Bændablaðið - 22.09.2022, Qupperneq 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
Umskiptin tóku nokkrar vikur
Skafti og Lisa tóku formlega við
búinu 1. janúar síðastliðinn en
umskiptin áttu sér stað yfir nokkrar
vikur. Sigurður og Gróa héldu til í
gestahúsi skammt frá bænum og
þjálfuðu nýju bændurna þangað til
þau fluttu yfir á Akureyri í febrúar.
Fyrst um sinn héldu Skafti og Lisa
til í húsnæðinu sínu á Blönduósi, en
um miðjan janúar fluttu þau alfarið
á Brúsastaði.
„Það var allt til alls til að búa,“
segir Skafti. Íbúðarhúsið var allt
tekið í gegn fyrir nokkrum árum og
öll aðstaðan í fjósinu mjög góð. Á
jörðinni eru 97 hektarar af túnum
sem fyrri ábúendur höfðu lagt mikla
áherslu á að halda í góðri rækt.
Fyrstu mánuðir gengu vel
Þau segjast ekki hafa lent í neinum
alvarlegum skakkaföllum þessa
fyrstu mánuði eftir að þau tóku við
búinu, þó auðvitað séu alltaf einhver
óvænt verkefni sem þurfi að leysa.
Úrlausnarefni eins og júgurbólga,
súrdoði eða burðarvandamál komu
upp öðru hverju, en það er eðlilegur
hluti af kúabúskap.
Þau segja erfitt að segja til um
hvernig gangi. „Mig langar bara til
að komast í gegnum fyrsta árið og taka
svo stöðuna,“ segir Lisa. Þau búast
samt ekki við öðru en að reksturinn
lukkist ef þau halda vel á spöðunum og
fara ekki fram úr sér í fjárfestingum.
Þau eru ekki alveg sammála hvort
þau finni fyrir einhverjum þrýstingi
þar sem þau eru að taka við einu
afurðahæsta búi landsins. Skafti lætur
það lítið á sig fá, en Lisa segir að það
sé alltaf ákveðin pressa að halda uppi
jafn góðum búskaparháttum og voru
hjá fyrri bændum.
Þau eiga erfitt með að sjá fyrir
hvernig búskapurinn muni þróast
á næstu árum. Það sé svo mikill
óstöðugleiki í greininni um þessar
mundir þegar aðföngin hækka
gífurlega hratt. Sem betur fer séu
allir þeir sem þau versla við liðlegir
varðandi reikninga og greiðslur. „Það
er bara að hringja áður en maður er
kominn í vandræði,“ segir Skafti.
Fljót að læra á kýr
„Ég hafði aldrei komið nálægt
kúm áður en við tókum við hérna,“
viðurkennir Lisa og segist hafa þurft
að læra allt frá byrjun. Kýr séu samt
sem áður afar áhugavert viðfangsefni
sem hægt er að sökkva sér í.
Margar forvitnilegar hliðar séu
á kúabúskap, hvort sem það er
spenastig, júgurbólga eða kynbætur
og gefandi sé að velta fyrir sér
hvernig hægt er að ná betri árangri.
Samfélag gott
Gróskumikið samfélag er í
Vatnsdalnum og segjast Skafti og
Lisa vera mjög heppin með nágranna
í allar áttir. Samvinnan er góð og
stökkva allir til ef þörf er á aðstoð.
Flestir bændurnir í sveitinni eru
sauðfjárbændur, en á Brúsastöðum
eru einungis nautgripir og nokkrir
hestar. Þau búast við því að missa
úr félagslega þættinum sem fylgir
sauðfé, sérstaklega réttum og
smalamennsku, en reyna að taka þátt
og hjálpa eins og þau geta.
Í dalnum eru tvö önnur kúabú og
hafa þau fengið stuðning og kennslu
frá bændunum þar. „Í hvert skipti
sem það er eitthvað óljóst hringi
ég í Maríönnu,“ segir Lisa, en hún
er kúabóndi á Hnjúki skammt frá
Brúsastöðum.
Skafti og Lisa eiga þrjú börn –
Ingimar Emil, 5 ára, Anton Þór, 4 ára
og Eyrúnu Ölmu, 1 árs. Yngri börnin
tvö eru á leikskóla á Húnavöllum og
er elsti strákurinn kominn í grunnskóla
á Blönduósi.
