Bændablaðið - 22.09.2022, Page 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 202218
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
Innflutningur á plöntum og plöntuafurðum
Innflutningur á vörum í kafla sex í tollskránni, Lifandi tré og aðrar plöntur,
hefur aukist ár frá ári undanfarin 10 ár og var innflutt magn ársins 2021 72%
meira en það hafði verið 2012. Á sama tíma hefur framleiðslu- og flutningsverð
þessara vara (verð til innflutningsaðila) hækkað um 61% þrátt fyrir að hafa
lækkað töluvert frá 2013 til 2017. Er það þrátt fyrir að verð á jólatrjám, stærsti
innflutningsliðurinn í kílóum talið, hafi ekki hækkað mikið á þessu tímabili.
0
200
400
600
800
1000
1200
1400
2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021
Tonn CIF/KG
Listi yfir mest innfluttu plönturnar breytist ár
frá ári, að því undanskildu að jólatré eru alltaf í
efsta sæti. Á þessari mynd sést skiptingin á mest
innfluttu plöntunum 2020-2021. Það skekkir
hins vegar notagildi þessara mælinga að einu
hagstærðirnar sem gefnar eru út um innflutt
tré og aðrar plöntur eru eftir þyngd en ekki
einingum. Tollgjöld á þessar vörur eru reiknuð
á fjölda eininga og tollkvótar eru það einnig.
Erfitt er því að fylgjast með nýtingu tollkvóta
eða reikna greidd gjöld af þessum vörum út frá
opinberum tölum.
* Innflutningur 2022 er fyrir janúar til og með júlí
Innflutningur á rósum stefnir á að aukast mikið
á þessu ári. Um mitt árið 2022 hafði þegar verið
flutt inn jafn mikið magn af rósum og allt árið
á undan. Mestur hluti rósa sem fluttur er til
landsins kemur frá Hollandi en næstu lönd þar á
eftir eru öll utan Evrópu. Löndin í öðru til fimmta
sæti þess lista eru annars vegar í Afríku og hins
vegar S-Ameríku.
Árlegur innflutningur í tonnum 2020 2021 2022*
601 Blómlaukar 184 201 45
602 Lifandi plöntur 570 563 398
603 Afskorin blóm 91 129 89
604 Lauf, greinar og plöntuhl. 338 314 50
Alls 1.183 1.207 582
Árlegur innflutningur í tonnum 2020 2021 2022*
06042030-Lifandi jólatré án rótar 247 209 15
06029099-Aðrar inniplöntur 127 122 57
06011030-Túlipanar (Tulipa)-Blómlaukar 83 92 0
06029059-Aðrar útiplöntur 88 91 62
06029049-Aðrir runnar og tré 95 63 53
06042090-Lifandi greinar, lauf … 42 53 33
06029070-Græðlingar með rót … 42 52 28
06029051-Fjölærar jurtkenndar útiplöntur 46 49 13
06042040-Lifandi jólatrésgreinar 44 48 0
06011090-Blómlaukar o.þ.h., í dvala 49 46 18
Annað 321 383 304
Alls 1.183 1.207 582
Árlegur innflutningur í tonnum 2020 2021 2022*
Holland 2,37 4,28 3,85
Kenya 2,52 2,20 2,90
Ekvador 0,12 0,79 0,43
Eþíópía 0,20 0,30 0,58
Kólumbía 0,02 0,17 0,03
Annað 0,21 0,16 0,14
Alls 5,43 7,90 7,94