Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2022
Fuglaflensu hefur verið vart í
helsingjum á Suðausturlandi frá
komu þeirra í vor. Flensan virðist
hafa ágerst þegar líða tók á sumar
og nokkur fjöldi tilkynninga um
sjúka og dauða fugla á svæðinu.
Rannsókn á fugladauða fór
fram dagana 22. og 23. ágúst 2022
og 5. og 6. september síðastliðinn.
Gengið var um þéttbýl helsingjasvæði
og einnig var notast við flygildi.
Talningar voru framkvæmdar á
fjölda lifandi fugla, sjúkra fugla og
dauðra. Bráðabirgðaniðurstöður
frá Náttúrustofu Suðausturlands
staðfesta að flensan geisar enn á
svæðinu. Í heildina hafi fundist 45
dauðir helsingjar í Sveitarfélaginu
Hornafirði.
Náttúrustofan bendir á að það
beri að túlka niðurstöðurnar varlega
þar sem sveitarfélagið sé víðfeðmt
og takmarkaður tími hafi verið fyrir
hendi og ekki hafi tekist að meta
umfangið nákvæmlega en verið er
að rýna niðurstöðurnar, meðal annars
út frá fjölda dauðra merktra helsingja.
Veiðitímabil helsingja hafið
Þann 10. september hófst veiðitímabil á
helsingja í A- og V-Skaftafellssýslum.
Umhverfisstofnun beinir þeim
tilmælum til veiðimanna að
vera á varðbergi varðandi sjúka
og dauða fugla. Í því sambandi
bendir Umhverfisstofnun á síðu
Matvælastofnunar þar sem finna
má upplýsingar um fuglaflensu. Á
síðunni má finna leiðbeiningar um
hvað skal gera ef villtur fugl finnst
dauður eða veikur og grunur er um
fuglaflensu.
Veiðimenn með veiðihunda og
aðrir hundaeigendur eru hvattir
til að hafa hunda sína í taumi svo
þeir komist síður í snertingu við
dauða fugla.
Vetursetur á Bretlandseyjum
Á Bretlandseyjum, vetrarstöðvum
íslenska og grænlenska helsingja-
stofnsins, varð vart við töluverðan
fugladauða vegna fuglaflensu
veturinn 2021 til 2022.
Grænlenski farstofninn hefur
viðkomu á Íslandi og við talningar
á honum í vor á Norðvesturlandi
benti ekki til þess að fuglaflensa
hafi herjað illa á stofninn.
Hins vegar gáfu ábendingar frá
almenningi og vísindamönnum
um fjölda dauðra helsingja síðari
part sumars 2022 vísbendingu
um að íslenski varpstofninn á
Suðausturlandi væri að fara illa út
úr fuglaflensunni. /VH
FRÉTTIR
www.kofaroghus.is - Sími 553 1545
TIL Á LAGER
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
STAPI - 14,98 fm
Tilboðsverð
779.000 kr.
25%
afsláttur
BREKKA 34 - 9 fm
Tilboðsverð
489.000 kr.
25%
afsláttur
NAUST - 14,44 fm
Tilboðsverð
539.000 kr.
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIG PLÁSS?
Afar einfalt er að reisa
húsin okkar. Uppsetning
tekur aðeins einn dag
TILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
Bændasamtök Íslands og Bænda-
blaðið hafa flutt alla starfsemi
sína í nýtt húsnæði að Borgartúni
í Reykjavík. Þar með er hætt allri
starfsemi samtakanna í Bænda-
höllinni við Hagatorg.
Nýja húsnæðið er í glæsi-
legu rúmlega 300 fermetra skrif-
stofuhúsnæði á fjórðu hæð að
Borgartúni 25, 105 í Reykjavík.
Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri
Bændasamtaka Íslands, segir að
flutningarnir marki ákveðin tímamót
í sögu samtakanna enda hafa þau haft
aðsetur á sama stað frá árinu 1965.
„Með sameiningu aðildarfélaganna
og Bændasamtakanna á síðasta
ári, höfum við náð að efla samtökin
til muna og ná meiri samvinnu
og slagkrafti í starfsmannahópnum
um verkefnin.“
Undanfarið hefur starfsfólk
samtakanna og Bændablaðsins unnið
að flutningum úr Bændahöllinni á
nýja staðinn og að koma sér fyrir.
Flutningarnir gengu vel og er
starfsemi samtakanna komin í eðlilegt
horf og vinnsla Bændablaðsins á fullt
undir nýju þaki.
Með flutningunum lýkur um
sextíu ára starfsemi Bænda-
samtakanna í Bændahöllinni og
þrátt fyrir að margir munu sakna
gamla vinnustaðarins eru starfsmenn
jákvæðir út af breytingunum og
hlakka til að takast á við ný verkefni
í nýju húsnæði.