Gróa Lárusdóttir og Sigurður
Ólafsson, fyrrum ábúendur á
Brúsastöðum, vildu leggja sitt af
mörkum til þess að jörðin héldist
í byggð.
Fyrir meira en tuttugu árum
ákváðu þau að þegar kæmi að sölu
þá yrði jörðin seld í heilu lagi. Ljóst
var að hvorki dóttir þeirra né neitt
af þeirra frændfólki treysti sér í að
taka við því kefli. Því tóku þau vel
áhuga Skafta og Lisu.
Þrátt fyrir að hafa byggt upp
nútímalegt kúabú með metafurðir
og vera sjálf á besta aldri, fundu
hjónin að nú væri réttur tími til
að víkja. Þarna var komið ungt
og öflugt fjölskyldufólk sem vildi
viðhalda búskap á jörðinni og ekki
víst að þau hefðu áhuga síðar.
„Hefðu þau ekki komið þá
hefðum við haldið áfram að minnsta
kosti næstu fimm til sjö ár í viðbót,
eða fram að ellilaunum,“ segir
Sigurður. Hann var þó feginn að
geta selt á þessum tímapunkti þar
sem læknir hafði nýlega úrskurðað
bakið á Sigurði verulega slitið.
Ungt barnafólk í staðinn
Með þessu telja Sigurður og Gróa
að þau hafi skilið vel við dalinn
ef horft er á samfélagið. „Það fara
tvær fullorðnar manneskjur og
koma ung hjón með þrjú börn í
staðinn. Þau eru 30 árum yngri en
við og við höfðum búið í 30 ár.“
Með þessu vonast þau til að
jörðin haldist í búskap næstu
áratugina og þá verður vonandi
einhver annar klár til að taka
við keflinu.
Gróa fjórði ættliður
Aðspurð hvort einhver eftirsjá sé
að sölunni þá segja þau svo vera
og þau hafi ekki búist við öðru.
„Gróa er fædd og uppalin þarna
og er fjórði ættliðurinn á bænum.
Svo byggðum við upp jörðina frá
A til Ö og er því erfitt að fara frá,“
segir Sigurður.
Þrátt fyrir verulega eftirsjá eftir
jörðinni eru þau mjög ánægð með
að Skafti og Lisa séu tekin við.
„Það þyrftu fleiri að selja
jarðirnar ef ættingjarnir ætla ekki
að taka við. Það er of algengt að
fólk búi áfram á jörðunum sínum
þó það sé hætt með búskap og selji
allt af þeim. Samfélagslega séð er
það ekki gott.“
Ákváðu að selja til að viðhalda búskap
Gróa Lárusdóttir og Sigurður Ólafsson höfðu byggt upp nútímalegt kúabú
á Brúsastöðum undanfarna áratugi. Þar sem ættingjar vildu ekki taka við
keflinu urðu þau fegin þegar Skafti og Lisa sýndu áhuga. Mynd / H.Kr.Á Brúsastöðum er nýlegt lausagöngufjós með einum Lely mjaltaþjón. Mynd / ÁL
.
Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar.
Matvælaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
samkvæmt reglugerð nr. 144/2022 um stuðning við sauðfjárrækt (III kafli).
Umsóknum skal skilað inn á skrifstofu Matvælaráðuneytisins á sérstökum eyðublöðum sem stofnunin lætur í té
eigi síðar en tveimur vikum eftir birtingu auglýsingar.
Stuðningur til söfnunar ullar er háður því að umsækjandi uppfylli eftirfarandi skilyrði:
1. Aðili skal vera reiðubúinn að taka við allri vinnsluhæfri ull af öllum framleiðendum sem þess óska.
2. Aðili þarf að sækja ull heim til framleiðanda eða taka á móti ullinni á móttökustöð sem ekki er lengra
frá hverjum einstökum framleiðanda ullar en 100 km.
3. Að minnsta kosti 30% allrar ullar sem aðili móttekur skal þvegin hér á landi og jafnframt unnið úr þessari sömu ull
band, lopi eða samsvarandi vara hérlendis.
Umsóknarfrestur er til 7. október næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Matvælaráðuneytið.
Netfang postur@mar.is