Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
Bræðurnir Tómas Eldur og Kristján Eldur eru hér í essinu sínu í Miðfjarðarrétt Miðfjarðar, Húnaþingi vestra.
LÍF&STARF
Látinn er langt um aldur fram, Jón
Ingvar Jónsson, einhver skærasta
stjarna meðal hagyrðinga allt til
dánardags. Jón var fæddur á Akureyri á
árinu 1957, en lést í ágúst sl. Jón Ingvar
hafði fullkomið vald á bragháttum og orti
fágætar gamanvísur sem lærðust fljótt
og fóru víða. Óvæginn gat hann verið
í kveðskap sínum, en leiðst svo margt
fyrir sakir fádæma leikni og fyndni.
Hugmyndaauðgi í kveðskaparefnum var
alveg með ólíkindum. Meðan vísnavefurinn
Leir.is lifði, var Jón sjálfvalinn sem
yfirdómari þegar þurfti að meta hagyrðinga
til inngöngu á vefinn. Næstu vísnaþættir
verða helgaðir minningu Jóns Ingvars
Jónssonar. Það efni sem hér fer eftir, hefur
kær vinkona Jóns, Sigrún Haraldsdóttir
búið til birtingar.
Afar kær vinátta var með þeim Jóni
Ingvari og sr. Hjálmari Jónssyni, fyrrv.
Dómkirkjupresti, og ortu þeir mikið hvor
til annars. Líkt og margir muna, þá fékk
Hjálmar hastarlega fyrir hjartað fyrir
nokkrum árum. Jón Ingvar sendi honum
þessa hjartastyrkjandi vísu:
Hjálmar má þola hremmingu stranga
og heilsufarsbresti.
Drottinn minn láttu nú dæluna ganga
í Dómkirkjupresti.
En nokkru seinna fékk séra Hjálmar svo
blóðtappa. Jón vitjaði vinar í stað:
Hjálmar er traustur og heiðurskarl mesti
og hefur það sannað.
Drottinn minn taktu nú tappann úr presti
og trodd’ onum annað.
Fullkomlega gat hann verið óvæginn í
sjálfslýsingum. Þess sér stað í næstu þremur
kviðlingum er hann nefndi „Sjálfa“ 1, 2, 3:
Ég hef alveg afleit gen,
enda fól og glanni,
rætinn, þver og illgjarn en
annars gull af manni.
Æ, mig langar inn á Vog,
er það nokkur vegur?
Vera gegn og góður og
Guði þóknanlegur.
Jón er enn á röngu róli,
ranglátur og svikull drjóli,
á sitt fé í skattaskjóli,
skömm er að því ljóta fóli
þó að á hann hlaði hóli
hefðarkonur upp í bóli.
Jón orti svo á Iðunnarfundi:
Góða vísu ósköp auðvelt er að skapa,
sérstaklega ef ég apa
eftir honum Jóa í Stapa.
Næst fer eftir efni sem Jón Ingvar nefnir
einu nafni „Spakhendur“ ( Bauernregeln):
Snjói niðrí hálfar hlíðar
hækkar krónan fyrr en síðar.
Spóli Ford í Fischersundi
fellur krónan gagnvart pundi.
Sjáist lamb af laufi þefa
lækkar gengi hlutabréfa.
Jóðli ófædd önd í bítið
er það meir en lítið skrýtið.
Bólgni illa efri vörin
óðar skána vaxtakjörin.
Þegar galar hani’ á haugi
hlutur Glitnis eykst í Baugi.
Messa í Dómkirkjunni:
Til að forðast fjörbrot stór
og freistingarnar ljótar
ég til messu í morgun fór
mér til sálubótar.
Séra Hjálmar sagði frá
og siðu góða kenndi.
Þó að flygi Fokker hjá
fórst það vel úr hendi.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
305MÆLT AF
MUNNI FRAM
Systkinin Auður Sjöfn og Snorri
skoða hér Kolugljúfur í Vestur-
Húnavatnssýslu, með ömmu Pálu.
Augnablik í lífi þeirra yngstu
þetta sumarið
Ungviðið leikur við hvern sinn fingur yfir sumartímann enda svo
margt skemmtilegt hægt að gera úti í náttúrunni þegar sólin skín.
Hér má sjá nokkur kríli, á öllum aldri, njóta þess að vera til. /SP
Frændsystkinin Brynjar Freyr, Elsa Dís, Gunnar Kári, Camilla Von, Freyja Rún
og Íris Katla skemmtu sér konunglega í Fjölskyldugarðinum.
Ungfrú Sigríður Kristín hjólar um miðborg
Reykjavíkur eins og enginn sé morgundagurinn.
Eftir langan dag getur verið gott að kúra inni með
hundunum sínum, eins og Brynhildur gerir.
Elías Dagur þeysist um á rugguhesti.
Þeir bræður Jakob Bjarni og Gunnar Nói við skipið
fyrir utan Sjóminjasafnið á Grandanum í Reykjavík.
Blómarósin hún Margrét Rós æfir sig í að róla svolítið.
Ísak Rökkvi nýtur lífsins við sápukúlublástur.