Bændablaðið - 22.09.2022, Page 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2022
„Þetta er heilmikið ævintýri sem við
erum nú að leggja út í,“ segir Agnes
Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri
Bruggsmiðjunnar á Árskógssandi.
Í byrjun apríl síðastliðnum
keypti félagið fiskvinnsluhús sem
staðið hafði ónotað í 23 ár og hófst
handa við að gera það upp sem
hótel. Það fær nafnið Hótel Kaldi.
Bruggsmiðjan byggði upp Bjórböðin
sem fögnuðu 5 ára afmæli í byrjun
sumars, en gestir þar hafa mikið
spurt um gistingu í tengslum við
heimsókn sína þangað.
„Það má segja að með þessum
framkvæmdum, að kaupa gamalt
fiskvinnsluhús og breyta því í
hótel, séum við að bregðast við
fjölda fyrirspurna frá okkar gestum.
Bjórböðin hafa átt vinsældum að
fagna líkt og aðrir baðstaðir en fólk
vill gjarnan gera meira úr ferðinni
og auðvitað keyrir enginn heim
sem hefur fengið sér bjór í baðinu,“
segir Agnes.
Agnes og Ólafur Þröstur Ólafsson
stofnuðu Bruggsmiðjuna sem var í
hópi fyrstu handverksbrugghúsa
landsins, fyrsta framleiðslan kom á
markað í lok september árið 2006.
Starfsemin hefur vaxið og dafnað
síðan, búið að byggja við, bæta við
tækjum og auka framleiðslugetuna
umtalsvert. Fyrir fimm árum opnuðu
þau Bjórböðin til viðbótar við
starfsemi brugghússins og segir Agnes
að vel hafi gengið í heildina, þó því
sé ekki að leyna að heimsfaraldur af
völdum kórónuveirunnar hafi sett
mark sitt á reksturinn.
Góðar viðtökur
„Faraldurinn hefur gert okkur grikk
eins og öðrum rekstri, við þurftum að
hafa lokað langtímum saman þau ár
sem hann stóð yfir, enda starfsemin
skilgreind í flokki baðstaða. En ég
kvarta ekki, það gekk mjög vel í
fyrrasumar, Íslendingar voru mikið
á ferðinni hér um slóðir.
Þeir elta gjarnan veðrið sem er
skiljanlegt og það var gott norðan
heiða bróðurpart sumars,“ segir hún.
Bjórböðin eru annars konar en
hefðbundnir baðstaðir, tveir og tveir
deila stóru baðkari og hafa aðgang
að framleiðsluveigum fyrirtækisins
á meðan þeir slaka á í baðinu. Alls er
hægt að taka 50 böð á dag þannig að
gestir eru um 100 talsins þegar fullt er.
„Almennt er ég mjög ánægð með
hvernig til hefur tekist, viðtökur hafa
verið góðar og við erum komin inn á
kortið hjá bæði íbúum hér um slóðir
og ferðamönnum,“ segir hún.
Keyptu húsið í apríl
og hófust handa
Agnes segir að allt frá því Bjórböðin
voru opnuð sumarið 2017, hafi gestir
spurt mikið um gistingu í tengslum
við heimsókn sína. Fátt hafi verið í
boði á nærsvæðinu. „Þessi hugmynd
hefur verið að gerjast hjá okkur
nokkuð lengi, við höfum verið að
skoða möguleika og hvernig best væri
að koma til móts við þessar óskir,“
segir Agnes. Fiskvinnsluhúsið, sem
er steinsnar frá Bruggsmiðjunni
og Bjórböðunum, var í eina tíð
með umfangsmikla starfsemi á
Árskógssandi, en vinnsla hefur ekki
verið þar í ríflega tvo áratugi. „Þetta
hús var beint fyrir framan okkur,
ónotað. Þannig að það lá einhvern
veginn beint við að kaupa það, setja
í nýjan búning og bjóða þar upp á
gistiaðstöðu,“ segir Agnes.
2000 fermetra hús
Húsið var keypt í byrjun apríl og strax
hafist handa. Iðnaðarmenn hafa verið
þar að störfum í vor og sumar við
breytingar og fjölskyldan leggur hönd
á plóg og tekur til hendinni á kvöldin
eftir vinnudaginn.
