Bændablaðið - 22.09.2022, Side 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
LESENDARÝNI
Sú úttekt hefur
verið notuð sem
dómur um kol-
efnisspor íslensks
kindakjöts. Mér
hefur alltaf þótt að
þeir útreikningar
byggi ekki á
þekkingu og var
t. d. bent á að ekki
var reiknað með
aukaafurðum sauðkindarinnar,
eða þær látnar bera hluta
kolefnissporsins, eins og eðlilegt
væri. Síðan greinarnar 2020
birtust hef ég aflað mér frekari
gagna um kolefnissporið.
Ákvað að setja á blað nokkur
meginrök, hugmyndir, að baki þeim
hugleiðingum sem ég hef unnið
með að undanförnu um útreikninga
á kolefnisspori kindakjöts, það er
að taka beitilandið sem bóndinn
notar og er oftast í eigu hans, sem
hluta af kolefnisspori kindakjöts.
Hef fært á blað rökin fyrir
því að nota bindingu beiti-
landsins sem hluta af ,,fram-
leiðsluferli“ kindakjöts. Það
sé hluti af framleiðsluferli
sauðfjárræktarinnar. Það sem hér
er sett á blað er ekki tæmandi.
1. Ítala hefur alltaf verið
framkvæmd í praktis á Íslandi.
Sjaldan verið notuð opinberlega,
þurfti ekki. Var í Grágás og lögum
frá 1969 um afréttarmál, fjallskil
og fl. Þeim var aftur breytt 1986.
Sjálf landhelgunin við upphaf
landnáms virðist hafa verið í
anda þess að fjölskylda gæti
lifað af helguðu landi. Ítala var
og er notuð í Færeyjum, samanber
,,Seyabrevet“. Í því eru nákvæm
,,fyrirmæli“ um hversu margar
kindur, eða gripi á beit, hver
jörð, bóndi, megi halda, hafa
á landi sínu, án þess að gæði
landsins rýrnuðu. Landið væri
skynsamlega nýtt.
2. Fasteignamat jarða,
eins og það var upphaflega, er
byggt á burðargetu landsins,
heyöflunarmöguleikum og svo
hlunnindum, sumum langsóttum,
að okkur nútímamönnum finnst,
samanber skaflinn í landi
Skjaldfannar. Jarðamatið var
klárlega byggt á burðargetu
landsins, að verulegu leyti.
Húsakostur var að sjálfsögðu hluti
af matinu.
3. Við, Íslendingar, kaupum
trjáplöntur og gróðursetjum,
kaupum okkur kolefnis-
syndaaflausn með því. Sams konar
hugsun eins og páfinn viðhafði með
,,syndaaflausn“, aflátsbréfum, hér
fyrr á öldum. Fyrirtækið Kolviður
er í hlutverki páfans. Fyrirtækið
Kolviður kaupir hugsaða bindingu
hvers trés, enda þótt raunveruleg
binding raungerist ekki að fullu
fyrr en tréð er ,,uppskorið“, eftir
40 ár eða svo. Og raunar ekki fyrr
en búið er að planta næstu kynslóð,
gróðursetja aftur. Annars rýrnar
verðmæti ,,landsins“. Syndaaflausn
páfans gaf ekkert til baka. Því ekki
alveg sambærileg.
4. Þetta leiðir okkur yfir
á næsta stig; Grasið er verðmæti
ef, og þegar, það er nýtt, annars
ekki eins verðmætt. Hófleg nýting
eykur verðmæti landsins: Eykur
uppskeru landsins, samanber þegar
tún er slegið tvisvar. Uppskeran
eykst.
5. Sláttur (og beit)
styrkir grassvörðinn, samanber
fótboltavelli. Beit viðheldur
plöntum í beitilandinu, sem þola
beit. Annars fer beitilandið í órækt,
virði landsins, sem beitiland,
minnkar.
6. Þegar við kaupum
,,jarðnæði“, eða leigjum, erum
við að kaupa, eða leigja réttinn til
að nýta grasið, kolefnisbindingu
landsins. Grasið á jörðinni er
hið raunverulega verðmæti fyrir
sauðfjárbóndann. Það er stofninn
sem bóndinn byggir á.
7. Hver hektari meðalúthaga
framleiðir um 8- 15 (og hærra) hkg
(hestburðir) (Ingvi þorsteinsson
1980; Borgþór Magnússon og
Sturla Friðriksson 1989), segjum
að meðaltali 10 hkg af heyi (85
% þurrefni) á hektara (ha). Þetta
þýðir að hver ha af grónu landi,
bindur sem svarar til 1000x0,85
(þurrefni) x0,43 (% kolefni, C í
þurrefni) = 365,5 kg af kolefni á
hektara/ ári. Þetta þýðir að hver
hektari bindur 365,5x3,67= 1341,4
kg af CO2, koltvísýringi, á ha á
hverju ári! Í skýrslu Environice,
sem áður er nefnd, er talið að
landgræðsla gefi 2,1 tonn CO2
bindingu á ha á ári. Hér er reiknað
með að hektari af grónu landi gefi
60,7 % af þeirri tölu.
