Bændablaðið - 22.09.2022, Side 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
Alls voru sjö umhverfisviður-
kenningar afhentar við athöfn
í Húsi Frítímans á Sauðárkróki
á dögunum.
Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar
hefur veg og vanda af tilnefningum
og afhendingu umhverfisviður-
kenningar fyrir hönd sveitarfélagsins.
Félagskonur fóru um allan
Skagafjörð, en að þeirra mati er
umgengni í sveitarfélaginu stöðugt
að batna og metnaður íbúa til að hafa
umhverfið snyrtilegt hefur aukist.
Alls hafa Soroptimistakonur afhent
100 viðurkenningar um árin, en þetta
var átjánda árið sem klúbburinn
veitir slíkar viðurkenningar.
Sjö viðurkenningar
Í ár voru veittar sjö viðurkenningar í
fimm flokkum. Flugumýrarhvammur
hlaut viðurkenningu í flokknum
sveitabýli með hefðbundinn búskap
en eigendur eru þau Sigrún Hrönn
Þorsteinsdóttir og Rögnvaldur
Ólafsson. Snyrtilegasta lóð við
fyrirtæki var valið Dalasetur
þar sem þau Jakobína Helga
Hjálmarsdóttir, Þórarinn Þórðarson,
Daníel Þórarinsson og Stefán
Óskar Hólmarsson hafa byggt upp
einstaklega snyrtilegt og fallegt
svæði í landi Helgustaða í Unadal.
Snyrtilegasta lóð við opinbera
stofnun var valin Byggðastofnun.
Einstakt framtak
Hjónunum Maríu Guðmundsdóttur
og Sigurði Hansen á Kringlumýri
var veitt viðurkenning fyrir
einstakt framtak með uppsetningu
Grjóthers Hauganesbardaga ásamt
uppbyggingu og starfsemi í
Kakalaskála. Fram kom í umsögn
að þetta framtak Kringlumýrarhjóna
væri ávinningur fyrir samfélagið allt.
Þá hlutu þrjár lóðir viðurkenningu
en allar eiga það sameiginlegt að
verkja athygli fyrir snyrtimennsku
og góða umhirðu.
Lóðirnar eru við Furulund
4 í Varmahlíð, eigandi Helga
Bjarnadóttir, Kirkjugata 7
Hofsósi, eigendur Dagmar Ásdís
Þorvaldsdóttir og Ragnar Þór Jónsson
og Raftahlíð 44 á Sauðárkróki,
eigendur Eva Óskarsdóttir og Svavar
Sigurðsson. /MÞÞ
Þremur pósthúsum á jafnmörgum
stöðum verður lokað um miðjan
janúar á næsta ári, 2023. Þetta
eru pósthúsin í Grindavík, á
Skagaströnd og Kópaskeri.
Í stað pósthúsa verður í fram-
haldinu lagður meiri þungi í aðrar
þjónustulausnir.
Póstþjónusta á Íslandi hefur tekið
stórfelldum breytingum en frá árinu
2010 hefur fjöldi bréfasendinga
dregist saman um 74% samkvæmt
upplýsingum á vefsíðu Póstsins.
Pakkasendingar hafa á sama tíma
margfaldast að magni. Verulega
hefur dregið úr eftirspurn eftir
afgreiðsluþjónustu pósthúsa en
notkun annarra þjónustulausna vex.
/MÞÞ
Slökkvilið Fjallabyggðar hefur
fengið körfubíl frá Slökkviliði
Akureyrar til geymslu og notkunar.
Fengu Akureyringar fyrr á þessu
ári nýjan öflugan körfubíl í sína
þjónustu. Slökkvilið Fjallabyggðar
hafði áður bíl frá árinu 1969, 53 ára
gamlan, í sinni þjónustu þannig að
verulega er verið að yngja upp hjá
liðinu, því körfubíllinn frá Akureyri
er árgerð 1987. Hann hefur að auki
verið endurnýjaður og verið vel við
haldið um árin.
Jóhann K. Jóhannsson, slökkvi-
liðsstjóri í Fjallabyggð, segir á
vefsíðu sveitarfélagsins að bíllinn
sé mun öflugri á allan hátt og muni
eiginleikar hans gjörbreyta vinnu í
þeim verkefnum sem slökkviliðið
þarf að takast á við. /MÞÞ
Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar hefur veg og vanda af tilnefningum og
afhendingu umhverfisviðurkenningar fyrir hönd sveitarfélagsins.
Mynd / Sveitafélagið Skagafjörður
Skagafjörður:
Sjö umhverfisviðurkenningar
Í stað pósthúsa verður lögð áhersla
á þjónustulausnir.
Landsbyggðin:
Þremur pósthúsum
lokað eftir áramót
Körfubíll prófaður.
Slökkviliðið:
Fá nýrri og öflugri bíl
í Fjallabyggð