„Það er allt á fleygiferð og
mikið að gera, en þetta er mjög
skemmtilegt og við hlökkum til að
taka þessa viðbót við okkar starfsemi
í notkun,“ segir Agnes. Til að byrja
með verða fimm herbergi í boði fyrir
tíu gesti. „Við höldum svo áfram
verkinu, tökum eitt og eitt skref í einu,
það hefur alltaf reynst okkur vel að
fara á okkar hraða í þetta.“
Húsið er allt um 2.000 fermetrar að
stærð, þar af eru um 800 fermetrar á
efri hæð þess þar sem hótelstarfsemin
verður. Auk herbergjanna verður
matsalur á hæðinni, kaffihús og
anddyri. Um 50 manna salur er þar
einnig og verður hann leigður til
viðburða af ýmsu tagi. Agnes segir
að stefnan sé að klára verkefnið á
tveimur árum.
Góð viðbót við ferðaþjónustuna
„Ég er bjartsýn fyrir hönd
ferðaþjónustunnar hér á svæðinu,
það hefur orðið stöðug aukning
undanfarin ár og útlitið gott,“ segir
Agnes. Þar vísar hún m.a. til þess að
Niceair muni fljúga ferðalöngum inn
á svæðið á næstu árum auk þess sem
fleiri flugfélög fljúgi beint eða ætli sér
að hefja áætlunarflug til Akureyrar.
„Staðsetning okkar er mjög góð, við
erum í miðjum Eyjafirði, stutt að fara
bæði til Akureyrar og Siglufjarðar sem
eru vinsælir áfangastaðir ferðamanna.
Við höfum mikla trú á því að
hótelrekstur hér verði góð viðbót við
ferðaþjónustuna á svæðinu.“
LÍF&STARF
Eigendur Bruggsmiðjunnar og Bjórbaðanna á Árskógssandi færa út kvíar:
Fyrstu fimm herbergin á
Hótel Kalda opnuð í ágúst
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Agnes Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bruggsmiðjunnar, við heitu pottana
á útisvæðinu við Bjórböðin. Myndir /Bruggsmiðjan
Fimm ár voru fyrr í sumar frá því Bjórböðin voru opnuð á Árskógssandi.
Sjávarútvegssýningin SJÁVAR-
ÚTVEGUR / ICELAND FISHING
EXPO 2022 verður haldin dagana
21. til 23. september í Laugar-
dalshöll. Þar sýna um 150 innlend
og erlend fyrirtæki.
Ólafur M. Jóhannesson,
framkvæmdastjóri þess segir að
sýningin veki alltaf miklum áhuga
bæði hér innanlands og víða um heim.
„Sýningin er einstaklega fjölbreytt
og áhugaverð og við finnum fyrir
aukunum áhuga erlendra aðila
enda íslensk sjávartæknifyrirtæki í
fremstu röð. Á sýningunni eru allar
gerðir af fyrirtækjum sem þjóna
íslenskum og erlendum sjávarútvegi
og þar koma gestir til með að sjá það
nýjasta í hátækniútbúnaði er tengist
fiskvinnslu og útgerð.
Þar eru meðal annars kynnt
tæki og búnaður sem mun án efa
hafa mikil áhrif á hina alþjóðlegu
fiskvinnslu í framtíðinni. Þá er
mikið af nýjum fyrirtækjum með
sýningarbása og ber þar að nefna
fyrirtæki sem þjóna fiskeldinu bæði
á sjó og landi.“
Svandís Svavarsdóttir, matvæla-
ráðherra, opnaði sýninguna formlega
og afhend viðurkenningar til fjögurra
aðila innan sjávarútvegsins og krýnir
„Trillukarl ársins“. Sendinefnd frá
Möltu mætir sérstaklega á sýninguna
undir forystu dr. Alicia Bugeja Said
matvælaráðherra
Sjávarútvegssýningin er opin
frá klukka. 10 til 18 á fimmtudag
og föstudag. Að sýningunni stendur
sýningarfyrirtækið Ritsýn sf. /VH
Sjávarútvegssýningin 2022:
Fiskvinnsla framtíðarinnar
Á sýningunni eru allar gerðir af fyrirtækjum sem þjóna íslenskum og
erlendum sjávarútvegi. Mynd / Aðsend