8. Hvert kg af kindakjöti
hefur kolefnissporið 14,92 kg CO2
á kg kjöts (Sveinn Hallgrímsson
og Eyjólfur Kristinn Örnólfsson,
2020). Til hægðarauka reiknum
við með 15,0 kg CO2 /kg kjöts.
Sé framleiðsla á kind 22 kg
af kindakjöti, og við látum
úthagann binda kolefni fyrir alla
framleiðsluna, þarf fjárbóndinn að
kolefnisjafna sem svarar 22x15,0
= 330 kg koltvísýrings á kind á ári
með landinu sínu. Þetta þýðir að
hver ha kolefnisjafnar framleiðslu
4,06 kinda á ári. Þetta þýðir að
1000 kinda fjárbú þarf: 1000/4,06
= 246,3 ha af grónu landi til að
kolefnisjafna framleiðsluna!!
Allt framyfir það er fjárbúið að
leggja inní þjóðarbúið. Kolviður
mun væntanlega kaupa það
af sauðfjárbændum og selja
hugsanlegum kaupendum til
kolefnisjöfnunar.
9. Hér má bæta við að
ræktað land bindur einnig kolefni.
Norðmenn (Svíar) reikna með að
ræktað land bindi 1150 til 1500 kg
af koltvísýringi á ha á ári (Smart
landbruk.no)
Við þetta má svo bæta að þessir
útreikningar eru ekki tæmandi.
• Eitthvað af gróðrinum
rotnar, geymist ekki áfram í
jarðveginum.
• Hluti gróðursins á landi
bóndans fer í að framleiða lömbin
og til viðhalds ánna og lambanna.
Hluti af því fer í afurðirnar. Sumt
binst í varanlegt form. Hér er ekki
reiknað með því!
• Hluti beitarinnar fer út í
andrúmsloftið aftur sem gös. Þó
skal hér bent á að með aukinni
framleiðslu á kind, framleiðni,
minnka þessir neikvæðu þættir
verulega og hafa lækkað um nær
30 % á síðustu 30 árum, samanber
auknar afurðir eftir kind.
• Það verður einnig
aukning á lífmassa neðanjarðar,
í rótarkerfinu. Hluti af honum
binst varanlega, varðveitist í
jarðveginum.
Ekki hefur verið reiknað út
hversu mikið hér um ræðir. Þetta
ætti að vera hægt að mæla.
Samkvæmt þeirri hugsun sem
ég hef sett á blað hér að ofan,
eykur framleiðsla kindakjöts
bindingu kolefnis og: Kolefnisspor
kindakjöt er jákvætt.
Tilvitnanir.
1. Borgþór Magnússon
og Sturla Friðriksson
1989. Framræsla Mýra.
Ráðunautafundur 1989: 141 -159.
Uppskera 9 hkg/ha á óframræstri
mýri, en 30 hkg í framræstri mýri.
2. Ingvi Þorsteinsson
1980. Gróðurskilyrði, gróðurfar,
uppskera og plöntuval búfjár.
‚Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
12,2: 85- 99.
3. Sveinn Hallgrímsson
og Eyjólfur K. Örnólfsson
2020. Íslensk sauðfjárrækt og
kolefnisspor hennar. Bændablaðið
26: (16) bls. 43.
4. Sveinn Hallgrímsson
og Eyjólfur K. Örnólfsson 2020.
Bændablaðið 26 (10.9.) bls. 41.
5. S i g r ú n B i r n a
Halldórsdóttir og Stefán Gíslason
2017. Umhverfisráðgjöf Íslands.
Sauðfjárrækt og loftslagsmál,
Fjölrit 24 bls.
6. Smart Landbruk.no.
Bedre karbonlagring i varig eng.
Binding kolefnis í jarðvegi á
ræktuðu landi.
7. Friðrik Pálmason 2013.
Plöntunæringar- og áburðarfræði.
LbhÍ Tafla bls. 227: Heildar C og
N og C/N hlutfall í plöntusýnum.
Sveinn Hallgrímsson,
höfundur er fyrrverandi
ráðunautur í kynbótum sauðfjár
og skólastjóri Bændaskólans
á Hvanneyri.
Sveinn
Hallgrímsson.
Kolefnisspor kindakjöt er jákvætt. Mynd / Myndasafn Bbl
Um kolefnisspor dilkakjöts á Íslandi
Á undanförnum árum hefur farið fram umræða um kolefnisspor
matvæla og þátt matvælaframleiðslu í magni koltvísýrings í
andrúmslofti. Fyrir tveimur árum birtust tvær greinar eftir
okkur Eyjólf Kristin Örnólfsson í Bændablaðinu um kolefnisspor
kindakjöts, dilkakjöts. Greinarnar voru skrifaðar vegna útreiknings
á kolefnisspori, sem fyrirtækið Environice stóðu að.
Við, Íslendingar,
kaupum trjá-
plöntur og gróður-
setjum, kaupum okkur
kolefnis-syndaaflausn
með því. Sams konar
hugsun eins og
páfinn viðhafði með
, , s y n d a a f l a u s n “ ,
aflátsbréfum, hér fyrr
á öldum“