/VH
Nýja Bændahöllin í Borgartúni. Mynd / VH
Bændasamtök Íslands:
BÍ og Bbl. flutt í Borgartún 25
Yfirlit verkefna, styrkhafa og styrkupphæðir
Garðyrkja
Umsækjandi Verkefni Styrkupphæð Landshluti
BÍ Erlendir garðyrkjuráðunautar 21.400.000 Allt landið
RML Mygluspá fyrir garðyrkjubændur 4.810.080 Allt landið
RML Kynnisferð til Danmerkur. Lífræn ræktun 1.359.750 Allt landið
Syðra Holt ehf. Nýting lífr. áburðarefna úr nærsamfél. í lífr. garðyrkju 2.500.000 Norðurl.eystra
Landb.háskóli Ísl. Áhrif lýsingar og CO2 á vöxt gróðurhúsatómata 6.000.000 Suðurland
Samtals 36.069.830
Nautgriparækt
Landb.háskóli Ísl Erfðastuðlar og erfðaþr. júgur- og spenaeiginl. ísl. kúastofnsins 2.900.000 Allt landið
RML Rekstur kúabúa 4.783.000 Allt landið
RML NorFor 2022 1.678.906 Allt landið
RML Kyngreining á sæði 1.017.000 Allt landið
Landb.háskóli Ísl. Beit mjólkurkúa í mjaltaþjónahúsi 3.372.500 Vesturland
Hvanneyrarbúið ehf. Kúabelgir- uppskera og fóðurgildi einærra belgjurta 3.769.500 Vesturland
Sigríður Guðbj.d. Heygæði við notkun sjálfbærra áburðargjafa 4.711.000 Vesturland
RML Hjarðheilbrigði 4.348.800 Allt landið
RML Áhrif mism.kjarnfóðurgjafar á vöxt holdablendinga 5.680.500 Allt landið
Samtals 32.261.206
Sauðfjárrækt
RML Fjárvís.is, Innlestur á riðuarfgerðum og arfgerðarspálíkan 6.000.000 Allt landið
Matís ehf. Lambastress 2022 3.000.000 Höfuðb.sv, V-land, N-land eystra, S-land
Landb.háskóli Ísl Staðalþungi íslenskra áa 3.000.000 Allt landið
RML Arfgerðargrein. fyrir sameiginlegt rækt.starf 2022-2023 400.000 Allt landið
Matís ohf. Aukin afköst og bætt hagkvæmni í greiningum á riðugeni 5.000.000 Allt landið
RML Arfgerðarrannsókn á íslenska sauðfjárstofninum 8.000.000 Allt landið
RML Afkvæmarannsóknir vegna sæðingastöðvanna 2022 650.000 Allt landið
RML Afkvæmarannsóknir bænda á hrútum 2022 3.500.000 Allt landið
Charl. Oddsd. - Keldur Greining E. Coli stofna sem valda slefsýki og lambaskitu 3.000.000 Allt landið
RML PMCA rannsóknir á næmi mism.PrP, arfgerða fyrir riðusmiti í ísl.sauðfé 3.800.000 Allt landið
Þórdís Þórarinsdóttir Ræktun gegn riðu – hermirannsókn 3.000.000 Allt landið
Kynbótastöð ehf. Styrkur til kaupa á hrútum með arfgerð gegn riðu 2.500.000 Allt landið
Kynbótastöð ehf. Mismunandi sæðingatími með frystu hrútasæði 400.000 Allt landið
.
Samtals 42.250.000
Matvælaráðuneytið hefur gengið
frá fyrri úthlutun þróunarfjár
búvörusamninga á árinu 2022.
Alls var úthlutað tæpum 111
milljónum króna til 27 verkefna.
Þrettán verkefni í sauðfjárrækt
fengu styrki að upphæð 42,5
milljónir, níu í nautgriparækt að
upphæð 32,3 milljónir, og fimm í
garðyrkju að upphæð 36,1 milljón.
Þróunarfjármunum búgreina er
úthlutað af matvælaráðuneytinu
í samræmi við ákvæði búvöru-
samninga hverrar greinar og
reglugerða um stuðning við
viðkomandi grein.
Þeim er ætlað að styðja við kennslu,
rannsóknir, leiðbeiningar og þróun
í greinunum.
Fagráð búgreina sem starfa
samkvæmt búnaðarlögum leggja
mat á umsóknir og eru meðmæli
þeirra forsenda styrkveitinga
ráðuneytisins. /VH
Matvælaráðuneytið:
Úthlutun þróunarfjár
búvörusamninga
Helsingi. Umhverfisstofnun beinir þeim tilmælum til veiðimanna að vera á
varðbergi varðandi sjúka og dauða fugla. Mynd / wikipedia.org
Dýrasjúkdómar:
Fuglaflensa greind í helsingjumUmhverfisstofnun hefur framlengt
starfsleyfi Reykjagarðs hf.,
Ásmundarstöðum, Ásahreppi.
Gildir það fyrir þéttbæru
eldi alifugla, allt að 156.000
fuglastæðum holdakjúklinga og
23.000 fuglastæðum stofnhæna.
Umhverfisstofnun er heimilt að
framlengja starfsleyfi rekstraraðila
í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga
7/1998 um hollustuhætti og
mengunarvarnir. Framlengingin á
starfsleyfi er heimil til eins árs og
mun gilda til 23. september 2023,
eða þar til nýtt starfsleyfi hefur verið
gefið út. /VH
Alifuglaeldi:
Starfsleyfi Reykjagarðs framlengt