Bændablaðið - 22.09.2022, Qupperneq 56

Bændablaðið - 22.09.2022, Qupperneq 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022 Hjónin Hannes Hilmarsson og Kristín Guðbjörg Jónsdóttir kaupa Kolbeinsá 1 árið 1995 af ömmu og afa Hannesar. Tóku þar við sauðfé og öllu tilheyrandi og byggðu ný 700 kinda fjárhús, og fjórum árum síðar af foreldrum Hannesar sem bjuggu á Kolbeinsá 2. Býli? Kolbeinsá 1 í Hrútafirði. Staðsett í sveit? Húnaþing vestra. Ábúendur? Hannes Hilmarsson, Kristín Guðbjörg Jónsdóttir, Jón Ómar, Guðmundur Hilmar og Friðrik Hrafn. Fjölskyldustærð (og gæludýra)? Við eigum eina dóttur og þrjá syni, tvo hunda og eina kanínu. Stærð jarðar? 2.200 ha. Gerð bús? Sauðfjárbú, verktaka­ starfsemi, ferðaþjónusta og æðarvarp. Fjöldi búfjár? 670 fjár alls á vetrarfóðrun. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Fer eftir árstíma. Á veturna fer húsbóndinn eldsnemma á fætur til að skoða færð á vegum fyrir Vegagerðina og hreinsar ef þarf, svo kemur skólabíllinn kl. 7. Eftir þetta er rollunum gefið og farið í tilfallandi störf. Reynt er að klára öll útiverk fyrir kvöldmat. Á sumrin er vinnutíminn alls konar. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Allt er skemmtilegt, en auðvitað sauðburðurinn erfiðastur. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Sirka svipaðan. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Bara þetta venjulega, smjör, ostur, mjólk og fleira. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Góð lambasteik. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Sennilega þegar fé var rekið inn í ný fjárhús, í nóvember árið 1999. MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Kolbeinsá 1 Súr gúrkutíð Haraldur Jónasson haradlur@gmail.com Það er fátt betra en góð súr gúrka. Skiptir þá engu hvort hún fer á hamborgara, samloku eða með kjötbollu í brúnni. Vandinn er bara að það er skrambakornið ekki hægt að fá almennilega súra gúrku á þessu skeri. Og þá er bara til eitt ráð – búa hana til. Það besta við þessa uppskrift er að grunnurinn að henni dugir til að sýra nokkurn veginn hvaða grænmeti sem er, ekki bara gúrkur. Sýrður laukur, súrt hvítkál, öðru nafni súrkál, sýrður eldpipar, paprika, blómkál og jafn vel súrt brokkólí. Sýran er líka það sem helst skilur að sæmilegan heimakokk og atvinnumann. Kokkarnir eru sífellt að sulla með edik og sítrusa á meðan við heimakokkarnir rífum frekar sykurinn upp úr skúffunni. Sýran er nefnilega stór hluti af því sem bragðlaukarnir okkar meðtaka ásamt sætu, söltu og hreinni biturð. Að ógleymdu fimmta bragðinu, úmamíinu góða. Sýran er því mikilvæg í matargerð og hvergi á hún betur við en í góðri dill­súrri gúrku. Nema kannski í súraðri síld um jólaleytið en það er önnur saga. Nú er það dillgúrkan. Dillum okkur Grunnuppskriftin af leginum er 5% edik blandað til helminga við vatn og svo fimm prósent af salti miðað við vigt. Hvers konar kryddi og öðru veseni er svo, eftir smekk, hægt að bæta út í þennan lög. Svo er stundum best að láta ekki fleira út í ef ætlunin er að láta grænmetið skarta sínu bragði eins og t.d. þegar rauðlaukur er settur í leg og jafnvel eldpipar. Stjarnan í dag er hins vegar dill og dillið er kryddjurt sem kannski flestir tengja við graflax. Sumir þola það ekki en aðrir njóta hvers bita eins og gengur. En blessunarlega mildast þetta einkennandi bragð og umbreytist í gallsúrum leginum. Svona gerum við þetta Ediki og vatni er blandað í pott ásamt salti. Suðan látin koma upp á meðan agúrka er skorin niður í hæfilega þykkar sneiðar. Líka er hægt að skera langsum í spjót sem er einstaklega skemmtilegt meðlæti. Kryddið fer út í löginn þegar saltið hefur bráðnað saman við hann og eiga allar að vera í heilu lagi nema túrmerikið sem á að vera í duftformi enda það aðeins til að gefa gulleitan blæ og má tæknilega sleppa. Þeir sem vilja ekki of súrt geta bætt smá sykri við en það ætti eingöngu að vera til að koma börnum og mögulega matvöndum unglingum á bragðið. Hvítlaukurinn er kraminn lítillega til að sleppa gúmmelaðinu út og laukurinn skorinn í strimla. Hnefafylli af dilli troðið í botninn á krukku, þá gúrkusneiðunum í bland við laukinn og hvítlaukinn. Þegar búið er að troða öllu grænmetinu í krukkuna er leginum hellt yfir. Passa að allt kryddið fari með. Gott að láta standa á bekk í hálftíma­klukkutíma á meðan mesti hitinn fer úr. Þá er lok sett á og herlegheitin fara inn í ísskáp, því þar á þessi réttur heima. Þetta eru bragðgóðar ísskápagúrkur, geymslugúrkur. Geymast alveg í nokkrar vikur en til að fá geymsluþol þyrfti að sótthreinsa allt og sjóða niður. Það er bara vesen sem endar í tárum. Langbest að henda bara í krukku þegar þarf. Enda hægt að nota nánast strax eftir að þær hafa verið gerðar en eru bestar frá sirka degi þrjú til fimmtán. Hið stökka sigrar hið mjúka Ef gúrkurnar verða of mjúkar er hægt að salta þær áður en þær fara í krukkuna. Gúrkuskífunum er þá velt upp úr smá salti og þær geymdar í skál í korter eða svo. Þá ætti saltið að hafa dregið dágóða slettu af vatni úr gúrkunum. Því er hellt í vaskinn og gúrkurnar skolaðar vandlega upp úr köldu rennandi vatni. Við þessa aðgerð fer aðeins af salti inn í gúrkurnar þannig að tæknilega séð ætti að minnka aðeins saltmagnið í leginum. Ef þær verða of saltar má alltaf drekka bara meiri bjór með. Sýrt grænmeti er töfratrix sem lyftir matargerð heimakokksins á hærra plan. Alla vega hamborgaranum. Myndir / Hari. 1 stk. agúrka 250 g vatn 250 g edik (5%) 25 g salt ½ búnt dill ½ laukur 1 tsk. piparkorn 1 tsk. kóríanderfræ 1 tsk. sinnepsfræ (gul) Dillgúrkulögur í stóra krukku Katrín Rós Gunnlaugsdóttir, dóttur- dóttir þeirra Hannesar og Kristínar, situr hér kotroskin í dráttarvélinni. Hann Friðrik Hrafn Hannesson, yngsti sonurinn á bænum, heldur á æðarkollu í sjávarmálinu. Þau hjónin eru með ferðaþjónustu eins og títt er, en hér má sjá húsið Borgir sem vinsælt er í útleigu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.