Bændablaðið - 22.09.2022, Qupperneq 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
„Þetta er gríðarmikið verkefni,“
segir Hörður G. Jóhannsson,
sem hafist hefur handa við að
gera upp elsta skráða þilfarsbát
hér á landi, Bryndísi ÍS, sem
smíðuð var á Ísafirði og sjósett
28. desember 1939.
Lauslega áætlað gerir hann ráð
fyrir að 10 og upp í 20 þúsund
vinnustundir þurfi til að gera
bátinn upp. Hörður hefur fengið
2,7 milljónir króna í styrk frá
Minjastofnun en að öðru leyti sjálfur
staðið straum af kostnaði.
Hörður segir að líta megi svo á
að Bryndís ÍS sé undanfari Guð-
bjargar ÍS sem um árabil var
gerð út frá Ísafirði, en fyrstu
skipstjórar voru þeir Guðmundur
Guðmundsson og Ásgeir Guð-
bjartsson, sem síðar stofnuðu
saman útgerðarfélagið Hrönn á
Ísafirði sem gerði Gugguna út.
Hörður keypti bátinn árið 2001,
en þá hafði honum borist til eyrna
að lægi fyrir að farga honum fyrir
vestan og á þeim tíma var ekki mikill
áhugi á að varðveita bátinn.
„Það hafa margir bátar farið
forgörðum hjá okkur Íslendingum í
tímans rás, það er mikið talað um að
vernda báta og skip og forða þeim
frá glötun, en stundum verður minna
úr því,“ segir hann.
Nefnir hann t.d. kútter Sigurfara
frá Akranesi í því sambandi og
Maríu Júlíu, frægt varðskip á sinni
tíð sem liggur undir skemmdum
fyrir vestan.
Hver á að sinna þessu verkefni?
„Þetta er líka spurning um hver
á að vernda þessa gömlu báta,
einstaklingar eða hið opinbera,“
segir Hörður og nefnir að því
sé gjarnan borið við hjá hinum
opinberu aðilum að peninga skorti,
mannskap og pláss til að taka
gamla báta og gera upp. Örlög
þeirra verði því of oft að grotna
niður fyrir augum okkar og á árum
áður var vinsælt að farga þeim á
áramótabrennum.
Hörður er rafvirki og vélstjóri
og starfaði mikið á sinni starfsævi
við gamla báta, m.a. var hann mikið
hjá Norðursiglingu á Húsavík. Hann
gjörþekkir til um borð í eldri bátum
og um tíðina safnaði hann alls kyns
hlutum sem skipt var um. „Þeir koma
sér vel núna, ég á mikið safn sem ég
vonast til að geta nýtt eitthvað við
þetta verkefni. Annars útvega ég mér
efni héðan og þaðan, mest kemur frá
útlöndum því það er búið að farga
flestum bátum af þessu tagi hér á
landi og ekki um auðugan garð að
gresja þar,“ segir hann.
Bryndís ÍS hafði ekki haf-
færniskírteini þegar Hörður keypti
bátinn fyrir ríflega tveimur áratugum
en fékk leyfi til að sigla honum frá
Ísafirði til Akureyrar sem hann gerði.
Upp frá því hefur báturinn verið fyrir
norðan, á ýmsum stöðum á Akureyri,
en var fluttur í Sandgerðisbót nú
síðast. Þar hefur Hörður reist létt
skýli yfir bátinn sem hlífir honum
fyrir úrkomu. „Ég ætlaði að byrja á
fullu í þessu verkefni þegar ég hætti
að vinna, en þá tóku veikindi við og
ekkert varð úr mínum góðu áformum
fyrr en núna í haust.“
Margbúið að reyna að
hafa vit fyrir mér
Gerir hann ráð fyrir að vera
mestmegnis einn við verkið en nýtur
einnig aðstoðar frá fjölskyldu sinni
og vinum. Einnig er skipasmiður
með honum í liði, sem veitir stuðning
og hjálp við verkið. Hvað kostnaðinn
varðar segir hann að ljóst sé að svo
umfangsmikið verkefni kosti stórfé,
samanber allan þann efnivið sem
keyptur hefur verið. Hann hefur
fengið styrk frá Minjastofnun og
stefnir Hörður á að sækja fleiri styrki
til verksins eftir því sem fram vindur.
„Heimska,“ svarar Hörður
galvaskur, spurður um af hverju
hann sé að vasast í þessu verkefni.
Hann gæti sem best spókað sig á
Tenerife yfir vetrarmánuðina í stað
þess að vinna baki brotnu við að gera
upp gamlan bát í köldu skýli. „Það er
margbúið að reyna að hafa vit fyrir
mér, en án árangurs. Fólk er boðið
og búið að segja mér hvað þetta sé
vitlaust, kostnaðarsamt og mikil
vinna. En ég hef alla mína ævi haft
áhuga á gömlum bátum og veit að ég
er með mikil verðmæti í höndunum,“
segir hann. /MÞÞ
LÍF&STARF
Hörður reisti létt skýli yfir Bryndísi sunnarlega í Sandgerðisbótinni og má
ætla að þar verji hann mörgum vinnustundum á komandi vetri við að bjarga
bátnum frá glötun.
Gerir upp elsta skráða þilfarsbátinn hér á landi, Bryndísi ÍS:
Gömul skip verða ekki minjar sé þeim eytt
Hörður Jóhannsson, rafvirki og vélstjóri, ætlar að gera elsta skráða þilfarsbát
hér á landi upp og hefur þegar hafist handa norður á Akureyri. Mynd / MÞÞ
Bryndís ÍS, elsti skráði þilfarsbátur á Íslandi, var sjósett á Ísafirði 28. desember 1939. Myndir / Úr einkasafni.
Búið að koma bátnum fyrir áður en skýlið var reist.