Bændablaðið - 22.09.2022, Síða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
KOLMAREN
I detta moderna hus kan barnen/ungdomarna få en egen del
i huset med ett gemensamt allrum/dusch/WC.
De öppna ytorna löper genom hela huset med kök och
vardagsrum i husets mitt.
Här finns inga korridorer eller spillytor.
1-planshus
Boyta: 147 m2
Sovrum: 3-4
Kök, vardagsrum
Tvättstuga
WC/dusch: 2
1-PLANSHUS
VÄLJ DIN EGEN PLANLÖSNING
Húsið er með gluggum frá gólfi upp í loft auk mikillar lofthæðar í eldhúsi og stofu. Einnig sést vel út í
garð og á pallinn. Stórt leikherberg, þrjú svefnherberg, þar af eitt stórt hjónaherbergi með stóru fataher-
bergi og stóru baðherbergi. Breytingar á herbergjaskipan hússins eru kaupendum að kostnaðslausu.
(athugið að vefsíðan er einnig á íslensku)
Hentug hús um land allt - Aðeins til sölu á Íslandi!
1-PLANSHUS
VÄLJ DIN EGEN PLANLÖSNING
KOLMAREN
Frekari upplýsingar gefur sölu tjóri á Íslandi - Hinrik Gunnarsson
Veffang: hinrik@floodstra.com · Sími: 0046 705741099 · Vefsíða: www.floodstra.com/
Floods Trähus
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Hekla er lítil, létt, forvitin og athugul. Hennar
heimur er lífið og fólkið hennar á Egilsstöðum
og nágrenni.
Pabbi Heklu, þarf að ferðast mikið vegna
vinnunnar. Hans áhugi er að segja sögur, mæla
allt og skrá. Hekla elskar ekkert meira en að
ferðast með honum og skoða nýja staði. Enda
forvitin mjög.
Allt virðist vera eins og það á að vera í lífi sjö
ára stelpu. En fljótt skipast veður í lofti og saga
Heklu tekur óvænta stefnu sem engann getur
órað fyrir (þegar hún fýkur til Grænlands).
Líka til á dönsku – Framhald í vinnslu
Foreldrar - Hvetjum stráka og
stelpur til að lesa í sumarleyfinu
Í síðustu Bændablöðum hef ég
skrifað greinar um starfsemi
RML. Viðfangsefnið að þessu
sinni er þróunar- og verkefnastofa
RML.
Við stofnun
RML var sett
upp skipurit sem
byggði á þremur
fagsviðum og
ábyrgðarmenn
voru yfir einstaka
má la f l okkum.
Árið 2019 var
þessu skipuriti
breytt með það að markmiði að
auðvelda vinnu, og samtal starfsfólks
sem starfar við ólík viðfangsefni
innan fyrirtækisins. Fagsviðum var
fækkað í tvö og ábyrgðamannakerfið
var tekið út. Með breytingunni
var verið að byggja undir það að
fyrirtækið gæti tekið að sér stærri
verkefni sem þjónaði landbúnaðinum
öllum. Ráðgjöfin væri rekin meira
sem ein heild, hvort sem það var
milli ólíkra málaflokka eða á milli
landshluta. Þarna var horft til þess
meginhlutverks að RML sinnti
ráðgjafarþjónustu á öllu landinu
óháð búsetu og búgrein.
Þróunar- og verkefnastofa
hefur það hutverk samkvæmt
núgildandi stjórnskipulagi RML
að vera vettvangur umræðu um
tvö meginmál. Annars vegar
verkefnastjórnun, þ.e. yfirsýn
verkefnasafns, gangur einstakra
verkefna, þörf og mönnun verkefna,
árangur o.s.frv. Hins vegar fer fram
umræða um þróun og nýsköpun.
Þróunar- og verkefnastofa er ekki
svið heldur samstarfsvettvangur
allra starfsmanna en einn starfsmaður
heldur utan um starfið.
Verkefnastjórnun er fyrirtæki
eins og RML gríðarlega mikilvæg.
