Fréttablaðið - 01.10.2022, Síða 122
Ég sleppi ekki að segja
eitthvað bara af því ég
er hræddur um að
einhver reiðist.
Jakob Birgisson, uppistandari
Handritshöfundurinn og grín-
arinn Jakob Birgisson er risinn
upp úr Covid ládeyð unni og
trommar upp með nýja uppi-
standssýningu í Þjóðleikhúss-
kjallaranum í október, þegar
hann messar yfir áheyrendum
í Skóla lífsins.
toti@frettabladid.is
„Nafnið helgast kannski af því að
ég hef ekki lokið mikilli formlegri
menntun. Ég lauk reyndar stúd-
entsprófi frá MR, en fólk er alltaf
að segja mér að BA-gráða sé nýja
stúdentsprófið. Þannig að ég hlýt
bara að vera grunnskólagenginn.
Ég botna ekki alveg í þessu. Ég hef
hingað til lært mest í skóla lífsins,“
segir uppistandsgrínarinn Jakob
Birgisson, um hugmyndafræðileg-
an bakgrunn nýju sýningarinnar
sinnar, Skóla lífsins.
Jakob, sem er 24 ára, kom tvítug-
ur fram á sjónarsviðið með frum-
raun sína, Meistara Jakob, og hlaut
mikið lof fyrir. Þá sagðist sjálfur Ari
Eldjárn meðal annars aldrei hafa
„séð annað eins talent“ og Jakob
hefur allar götur síðan starfað sem
uppistandari, auk þess að fást við
ýmis skrif. Hann var meðal annars
í teyminu sem skrifaði Áramóta-
skaupið 2019.
Prófessor við Skóla lífsins
Jakob kvæntist Sólveigu Einars-
dóttur, hagfræðingi, í sumar og
saman eiga þau tveggja ára dóttur,
Herdísi. Hann segist þannig lifa
lífinu hraðar en margir í kringum
sig, en það geri hann af mjög ásettu
ráði.
„Ég gæti auðvitað ekki ímyndað
mér betri eiginkonu og barnsmóð-
ur en Sólveigu. Og ég held reyndar
að vinir mínir séu sammála,“ segir
Jakob og bætir við hlæjandi:
„Svona miðað við ræður vina
minna í brúðkaupinu. Þær fjölluðu
f lestar um hve fegnir þeir væru að
ég hringdi ekki lengur í þá seint á
kvöldin til þess að leysa úr ýmsum
andlegum f lækjum. Sólveig hefði
tekið við hlutverki sáluhjálparans.“
Hann segir ýmsar hugmyndir
hafa kviknað f ljótlega eftir brúð-
kaupið og þótt viðfangsefni sýn-
ingarinnar séu auðvitað mikið til
almennt dægurþras, komi f jöl-
skyldulífið þar við sögu.
„Bara að vera giftur með barn og
að sjá um heimili. Það er ákveðinn
skóli og ég fer vafalaust að verða
prófessor í því. Prófessor við Skóla
lífsins.“
Spenntur fyrir Binna Glee
Hefðbundið uppistand er grunn-
urinn að grínferli Jakobs en hann
nýtir sér einnig að hann er liðtæk
og lunkin eftirherma og leggur
mikið upp úr því að herma vel eftir
viðfangsefnum sínum.
„Ég reyni alltaf að kynna nýja
eftirhermu til leiks þegar ég held
svona nýtt uppistand. Ég hef til
dæmis verið að leika Jón Ársæl,
Magnús Hlyn, Gumma Ben. og
Guðna Th. og nú hefur Binni Glee
bæst við, sem ég er mjög spenntur
fyrir.“
Binni er vitaskuld einn þekkt-
asti áhrifavaldur landsins og hefur
notið mikilla vinsælda, ekki síst
með raunverleikaþáttunum Æði
sem hafa fangað athygli Jakobs, rétt
eins og fjölmargra annarra.
„Ég er mikill aðdáandi Æði-
strákanna og Binni Glee er í sér-
stöku uppáhaldi. Það er eiginlega
bara allt við hann; einlægnin,
málrómurinn, skoðanir hans. En
ég ætla ekki að gefa of mikið upp.
Þetta er einn af þessum bröndurum
sem þú verður bara að sjá.“
Má ekkert lengur
Umræðan um hvað megi og hvað
megi ekki segja í uppistandi blossar
reglulega upp hér eins og annars
staðar og oftar en ekki er kveikjan
eitthvað sem einhver grínari vest-
anhafs hefur látið falla í grýttan
en um leið viðkvæman jarðveg.
Nærtækt dæmi er uppistand Dave
Chappelle þar sem hann þótti tala
óvarlega um transfólk.
Jakob segist lítið láta þessar
sveif lur í gríni á heimsvísu truf la
sig þegar hann er spurður hvort
eitthvað sé honum óviðkomandi
eða hvort hann forðist að tala um
einhver ákveðin mál.
„Ég hef aldrei fundið fyrir neinni
pressu um hvað ég megi segja og
hvað ekki. Ég sé á umræðunni
að þetta er frekar tvískipt. Sumir
halda að uppistand eigi að vera eins
og einhver útvatnaður markþjálfa-
fyrirlestur. Slíkt er auðvitað ferlega
leiðinlegt, en aðrir telja að ekkert
megi segja lengur.
