Bændablaðið - 22.09.2022, Qupperneq 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
Spretthópurinn:
Fyrstu greiðslur
FRÉTTIR
www.vallarbraut.is vallarbraut@vallarbraut.is S-4540050
ÞAÐ ER BARA SOLIS
SOLIS 50 StageV
Ný og endurbætt vél með
vendigír við stýri.
Túrbína og intercooler
Endurhannað stjórnrými
Verð: 4.980.000+vsk
Með ámoksturstækjum
6.180.000+vsk
Samkvæmt tillögum spretthóps
sem Svandís Svavarsdóttir, mat -
vælaráðherra setti á laggirnar
vegna alvarlegrar stöðu land-
búnaðar voru fyrstu greiðslur
greiddar út fyrir helgi.
Greitt var álag á gæðastýringu í
sauðfjárrækt ásamt álagi á framlög til
geitfjárræktar, samtals 894,5 milljónir
króna. Greiddar voru gripagreiðslur
í nautgriparækt nú í vikunni, samtals
235 milljónir. Spretthópurinn lagði
m.a. til að greitt yrði álag á ákveðnar
greiðslur samkvæmt gildandi
búvörusamningum sem og sérstakar
greiðslur til stuðnings svína-, alifugla-
og eggjaframleiðslu, samtals 2.460
milljónir króna.
Áætlað er að aðrar álagsgreiðslur
verði greiddar samkvæmt eftirfarandi
tímaáætlun.
September 2022
· 20% álag á gripagreiðslur,
holdakýr – 36 milljónir, greitt 21.
september
· 12 % álag á gripagreiðslur –
mjólkurkýr – 199 milljónir, greitt
21. september
· Aðlögun að lífrænni framleiðslu
í garðyrkju – 5 milljónir
Október 2022
· 65% álag á jarðræktarstyrki og
landgreiðslur – 517 milljónir
· 65% álag vegna útiræktaðs
grænmetis – 34 milljónir
Nóvember 2022
· 75% álag á nautakjötsfram-
leiðslu, önnur álagsgreiðsla vegna
framleiðslu júlí-september – 41
milljón
Febrúar 2023
· 25% álag á beingreiðslur í
garðyrkju – 101 milljón
· 75% álag á nautakjötsframleiðslu,
þriðja álagsgreiðsla vegna
framleiðslu október-desember – 41
milljón.
Uppgjör álags á gæðastýringu
fer jafnframt fram í febrúar
samhliða uppgjöri almennu gæða-
stýringargreiðslunnar.
Spretthópurinn lagði einnig til að
450 milljónum króna yrði varið til að
mæta hækkun fóðurverðs hjá svína-,
alifugla- og eggjaframleiðendum.
Ráðuneytið vinnur að undir-
búningi umsóknarferils vegna
framangreindra stuðningsgreiðslna
sem áætlað er að fari fram snemma
árs 2023. /VH
Gripagreiðslur í nautgriparækt voru greiddar í þessari viku, samtals 235 milljónir. Mynd / Myndasafn Bbl
Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, heimsótti bæinn Forsæti
í Flóahreppi nýlega, þar sem
hjónin og ábúendurnir Bergþóra
Guðbergsdóttir og Ólafur Sigur-
jónsson kynna sýninguna Tré og
list í gamla fjósinu.
Tilgangur heimsóknarinnar var
meðal annars að heiðra listakonuna
Siggu á Grund, eins og Sigríður
Jóna Kristjánsdóttir útskurðar-
meistari er jafnan kölluð.
Einn allra færasti
útskurðarmeistarinn
Sigga er einn allra færasti útskurðar-
meistari landsins en mikið af verkum
hennar er til sýnis í Tré og list. Sigga
gekk um salinn með Guðna Th. og
sýndi honum verkin sín og svaraði
spurningum forsetans.
Greinilegt var á viðbrögðum
Guðna að hann var yfir sig hrifinn
af verkum Siggu og safninu í
Forsæti, sem rekið er af miklum
myndarskap.
