Bændablaðið - 22.09.2022, Síða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
Kæru smáauglýsendur athugið
Frá og með 23. september nk. taka þær breytingar gildi að skrá þarf allar smáauglýsingar inni á vefnum
www.bbl.is/smaauglysingar fyrir kl. 15.00 mánudag þá viku sem blaðið kemur út.
Einnig þarf hér eftir að greiða auglýsingarnar með greiðslukorti eða með millifærslu.
Ekki verður í boði lengur að fá sendan greiðsluseðil í heimabanka.
Kær kveðja, Auglýsingadeild Bændablaðsins.
Wardian-kassi í vörslu Economic botany safnsins. Einföld uppfinning sem
breytti sögu grasafræðinnar.
Cliantus maximus og pálmum.
Samkvæmt plöntulista hússins eru
þar um 1500 ólíkar tegundir.
Bygging hússins hófst 1860 en
vegna fjárskort tók 38 ár að klára
það. Tempraða húsið var tekið í
notkun í áföngum og ekki fullbúið
fyrr en 1898. Húsið var allt gert
upp á síðasta áratug og meðan á
þeim framkvæmdum stóð voru
allar plönturnar í því fluttar annað
til geymslu. Heildarkostnaður við
uppgerð gróðurhússins var 41 milljón
pund, 6,6 milljarðar íslenskra króna
á núverandi gengi, og það var aftur
opnað almenningi 2018.
Gróðurhús prinsins af Wales
Eins og góðum konungi sæmir færði
Karl III garðinum fullkomin gróðurhús
að gjöf árið 1987 á meðan hann var
prinsinn af Wales og krúnuerfingi.
Húsið er þannig hannað að í því er
hægt að ganga á milli tíu veðrabelta
og skoða einkennisgróður hvers beltis
fyrir sig. Hvort sem það eru kaktusar
eða þykkblöðungar eyðimarkanna eða
ásætur úr regnskógunum.
Eitt af fjölmörgum plöntuundrum
í gróðurhúsinu er hræblómið,
Amorphophallus titanum, sem
blómstraði fyrst í gróðurhúsi í
garðinum árið 1889. Helsta sérkenni
plöntunnar, sem er upprunnin á
eyjunni Súmötru, er að hún blómstrar
gríðarlega stóru blómi og lyktar eins
og vel rotnað hræ af stórgrip og laðar
þannig að sér frjóbera.
Vísindastarfið í Kew
Auk þess að vera fallegur garður með
ótrúlega fjölbreyttu úrvali plantna
frá öllum heimshornum er Kew
ein virtasta miðstöð plöntuvísinda
í heiminum. Kew er með á sínum
snærum sérfræðinga á flestum sviðum
grasafræðinnar. Hvort sem það er
plöntulíffræði eða erfðafræði, flóra
ákveðinna heimsálfa, plöntutegunda,
greining plantna, varðveisla þurrkaðra
planta, sveppa og garðyrkju, og á
góðum degi er í Kew töluð meiri
latína en í Vatíkaninu.
Sérfræðingar Kew eru í
samstarfi við hátt á fimmta hundrað
vísindastofnanir í yfir hundrað
löndum og hafa ákveðin landsvæði
og jafnvel lönd undir smásjá, þar
sem lögð er áhersla á að skrá og
safna sýnishornum af plöntum sem
eru í útrýningarhættu vegna eyðingu
búsvæða þeirra.
Sem dæmi er í gangi verkefni
í Kenía sem fest í því að vernda
villt afbrigði af bönunum og annað
í Eþíópíu sem vinnur rannsókn á
villtum kaffiafbrigðum. Í Ástralíu,
Alpafjöllum Evrópu og í ríkjum
Kákasusfjalla Georgíu, Armeníu og
Aserbaídsjan er safnað fræjum af
villtum plöntum sem einungis finnast
á þeim svæðum og í Indónesíu og
Papúa Nýju-Geníu er unnið að
verndun gróðursvæða sem þykja
einkennandi eða sérstæð. Auk þess
sem 40 manns starfa á Madagaskar
við gróðurrannsóknir á vegum Kew.
Þurrkaða plöntu- og sveppasafnið
Í Kew er varðveitt eitt stærsta
vísindasafn í heimi af þurrkuðum
plöntum og sveppum. Plöntu-
sýnishornin í safninu eru um
átta milljón og koma frá öllum
heimshornum og um 20 þúsund
eintök bætast við á hverju ári. Í
sveppasafninu eru varðveitt hátt í
500 þúsund sýni.
Gríðarleg vinna liggur að baki
góðu vísindalegu sveppa- og
plöntusafni, söfnun, greining, þurrkun
og uppsetning, auk þess sem geymsla
á stórum söfnum er plássfrek og
þarfnast sérstaks húsnæðis ef vel á
að vera.
Safnið er einnig með í sinni
vörslu ríflega 175.000 þúsund
myndir, teikningar og málverk
af plöntum.
Elsti hluti plöntusafnsins er í húsi
sem byggt var sérstaklega undir
það árið 1852, síðan hafa geymslur
safnsins verið stækkaðar fimm
sinnum og nýjar geymslur aðlagaðar
kröfum samtímans.
Elstu plönturnar í safninu eru frá
1696 og komnar frá lækninum og
grasafræðingnum Samuel Brow sem
starfaði á Indlandi.
Meðal annarra dýrgripa í safninu
eru plöntur sem Charles Darwin
þurrkaði og setti upp í ferð sinni
með Beagle til Suður-Ameríku og
Galapagoseyja árið 1835.
Bókasafn Kew, stærsta plöntu-
bókasafn í heimi, er í samliggjandi
húsi við plöntusafnið og geymir
rúmlega 500 þúsund bækur, skjöl,
handrit, tímarit og kort sem tengjast
grasafræði.
Munir úr plöntum
Í Economic botany safninu í Kew
eru varðveittir yfir eitt hundrað
þúsund munir úr plöntum og um 500
úr sveppum sem tengjast efnahag,
verslun og viðskipum og einnig
talsvert af listmunum.
Þar er að finna einn af fáum
upprunalegum Wardian-kössunum
sem til eru, klæðnað, byggingarefni,
kanóna, eitur í flöskum, sýnishorn
af margs konar tei, mínatúr með
íslensku brennivíni, leikföng,
skartgripi og ótal margt fleira.
Þreyttir fætur
Eftir langan dag og mikla göngu í
garðinum er gott að geta sest niður
á öðru af tveimur veitingahúsunum
í Kew og fá sér kaffi eða bjór og
létta máltíð.
Annað kaffihúsið er í gamla
appelsínuhúsinu eða Oranseríinu en
samhliða Pavilion greiðasölunni er
gjafavöruverslun og ágætis bókabúð
sem sérhæfir sig í plöntum og
ræktun auk bóka sem Kew gefur út.
Koparbeyki, Fagus sylvatica 'Purpurea'. Tréð var gróðursett í
Kew um miðja átjándu öld sem hluti af trjásafninu sem fyrstu
forstöðumaður garðsins var að byggja upp.
Mark Nesbitt, forstöðumaður Economic botany safnsins í Kew.
Safnið geymir muni sem búnir eru til úr plöntum. Á myndinni
má sjá vatnsskjóðu sem búin er til og jafnframt elsti þekkti
manngerði gripurinn úr náttúrulegu gúmmíi eða latexi.
Ásætur og brönugrös í gróðurhúsinu sem Karl III Bretakonungur
gaf Kew meðan hann var prinsinn af Wales og krúnuerfingi.
Elsti hluti safnsins í Kew sem geymir þurrkaðar plöntur.
GRÓÐUR&GARÐAR