„Hér áður valdi fólk sér oft
ævistarf en í dag er ekki óal-
gengt að stoppa í þrjú til fimm ár.
Mikilvægt er þá að þeir sem fari
yfir umsóknir líti ekki á það sem
neikvæðan þátt, því það er alveg
ótrúlegt hversu miklu er hægt að
áorka á þremur árum. Horfum
frekar á árangurinn og virðið sem
umsækjandinn skilaði á þeim tíma
sem hann var í starfi.“
Þau Thelma og Torfi taka bæði
fram að mikilvægt sé að umsækj-
endur vandi til verka við gerð
ferilskrár og kynningarbréfs.
„Ferilskráin þarf að inni-
halda upplýsingar um menntun
og starfsreynslu viðkomandi
en mikilvægt er að hún upplýsi
lesandann vel, þannig að hann sitji
ekki eftir með spurningar. Þá er
kynningarbréfið líka mikilvægt.
Við höfum ráðlagt umsækjendum
að skoða vel helstu verkefni og
hæfniskröfur þess starfs sem þeir
sækja um og máta sig þannig inn í
starfið,“ upplýsir Thelma.
Hún bendir einnig á að mikið sé
í húfi hvað ráðningar snertir.
„Hver einstök ráðning er mikil-
væg fjárfesting og er það hagur við-
komandi fyrirtækis og einstakl-
ings að vel takist til. Flestir eru
sammála um að mannauðurinn sé
ein mikilvægasta auðlind fyrir-
tækja. Árangursríkar ráðningar
byggjast á faglegum vinnubrögð-
um, skilningi á mannlegri hegðun
og notkun viðurkenndra aðferða.
Vinnusparnaðurinn fyrir stjórn-
endur er gífurlegur,“ segir Thelma
að lokum. n
Intellecta er í Síðumúla 5. Sími 511
1225. Sjá nánar á intellecta.is
kynningarblað 19LAUGARDAGUR 1. október 2022 Mannauður