Starfsólk vinnur í sínum daglegu
verkefnum að ráðgjöf og þjónustu
til bænda eða annarra viðskiptavina,
á sama tíma er verið að sinna stærri
og minni verkefnum þar sem
fleirri starfsmenn koma að. Þessi
verkefni eru annaðhvort árleg föst
verkefni, styrkt þróunarverkefni eða
tímabundin stærri ráðgjafarverkefni.
Það þarf því að halda vel utan um
tíma og fjármagn og skapa yfirsýn
yfir þau verkefni sem eru í gangi en
þau geta skipt tugum hverju sinni.
Þróunarhlutinn byggir á samtali
starfsfólks og stjórnenda sem
leiða í einhverjum tilfellum til
nýrra verkefna, þessi verkefni eru
mikilvæg sem hluti endurmenntunar
starfsfólks og þróun á ráðgjöf þar
sem ekki er gert ráð fyrir slíku í
framlögum til RML. Í mörgum
tilfellum verða verkefni einnig til í
gegnum samtöl við bændur og/eða
eru unnin í samvinnu við bændur.
Dæmi um slík verkefni sem unnin
hafa verið eru til dæmis verkefni í
tengslum við sæðingar á holdakúm,
mygluspá fyrir kartöfluræktendur,
fóðrun og frjósemi sauðfjár,
möguleika á auknum afurðum
sauðfjár með fleiri burðum á ári eða
nýtingu sauðamjólkur, verkefni um
vinnubrögð og hönnun við verkun í
flatgryfjur og svo mætt lengi telja.
Í mörgum verkefnum hefur verið
leitað í reynsluheim bænda bæði með
það að markmiði að greina þá þætti
sem bændur telja að skipti mestu
máli og til þess að miðla af reynslu
annarra. Sem dæmi um slíkt eru
kálfadauðaverkefnið og þættir sem
hafa áhrif á lifun lamba á sauðburði.
Í báðum tilfellum voru bændur
beðnir um að miðla af reynslu sinni í
gegnum vefkannanir og upplýsingar
úr þeim síðan nýttar í frekari vinnu.
Svona verkefni eru mikilvæg til að
stuðla að þróun í ráðgjöf RML sem
er í takt við þarfir bænda.
Umhverfi landbúnaðarins
breytist eins og annað og frá því
að RML var stofnað fyrir rétt
tæpum tíu árum hafa umhverfis- og
loftslagmál orðið mun mikilvægari
liður í starfseminni. Snemma var
lögð áhersla á að ná í þekkingu og
verkefni tengd þessum málaflokki
því ljóst var að þar voru mörg göt
sem fylla þyrfti upp í þekkingarlega
séð. Ráðið var inn starfsfólk sem
gat sinnt þessum málaflokki og
loftslagsgleraugu almennt sett á þá
ráðgjöf og leiðbeiningar sem RML
er að veita. Enn vantar mikið upp á í
þekkingu og mælingum hér á landi.
Með þessum málaflokki komu inn
stór verkefni og má gera ráð fyrir að
svo verði áfram sem ýtir enn undir
mikilvægi þróunar/nýsköpunar og
góðrar verkefnastjórnunar.
Þróunar og verkefnastofa kemur
að mörgum verkefnum og fleiri en
hér verður upptalið en frá 2019
hafa hátt í 80 verkefni af ýmsum
stærðum farið af stað innan RML.
Upplýsingar um þjónustu og ráðgjöf
má sjá á heimasíðu okkar WWW.
rml.is ásamt því að starfsfólk RML
er ávallt til viðtals, hvort sem um er
að ræða í gegnum síma 5165000 eða
á starfsstöðvum RML.
Karvel Karvelsson,
framkvæmdastjóri RML.
Karvel
Karvelsson.
Starfsemi RML
– Fimmti hluti
Í mörgum verkefnum hefur verið leitað í reynsluheim bænda með það að
markmiði að greina þá þætti sem bændur telja að skipti mestu máli.
Mynd / Myndasafn BBL