Sigga fékk riddarakross frá
forsetanum 2010 fyrir framlag sitt
til þjóðlegrar listar. /MHH
Hér er listakonan Sigríður Jóna Kristjánsdóttir ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, sem var mjög
áhugasamur um verk hennar á sýningunni í Tré og list. Myndir / MHH
Tré og list í Flóahreppi:
Forsetinn heiðraði Siggu á Grund
Ómar Ragnarsson umhverfis-
verndarsinni hlaut Náttúru-
verndarviðurkenningu Sigríðar
í Brattholti árið 2022.
Ómar er landsmönnum vel kunnur
og var í störfum sínum á fjölmiðlum
iðinn við að vekja athygli á hinum
ýmsu náttúruperlum landsins,
áður en hann hóf baráttu sína fyrir
náttúruvernd.
Guðlaugur Þór Þórðarson
umhverfis-, orku- og loftslags-
ráðherra afhenti viðurkenninguna á
degi íslenskrar náttúru, 16. september
síðastliðinn.
Færði þjóðinni náttúruundur
heim í stofu
Í máli ráðherra við athöfnina kom
fram að Ómari væri í lófa lagið að
vekja athygli á málefnum og að hann
hafi fært þjóðinni hvert náttúruundrið
á fætur öðru, alla leið heim í stofu.
Jafnt með Stikluþáttum sínum og
öðrum myndum um náttúruvernd,
sem og fréttaefni. Þannig hafi Ómar
myndað Holuhraun áður en þar fór að
gjósa og komið að Grímsvatnagosinu
áður en nokkur annar kom þar að.
Eins hafi Ómar verið ötull
við að vekja athygli á rafknúnum
farartækjum hin síðari ár og hafi
til að mynda ferðast árið 2015 á
rafhjóli frá Reykjavík til Akureyrar,
í ferðalagi sem hann nefndi „Aðgerð
orkuskipti“, þá orðinn 75 ára. „Þá er
Ómar brautryðjandi í notkun rafbíla á
Íslandi, kynnti ef minnið svíkur ekki
rafbíl hér fyrir nokkrum áratugum
síðan, og hefur undanfarin ár keyrt
um á rafmagnsbílum.
Hann sagði einmitt í viðtali fyrir
nokkrum árum, og var því á undan
okkur stjórnvöldum sem nú erum að
takast á við málið, að það væri ekki
nóg að rafmagnsbílar væru bara fyrir
þá efnameiri. Huga þyrfti að „rafbíl
litla mannsins“.
Eldhugi sem lagði allt í sölurnar
„Íslensk náttúra væri svo miklu
fátækari ef ekki væri fyrir eldhuga
sem eru tilbúnir að leggja allt í
sölurnar fyrir hana. Ég eins og
margir Íslendingar erum svo heppin
að hafa átt Ómar sem glugga inn í
hluti sem eru svo ótrúlega mikilvægir
en fáir sinntu. Einstaklingar skipta
máli og skýrt dæmi um það er Ómar
Ragnarsson. Það verður aldrei hægt
að mæla það hvað hann hefur gert,
með sínum einstaka hætti, fyrir
íslenska náttúru. Mín kynslóð og
margar fleiri fengum að kynnast
náttúru Íslands vegna áhuga og
atorku Ómars Ragnarssonar.
Fyrir það er ég þakklátur,“ sagði
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-,
orku- og loftslagsráðherra í rök-
stuðningi sínum. /VH
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra veitir
Ómari Ragnarssyni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti
árið 2022. Mynd / Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti:
Ómar Ragnarsson
heiðraður
Í frétt sem birtist í Bændablaðinu 9. september síðastliðinn um reglugerð sem
heimilar aukið innihald kadmíum í tilbúnum áburði var farið með rangt mál.
Þar kom fram að reglugerðin gilti til þriggja ára. Rétt er að gildistími hennar er
til ársloka 2023.
Einnig var tekið fram að ESB hefði lækkað leyfilegt hámark kadmíum í 60
mg pr. kg. fosfórs. Hið rétta er að hámarkið var lækkað niður í 60 mg pr. kg
þrífosfats (P2O5), sem er sambærilegt gildandi hámarki hér á landi. /ÁL
Leiðrétting