Bændablaðið - 22.09.2022, Page 47

Bændablaðið - 22.09.2022, Page 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022 A Wendel ehf. Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík, S:551 5464 - wendel@wendel.is www.wendel.is Hilltip Icestriker 900–1600L Salt og sanddreifari í tveim stærðum fyrir stóra pallbíla og minni vörubíla. Rafdrifinn 12V. Hilltip Icestriker 380–550L Salt og sanddreifarari í tveim stærðum, fyrir minni pallbíla. Rafdrifinn 12V. Hilltip Icestriker 600 TR Rafdrifinn kastdreifari fyrir dráttarvélar m/öflugum efnisskömmtunarbúnaði. Hilltip Snowstriker VP Fjölplógur fyrir pallbíla, minni vörubíla og jeppa. Fáanlegur í 185–240 cm breidd. Hilltip Snowstriker SP Snjótönn fyrir pallbíla, minni vörubíla og jeppa. Fáanleg í 165–240 cm breidd. Hilltip Fjölplógur MVP Fjölplógur fyrir ameríska pallbíla t.d. RAM 3500, GMC 3500 og FORD 350. Gripasýningin er alltaf sérlega glæsileg á Libramont, hér má sjá einkar fallegar kýr af Holstein mjólkurkúakyninu í kynbótadómi. Sauðfjárdómar fara fram með svipuðum hætti og á Íslandi, bæði samanburðarmat og hefðbundin stigun á bak- og lærisvöðvum. Sala beint frá býli er í örum vexti bæði hér á landi og víða erlendis og hér sést ein áhugaverð lausn við sölu á vörum. Sjálfsali sem tekur allt frá stórum lærum og niður í örsmáar einingar! Svona tækjum er einfaldlega komið fyrir við heimreiðar bæjanna og þar geta svo viðskiptavinirnir sjálfir keypt hvenær sólarhringsins sem er! Útiganga varphænsna hefur verið í stöðugum vexti í Evrópu undanfarin ár enda vilja fleiri og fleiri neytendur borga heldur hærra verð fyrir slík egg en frá hænum sem alltaf eru innandyra. Vandamálið við slíka framleiðslu er þó sú að eigi að gera þetta að stórbúskap, og vera með hundruð eða þúsundir af hænum, þá tæta þær upp landið sem þær eru á mjög hratt. Til að leysa málið hefur þýska fyrirtækið Huehnermobil komið með þessa áhugaverðu lausn. Hænsnakofi á hjólum sem má þá færa til eftir því sem hænurnar slíta upp landið. Eina sem þarf að bæta við er færanleg há girðing! Á myndinni sést minnsta gerðin, sem tekur 350 hænur, en stærsti færanlegi hænsnakofinn frá fyrirtækinu hefur aftur á móti pláss fyrir 1.200 hænur! Öllum nýjungum í vélum og tækjum er auðvitað ekki hægt að gera skil hér en þessi vél frá Hyler var nokkuð mögnuð enda sérhönnuð vinnsluvél fyrir hampræktendur! Gæti átt erindi við íslenska bændur. Það sem gerir þessa vél sérstaka, og raunar einstaka að sögn söluaðilanna, er að vélin er sérhönnuð til þess að snúa sláttuskára hampsins án þess að skerða lengd trefjanna í stofni plantnanna. Fyrir vikið fæst rúmlega helmingi hærra verð fyrir hampinn! Taktu daginn frá! Þann 15. Október er járningamannadagurinn haldin að Völlum í Ölfusi (Eldhestum) Opin verklegur dagur. Opinn fyrir járningamenn, dýrlækna, kynbótadómara og áhugamenn, svo allir eru velkomnir! Fyrripart dagsins verða ákveðin vandamál, fyrirfram valdra hesta skoðuð. Þátttakendum verður skipt niður í blandaða hópa, af dýralæknum, járningamönnum, kynbótadómurum og áhugamönnum og hverjum hóp er falið að greina einn hest. Eftir hádegi verður haldin hin árlega járningamannakeppni ásamt því verður kynning frá Mustad á nýju skeifuna “LiBero Ice”. Einnig mun Geert Íslandsmeistari 2021 sýna göngugreiningu “Werkman black” hesta á staðnum. Dagskrá byrjar kl 9:00 og stendur yfir allan daginn til klukkan 17:00 Járningamannakeppnin er frá 15:00 - 17:00 Skráning í keppni er opin öllum. Hún er opin til 3. Október og þarf að berast á jarningamenn@gmail.com Járningarmannadagurinn í ár er samstarfsverkefni Járningamanna og Dýralækna. Með kveðju Stjórnin

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.