Bændablaðið - 22.09.2022, Side 15

Bændablaðið - 22.09.2022, Side 15
Margrét Ágústsdóttir Margrét Ágústsdóttir er ótrúleg ofurkona þegar kemur að hreyfingu. Hún stundar þríþraut af kappi og lætur það ekki á sig fá að hún verður 65 ára í haust. Til að verja liði tekur hún Active JOINTS frá Eylíf. Margrét segist vera búin að stunda þríþraut í ellefu ár en því fylgir mikið álag á líkamann. „Á þessum aldri og eftir miklar líkamlegar æfingar í gegnum árin þurfti ég að finna eitthvað sem héldi liðamótunum góðum. Ég var búin að prófa ýmislegt þegar ég rambaði á Active JOINTS frá Eylíf fyrir svona tveimur árum. Síðan hef ég ekki fundið fyrir neinu í liðunum. Active JOINTS virkar svona vel fyrir mig. Þess vegna finnst mér í góðu lagi að mæla með því fyrir aðra. Ég vil að fólk viti af þessu fæðubótarefni“ segir Margrét. „Ég var farin að finna fyrir eymslum í liðunum eftir strangar æfingar, sérstaklega á morgnana þegar ég fór fram úr. Ég finn ekki fyrir því lengur. Að keppa og æfa mikið fylgir meiðslahætta. Ef það gerist þarf að slaka aðeins á, ég fer til sjúkraþjálfara og passa upp á mig,“ heldur Margrét áfram. „Fyrir tveimur árum náði ég mér í beinmar í hné og þarf stundum að nota spelku frá Össuri ef ég finn mikið fyrir því. Liðirnir eru fínir og það þakka ég Active JOINTS.“ Margrét tekur þrjú hylki af Active JOINTS frá Eylíf á morgnana eins og mælt er með. „Ég fann mjög fljótlega eftir að ég byrjaði að taka Active JOINTS að liðleikinn var allt annar. Ég er því ákveðinn í að halda áfram að taka Active JOINTS. Mér finnst mikill plús að Active JOINTS er íslenskt fæðubótarefni með hreinum efnum úr okkar náttúruauðlindum.“ Hrein íslensk fæðubót frá Eylíf Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup, Krónunni, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum og Nettó ókeypis heimsending á eylif.is ef keypt er fyrir 7000 kr eða meira Þórdís S. Hannesdóttir Guðrún Jónsdóttir Guðrún segist hafa fundið fyrir ýmsum óþægindum árum saman. „Þrátt fyrir að ég hafi farið í vel heppnaða hnéaðgerð hef ég veriðgjörsamlega ónýt í líkamanum og gat varla gengið vegna mikils sársauka. Ég hafði farið til læknis og prófað að taka inn ýmis konar náttúruefni sem áttu að hjálpa og sömuleiðis hef ég farið í endurhæfingu. Það hjálpaði mér talsvert, en óþægindin héldu áfram að hrjá mig,“ bætir hún við. Guðrún sá umfjöllun og ummæli um Active JOINTS frá Eylíf heilsuvörum „Ég las innihaldslýsingar og þær hvöttu mig til að prófa. Einnig hafði vinkona mín mælt með Actice JOINTS, svo það var ekkert annað í stöðunni en að prófa. Vá, hvað ég er þakklát, því eftir einungis tvær vikur var eins og ég væri leyst úr fjötrum, eða bönd hefðu verið skorin utan af mér. Allar mínar hreyfingar urðu auðveldari og án óþæginda,“ segir hún. Guðrún segist finna örlítið fyrir öðru hnénu, en að öðru leyti sé þetta nýtt og betra líf. Undanfarið hef ég ekki getað stundað æfingar vegna COVID-19. „Það eru tveir mánuðir síðan ég byrjaði að taka inn Active JOINTS og ég get gengið um í dag, sem ég gat ekki áður með góðu móti. Fyrr í vetur hélt ég að ég væri útbrunnin, en svo er aldeilis ekki. Ég get því hiklaust mælt með Active JOINTS frá Eylíf. Það sem ég hef upplifað er stórkostlegt og ég þreytist því ekki á að dásama þessa vöru.“ Ég mæli eindregið með Happier GUTS frá Eylíf það hefur reynst mér mjög vel. Ég hef alltaf verið með lata þarmastarfsemi og hef verið að prófa ýmislegt í gegnum tíðina til að laga meltinguna en var bara hætt að hugsa um þetta því ekkert virtist koma að gagni og ég hugsaði bara „ég er bara svona og lítið við því að gera“. Ég var svo heppin að kynnast Happier GUTS nýlega eftir ábendingu um að þetta virkaði vel, en ég var búin að vera í langri hvíld frá öðrum bætiefnum. Ég ákvað ég að prófa Happier GUTS sem ég sé ekki eftir, því eftir ca 2ja mánaða notkun fann ég gríðalegan mun á mér, allt annað líf en áður. Ég mæli eindregið með Happier GUTS því það hefur hjálpað mér mjög mikið. Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN & HAIR, Happier GUTS og nýjasta varan er Stronger LIVER, allt vörur sem hafa reynst fólki vel. Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum, engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er á Grenivík. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi vörulínunnar Eylíf, en hugmyndin að henni kom til vegna þess að hana langaði að setja saman þau frábæru hráefni sem eru framleidd á á Íslandi á sjálfbæran hátt frá náttúrulegum auðlindum á Íslandi og auka þannig aðgengi fólks að þessum gæða- hráefnum. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í samstarfi við sérfræðinga frá Matís. „Vinsælasta varan er Active JOINTS sem inniheldur fjögur íslensk næringarefni og margra ára rannsóknir sýna fram á staðfesta virkni þeirra“ segir Ólöf Rún. „Við vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð, hrein hráefni sem eru framleidd af viðurkenndum íslenskum framleiðendum. Öll framleiðsla Eylífar fer fram á Grenivík. „Við vitum öll að heilsan er dýrmætust því er svo mikilvægt að gæta vel að henni og fyrirbyggja ýmis heilsuvandamál. Heilbrigð melting er grunnurinn að góðri heilsu, þess vegna vildum við hjá Eylíf bjóða upp á hágæðavöru fyrir meltinguna, Happier GUTS“ segir Ólöf Rún. Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru: • Kalkþörungar frá Bíldudal • Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ • GeoSilica frá Hellisheiði • Kollagen frá Sauðárkróki • Kítósan frá Siglufirði • Íslenskar jurtir handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði Hreint óerfðabreytt hráefni Íslensk framleiðsla Heilsan er dýrmætust Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. Vörulínan frá Eylíf

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.