Ég er ósammála hvoru tveggja.
Það er skemmtilegt að spyrja sig
spurninga og reyna að svara þeim
í uppistandi og það má nokkurn
veginn segja hvað sem er. Svo
dæmir uppistand sem er ekkert
annað en fúkyrði og mannhatur
sig sjálft.“
Ævafornt listform
„Uppistand er nokkuð heilagt form
fyrir mér. Þetta er ævafornt list-
form sem hefur einhvern veginn
lifað af. Ég hef ekki miklar áhyggjur
af pólitískum rétttrúnaði. Ég sleppi
ekki að segja eitthvað bara af því ég
er hræddur um að einhver reiðist,“
segir Jakob og bendir á að hann sé
almennt ekki mjög líklegur til þess
að reita fólk til reiði.
„Annars er ég svo ljúfur, að ég
veit eiginlega ekki alveg hvern ég
ætti að reita til reiði,“ segir Jakob,
glottir og bætir við: „Jú, kannski
fjölskylduna mína.“
En hann hefur oft nýtt foreldra
sína og systkini sem efnivið á sviði
og segir þau hafa tekið því ágæt-
lega.
„Það væri vafalaust efni í annað
viðtal. Að ræða við þau, sem sagt,“
f lissar Jakob. „Annars held ég að
þau séu ánægð í meginatriðum.
Ég hef getað lifað á þessu og f lutt
að heiman. Það er bót í máli fyrir
þau, semsagt að losna við mig. En
ég á tengdafjölskylduna eftir. Ætli
þau verði ekki fyrir barðinu á mér
núna,“ segir Jakob og glottir nógu
óræður til þess að ómögulegt er að
ráða í hvort honum er alvara. n
Meistari Jakob með Binna Glee í skóla lífsins
Jakob, sem er
24 ára, kom
tvítugur fram
á sjónarsviðið
með frumraun
sína, Meistari
Jakob, og hlaut
mikið lof fyrir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
odduraevar@frettabladid.is
„Mér brá þegar ég leit nývöknuð á
símann minn og sá utanríkisráð-
herra Íslands, Þórdísi Kolbrúnu,
í samfestingnum frá Gracelandic
þegar hún hitti forseta Bandaríkj-
anna, Joe Biden og forsetafrúna dr.
Jill Biden, á ferð sinni til New York,“
segir fatahönnuðurinn Grace Achi-
eng.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir klæddist íslenskri hönnun í
ferð sinni til New York á dögunum,
nánar tiltekið samfestingi sem
Grace hannar undir vörumerkinu
sínu Graceland.
„Það er mikill heiður fyrir mig
að hún skuli hafa valið hönnunina
mína fyrir svona stóran viðburð,“
segir Grace, en Þórdís hefur áður
klæðst samfestingnum á ráðstefnu
í Slóveníu með utanríkisráðherrum
annarra þjóða.
„Þetta minnti mig á þegar ég var
lítil og sat fyrir utan heimili mitt í
Kisumu í Kenýa og horfði á konur og
börn ganga framhjá í fínum fötum
sem móðir mín hafði ekki efni á. Ég
lék mér að því að hugsa hverjar af
þessum flíkum ég vildi eignast. Ég
ákvað að þegar ég yrði eldri myndi
ég eignast fín föt. Þessi draumur
minn varð svo skýrari þegar ég fór í
framhaldsskóla, þar sem ég sparaði
peninginn sem ég fékk fyrir mat
og í rútuna til að kaupa notuð föt
á f lóamarkaði og selja svo skóla-
félögum mínum í kvennaskólanum
í Kisumu. Strax þá vissi ég að ástríða
mín væri að láta konur líta vel út og
líða vel,“ segir Grace.
Þórdís er ekki fyrsta konan til að
klæðast fatnaði hönnuðum af Grace,
en Eliza Reid, forsetafrú Íslands,
klæddist fatnaði frá merkinu þegar
forsetahjónin tóku á móti Friðriki
krónprins af Danmörku á Bessa-
stöðum og þá hefur breska Vogue
tímaritið fjallað um merkið.
Grace segir það hafa tekið á að
láta drauminn rætast.
„Tíu árum eftir að ég f lutti til
Íslands safnaði ég kjarki til að
stofna Gracelandic sem vörumerki
í kventísku, sem framleiðir fatnað
á sjálfbæran og siðferðislega réttan
hátt með tilliti til náttúrunnar.
Ég trúi því að mann geti dreymt
stóra drauma og með hugrekki geti
þeir orðið að veruleika. Ég vona að
saga mín hvetji f leiri til að elta sína
drauma,“ segir Grace.
„Mitt markmið er að Gracelandic
gefi af sér til framtíðar og stefni ég á
að stofna munaðarleysingjaheimili
í Kenýa og styrkja góðgerðarsamtök
sem berjast fyrir hagsmunum barna
og efla konur.“ n
Grace lét drauminn rætast og Joe Biden sá afraksturinn
Grace lét drauminn sinn rætast.
Þórdís er einkar glæsileg í íslenskri hönnun frá Graceland. MYND/AÐSEND
58 Lífið 1. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